Síða 1 af 1
Raptor?
Sent: Lau 17. Apr 2004 23:17
af Stebbi_Johannsson
eru þeir hljóðlátir eða? er að spá í að fá mér einn sem Master en nenni ekki að hafa einhvern traktor hliðina ámér

Sent: Lau 17. Apr 2004 23:39
af Arnar
Nýi Raptorinn á að vera frekar hljóðlátur..
Sent: Sun 18. Apr 2004 02:44
af Fat
ég er með fjóra svona traktora við hliðina á mér. hraðin er svo mikill að hávaðinn fer ekkert í taugarnar á mér en jú þeir eru svolítið háfaðasamir en ekkert meiri hávaði í þeim frekar en öðrum SATA diskum frá WDigital. ef þú þarft að sofa með tölvuna í gangi uppí rúmmi þá skalltu kaupa þér 74Gb diskinn en hann er með vökvalegu sem gerir hann mjög hljóðlátann, hann er líka 20% hraðvirkari en gömlu raptorarnir og 200% dýrari

Sent: Sun 18. Apr 2004 03:22
af Arnar
200% meira pláss
Sent: Sun 18. Apr 2004 11:16
af gnarr
Fat skrifaði:ég er með fjóra svona traktora við hliðina á mér. hraðin er svo mikill að hávaðinn fer ekkert í taugarnar á mér en jú þeir eru svolítið háfaðasamir en ekkert meiri hávaði í þeim frekar en öðrum SATA diskum frá WDigital. ef þú þarft að sofa með tölvuna í gangi uppí rúmmi þá skalltu kaupa þér 74Gb diskinn en hann er með vökvalegu sem gerir hann mjög hljóðlátann, hann er líka 20% hraðvirkari en gömlu raptorarnir og 200% dýrari

hávaði segiru..

Sent: Mán 19. Apr 2004 01:20
af Fat
200% meira pláss
uhhh NEI! 100% meira pláss

Sent: Mán 19. Apr 2004 02:03
af Fat
jæja ég ákvað að skoða þetta frekar með háfaðan í Raptorunum. setti bara fram einfalda prófun sem fólst í því að bera þá saman við hina hörðudiskana sem ég á. Er ekki svo frægur að eiga hljóðháfaðamæli. Ég jumperaði aflgjafann til þess að hafa allt hljóðlaust í kringum mig og keyrði hvern disk fyrir sig til þess að heira í honum hljóðið. diskarnir sem ég prófaði eru:
WD Raptor 40Gb
WD SATA 120Gb
Seagate barracuda 80Gb
Gamall Seagate Medalist 4,3Gb
ég var hissa hve lítill ,hávaða´ munur var á diskunum. Seagate barracuda var hljóðlátastur enda er hann með fluidbearing en WD diskarnir voru lítið eitt hljóðmeiri en þeir eru hvorugir með fluidbearing. Mest kom það mér á óvart hve lítill hljóð munur var á WD SATA 120Gb og WD Raptor það eina sem var hægt að heira var það að Raptorinn er greinilega að snúast mikklu hraðar og er því hærri tíðni á hljóðinu frá honum. Þessir diskar eru jú nú eins uppbyggðir, með eins legu system ofl. En mesti háfaðin var náttúrulega gamli Seagate Medalist diskurinn minn og ég held ég geymi hann bara áfram niðrí skúffu..
Þessi prófun fékk mig til þess að sjá að þessi hávaða munur er svo lítill að ég persónulega ættla ekki að eltast við 1-3db í minni hávaða á hörðum diskum og gjalda við það mikinn hraða. Það sem skiptir mestu máli er jú nú HRAÐINN! Hvernig væri að fara að tala meira um hraða og virkni á þessari spjallsíðu heldur enn að væla endalaust um hávaða! ég mæli eindregið með WD RAPTOR fyrir þá sem vilja hraða en þeir sem finnast 1-3db auka of mikið skulu bara sitja eftir með sitt súra epli og sjúga það!!!
Sent: Mán 19. Apr 2004 02:32
af gnarr
já.. hávaði er merkilegur hlutur.
Sent: Mán 19. Apr 2004 09:29
af xpider
eruð þið að djóka með þetta 'hávaði'?!?!
Sent: Mán 19. Apr 2004 13:42
af gnarr
ég er að því já.. veit ekki með hina

Sent: Mán 19. Apr 2004 13:46
af xpider
ok var ekki alveg inní þessu
En Fat þú færð stórt hrós frá mér fyrir þessar prófanir!!! Keep up the good work!
Sent: Mán 19. Apr 2004 14:25
af Johnson 32
Bara svo þið vitið þá er hávaði með v-i

Sent: Mán 19. Apr 2004 14:37
af gnarr
gnarr skrifaði:hávaði segiru..

i was trying to tell them..
Sent: Mán 19. Apr 2004 18:19
af Fat
hei

á þetta ekki að vera spallvefur um tölvur? djöfulsins íslenku fucking áróður er þetta alltaf

Sent: Mán 19. Apr 2004 18:58
af axyne
Fat skrifaði:hei

á þetta ekki að vera spallvefur um tölvur? djöfulsins íslenku fucking áróður er þetta alltaf

ég er svo hjartanlega sanmála þér. mér er alveg sama hvort fólk skrifar brenglaða íslensku bara að það setji upp textann sinn sómasamlega.