Síða 1 af 1
medion md30222 slekkur á sér
Sent: Lau 30. Apr 2011 17:08
af biturk
skjárinn kveikir á sér í nokkrar sec og síðann slekkur hann á sér
einhver hugmynd um hvað gæti verið að bögga hann? falleg mynd og allt í gripnum

Re: medion md30222 slekkur á sér
Sent: Lau 30. Apr 2011 17:50
af einarhr
biturk skrifaði:skjárinn kveikir á sér í nokkrar sec og síðann slekkur hann á sér
einhver hugmynd um hvað gæti verið að bögga hann? falleg mynd og allt í gripnum

fer hann í standby mode eða deyr hann alveg?
Re: medion md30222 slekkur á sér
Sent: Lau 30. Apr 2011 18:15
af worghal
bulldog skrifaði:Hann myndi ábyggilega virka ef hann væri ekki
Medion 
haha, svo satt.
en í sambandi við þetta vandamál, virka aðrir skjáir viðtölvuna ?
Re: medion md30222 slekkur á sér
Sent: Lau 30. Apr 2011 18:21
af biturk
einarhr skrifaði:biturk skrifaði:skjárinn kveikir á sér í nokkrar sec og síðann slekkur hann á sér
einhver hugmynd um hvað gæti verið að bögga hann? falleg mynd og allt í gripnum

fer hann í standby mode eða deyr hann alveg?
bara sloknar á myndinni
blátt ljós logar á honum sem breitist síðan eftir ákveðinn tíma í appelsínugult
...........ég er að skrifa í tölvuna svo já það virkar annað
fékk þennan skjá í hendurnar áðan með þessa bilun og langar að vita hvað er að
Re: medion md30222 slekkur á sér
Sent: Lau 30. Apr 2011 18:35
af einarhr
Hann er sennilega ekki að taka við signalnu frá tölvunni og fer því í standby eftir ákveðin tíma. Ertu búin að prófa fleiri en eina VGA/DVI snúru?
Sennilega er þetta móðurboðrðið í skjánum sem er bilað og líklega lítið hægt að gera í því.
Re: medion md30222 slekkur á sér
Sent: Lau 30. Apr 2011 18:37
af biturk
já ég prófaði að skipta um snúru, setti dvi í staðinn fyrir vga og það breitti engu máli
helduru að það sé bara móðurborðið sjálft sem er dautt? er engin leið til að gera við svona lagað?
Re: medion md30222 slekkur á sér
Sent: Lau 30. Apr 2011 18:41
af einarhr
biturk skrifaði:já ég prófaði að skipta um snúru, setti dvi í staðinn fyrir vga og það breitti engu máli
helduru að það sé bara móðurborðið sjálft sem er dautt? er engin leið til að gera við svona lagað?
Það er ólíklegt, það myndi aldrei svara kostnaði að senda skjáinn í viðgerð og því gáfulegra að kaupa bara nýjan.
18,5" LED skjári eins og þessi eru á ágætis verðum.
http://www.att.is/product_info.php?cPath=6&products_id=4301
Re: medion md30222 slekkur á sér
Sent: Lau 30. Apr 2011 20:43
af biturk
jæja
ég kippti honum í sundur
það var brunnið gat á eina bleiku snúruna sem fer upp í skjáinn sjálfann, tengdi smá kapal þar á milli en mig grunar að ég hafi sett aðaltengið of laust því allt í einu varð skjárinn bara hvítur
en hann allavega helst á núna
ríf hann kannski í sundur aftur á eftir ef ég nenni og skoa þetta
Re: medion md30222 slekkur á sér
Sent: Lau 30. Apr 2011 22:51
af einarhr
biturk skrifaði:jæja
ég kippti honum í sundur
það var brunnið gat á eina bleiku snúruna sem fer upp í skjáinn sjálfann, tengdi smá kapal þar á milli en mig grunar að ég hafi sett aðaltengið of laust því allt í einu varð skjárinn bara hvítur
en hann allavega helst á núna
ríf hann kannski í sundur aftur á eftir ef ég nenni og skoa þetta
Sko þig

Re: medion md30222 slekkur á sér
Sent: Sun 01. Maí 2011 13:48
af biturk
UPDATE
gekk í nokkrar mínútur, slökkti síðann á sér aftur en ef ég lýsi með vasaljósi á skjáinn þá sé ég myndina?
er þetta ekki backlightið? er hægt að laga eða skipta um það?
Re: medion md30222 slekkur á sér
Sent: Sun 01. Maí 2011 16:48
af ljoskar
Sennilegast Backlightið. Ekkert vesen að skipta um það svosem.
Fást flestar gerðir á Ebay.
Re: medion md30222 slekkur á sér
Sent: Sun 01. Maí 2011 16:51
af einarhr
Jú það er í 99% tilvika Inverter sem veldur þessu. Spurning að skoða á Ebay eins og ljoskar sagði og jafnvel reