Síða 1 af 1

Athlon II Vs Phenom II, Hver er munurinn ?

Sent: Þri 10. Maí 2011 09:50
af andribolla
Athlon II Vs Phenom II, Hver er munurinn á þessum örgjörvum ?

Re: Athlon II Vs Phenom II, Hver er munurinn ?

Sent: Þri 10. Maí 2011 10:14
af beatmaster
Með einni undantekningu (sem að er nýtilkomin) þá inniheldur Phenom II hraðvirkt L3 flýtiminni en Athlon II ekki

Re: Athlon II Vs Phenom II, Hver er munurinn ?

Sent: Þri 10. Maí 2011 12:15
af andribolla
beatmaster skrifaði:Með einni undantekningu (sem að er nýtilkomin) þá inniheldur Phenom II hraðvirkt L3 flýtiminni en Athlon II ekki


já Google var eithvað búin að segja mér um þetta L3 Flýtiminni, er ekki nógu vel að mér um örgjörva til að vita hvort það skifti svona mikklu máli :sleezyjoe

AMD Athlon II X4 640 3.0 GHz Quad 13.000kr
AMD Pheonm II X4 955 3.2 GHz Quad 18.000kr

og er það alveg 5.000 kr virði ? ;)

Re: Athlon II Vs Phenom II, Hver er munurinn ?

Sent: Þri 10. Maí 2011 12:31
af dori
L3 flýtiminni getur verið mjög mikilvægt. Fer svolítið eftir því hvernig forrit eru hönnuð hvernig það nýtist. L2 er sér fyrir hvern kjarna en L3 er deilt milli allra kjarna. Og svo er alltaf gott að þurfa ekki þennan svakalega tíma sem fer í að sækja í innra minnið :P