Síða 1 af 2

hvernig mp3 spilara??

Sent: Lau 17. Apr 2004 17:41
af bizz
Er búinn að vera að spá í 15Gb ipod spilara sem ég get fengið frekar ódýrt.
Mæliði með þessu??
Á ég að býða eftir ipod mini?
Sá líka einhverja spilara frá creative, spurning hvort að þeir séu e-ð að virka??

Vantar bara smá comment á þetta :wink:

Sent: Lau 17. Apr 2004 17:54
af Arnar
Ég er með 15gb iPod og mér finnst hann alveg frábær.

Sent: Lau 17. Apr 2004 18:29
af skipio
Hiklaust iPod ef þú getur fengið hann ódýrt.

Sent: Lau 17. Apr 2004 19:44
af Dári
iPod er málið. Án vafa besti mp3 spilarinn.

Sent: Lau 17. Apr 2004 19:51
af ICM
Nánast allir helstu MP3 spilarar fyrir utan iPod hafa náð framúr iPod í hljóðgæðum og codec support samt heldur iPod ennþá þessu okur verði. Vissulega eru þeir einfaldir í notkun en á kostnað hvers? Ef þú ætlarðir nú að nota hann sem diktafón?
Kaupir rándýrt stikki sem þarf að tengja við spilarann þegar það er innbyggður hljóðnemi í nánast alla aðra spilara. Stuttur batterý líftími og þú þarft að kaupa sér verkfæri ef þú ætlar að skipta um batterý þegar það er hægt að skipta um batterý á nánast öllum öðrum spilurum með einu handtaki. Eina góða codec-ið sem iPod ræður við er AAC og er nánast ekki stutt af neinum öðrum spilurum og þú getur ekki hent því í geislaspilaran á bílnum þínum né DVD spilaran inn í stofu meðan yfir 500 tæki styðja WMA og fleiri styðja OGG en AAC.

Ættir að íhuga http://www.iriveramerica.com/products/iHP-140.asp
Spilar WMA og OGG svo eitthvað sé nefnt.

Svo er hægt að fá hérna 60GB Nomad á verði iPod með helmingi minni geymslugetu http://www.nomadworld.com/products/Jukebox_ZenXtra/
Er með stærsta HDD af öllum MP3 spilurum.

Annars eru að koma fleiri spilarar með Video stuðning auk þess sem lófatölvur eru góður kostur fyrir þá sem þurfa ekki nema nokkra tónlistar CD með sér í einu.

Eins og venjulega verður þetta flame-að af iPod fanboys en Apple eru bara að reyna að selja sömu vöruna á okur verði þrátt fyrir litlar breytingar meðan aðrir framleiðendur halda þróuninni áfram.

Sent: Lau 17. Apr 2004 19:59
af ICM
Ef þér væri hinsvegar sama um hvað þú eyðir miklum pening þá eru flestir sem eiga þennan hérna Síma? Tölvu? Flugvél? mjög ánægðir. Þótt þú þurfir að kaupa þér rándýr minnis kort. http://www.mobiles.co.uk/o2-xda-2.html

Sent: Lau 17. Apr 2004 20:10
af ICM
Ætti kanski að taka það fram að iRiver er með örlítið lakari hljóð gæði en iPod, meðan Creative spilararnir eru með betra hljóð en þeir báðir.

Sent: Lau 17. Apr 2004 20:33
af Dári
Hann er að pæla í mp3 spilara, ipod er mjög góður mp3 spilari. þægilegur í notkun, tiltörulega lítill og handhægur, fyrir utan það að vera mjöög flottur í útliti. Styður bæði firewire og usb2.
Hann er ekki að reyna vera neitt annað nema góður mp3 spilari. :8)

Sent: Lau 17. Apr 2004 20:44
af ICM
rétt er það :) en það er gaman að reyna að flækja málin fyrir bizz, gera þetta erfitt fyrir hann :wink:

Sent: Sun 18. Apr 2004 00:37
af Pandemic
Ég kýs Dell Digital DJ Jukebox 15-20GB alveg magnaður spilari og þolir að fara í gólfið ólíkt ipod sem fer í klessu.

Sent: Sun 18. Apr 2004 01:55
af Arnar
Eina góða codec-ið sem iPod ræður við er AAC og er nánast ekki stutt af neinum öðrum spilurum og þú getur ekki hent því í geislaspilaran á bílnum þínum né DVD spilaran inn í stofu meðan yfir 500 tæki styðja WMA og fleiri styðja OGG en AAC.



Hvað er þetta.. færð þér iTrip og notar bara útvarpið!!!

Hvaða útvarp sem er YEAH! Það rokkar

Sent: Sun 18. Apr 2004 04:58
af ICM
Arnar lol í gífurlega skertum hljóðgæðum auk þess sem þetta er ólöglegt í mörgum löndum og ætti eiginlega að vera ólöglegt hér á landi líka ef reglurnar hérna eru eðlilegar... ólöglegar útvarpstöðvar :)

Sent: Sun 18. Apr 2004 13:40
af Snorrmund
Pandemic skrifaði:Ég kýs Dell Digital DJ Jukebox 15-20GB alveg magnaður spilari og þolir að fara í gólfið ólíkt ipod sem fer í klessu.
Geturu sagt að einhver hafi verið drepinn með Dell Digital DJ jukebox? :) nei hélt ekkI :D en það var allavega einhver gaur/kona í bna held ég sem var lamin/nn til bana með Ipod :D

Sent: Sun 18. Apr 2004 23:34
af Dári
iTrip fm senderinn er með fín hljómgæði, ekki cd quality, enda býður fm útvarp ekki uppá það. en það er endalaust þægiegt að geta tekið iPodinn með sér í hvaða bíl sem er og hlustað á tónlistina sína þar.
það að iPodinn þoli ekki smá fall er nú bara bull, ég veit um tilvik þar sem ipod gleymist uppá bílþaki og flaug þaðan af á um 40km/klst og lifði það af.

Sent: Sun 18. Apr 2004 23:58
af Voffinn

Sent: Mán 19. Apr 2004 16:08
af bizz
IceCaveman: er verið að selja þetta hérna á Íslandi??
Dári: hvernig tengiru þetta í bílnum, þ.e ipodinn??

Sent: Mán 19. Apr 2004 18:12
af Dári
bizz: ég keypti mér iTrip á 2500kr minnir mig. Þetta er lítill fm sendir sem mar tengir við iPodinn.

Sent: Mán 19. Apr 2004 18:26
af bizz
okey...
en það er hægt að nota þetta við meira en bara iPod er það ekki??
Er ekki bara venjulegur jack á þessu??

Sent: Mán 19. Apr 2004 19:24
af Dári
nei, þetta er bara fyrir iPod

Sent: Fim 27. Maí 2004 13:00
af sksig
Ipod..... Já, ef þú vilt vera eins og allir hinir... meeeee :-)

Ég ætla að fá mér Rio Karma. Hann styður Ogg Flac WMA MP3, Gapless playing.. helmingi lengra battery líf heldur en Ipod. Svona mætti lengi telja áfram. Málið er bara að fólk er orðið heilaþvegið af stöðugum fréttum af Ipod sölu í Öðrum löndum. Rio er tildurlega nýbúið að setja nýja línu á markað, þ.á.m.t. Rio Karma. En þar sem að flestar svona græjur eru illa eða ekkert auglýsta hér á landi, þá heldur fólk að Ipod sé það eina sem til sé.... af því að það hefur "frétt" af gífulegri sölu á Ipod. Geriði samanburð á þessum spilurum og sjáið til hvað ykkur finnst.

P.s. Kíkið á þennann link sem er á http://www.riomp3.is http://www.riomp3.is/sounds/bbc_karma_short.wma

Sent: Fim 27. Maí 2004 14:25
af skipio
sksig skrifaði:Ipod..... Já, ef þú vilt vera eins og allir hinir... meeeee :-)

Ég ætla að fá mér Rio Karma. Hann styður Ogg Flac WMA MP3, Gapless playing.. helmingi lengra battery líf heldur en Ipod. Svona mætti lengi telja áfram. Málið er bara að fólk er orðið heilaþvegið af stöðugum fréttum af Ipod sölu í Öðrum löndum. Rio er tildurlega nýbúið að setja nýja línu á markað, þ.á.m.t. Rio Karma. En þar sem að flestar svona græjur eru illa eða ekkert auglýsta hér á landi, þá heldur fólk að Ipod sé það eina sem til sé.... af því að það hefur "frétt" af gífulegri sölu á Ipod. Geriði samanburð á þessum spilurum og sjáið til hvað ykkur finnst.

P.s. Kíkið á þennann link sem er á http://www.riomp3.is http://www.riomp3.is/sounds/bbc_karma_short.wma


Þetta eru bara allt of há verð á þessum spilurum. Task er t.d. að selja 256 MB spilara á tæplega 17.000 á meðan 256 MB RIO spilari þarna kostar 27.000 krónur.

Sent: Fim 27. Maí 2004 16:59
af Dári
Kanski hefur fólk frétt af gífurlegri sölu iPods í öðrum löndum útaf því að hann hefur um 60% markaðshlutdeild af mp3 spilurum. :8)

Sent: Fim 27. Maí 2004 17:09
af GuðjónR
Hvað ef batteríið bilar ? Hringdu í Appel umboðið og spurðu...þú færð skondin svör ;)

Sent: Fim 27. Maí 2004 17:43
af sksig
Skipio:
Ég er sammála þér því að þetta er mjög gott verð sem task.is er að bjóða ( enda segja þeir að þetta sé með 7.000kr afslætti miðað við listaverð ). En... Þú verður að spá í því að þetta eru ekki eins spilarar. Yfirleitt fylgir "verð og hvað þú ert að fá" töluvert að. Þessi Megastick spilari hjá task hefur t.d. ekki auka slot fyrir minniskort né Equalizer. Eða það er allavega ekki tekið fram. En ég er alls ekki að dissa Megastick spilarann, þetta er eflaust fínt verð fyrir þennann spilara. Bara spurning um að gera samanburð á græjum sem eru í svipuðum verðflokki. Eða hvað finnst ykkur? :roll:

Dári: Nákvæmlega það sem ég meina :wink: . Þanniga að ef að það kemur eitthvað nýtt núna, sem er hugsanlega betra en það sem er fyrir á markaðnum, þá halda allir að það sé endilega best sem flestir eiga.

GuðjónR: Ég hef nú ekki hringt í Apple og spurt samb. við batteríið. En ég hef lesið það að það sé alveg hægt að láta skipta um það fyrir sanngjarnt verð.

Sent: Fim 27. Maí 2004 18:17
af Pandemic
Creative Numad MuVo NX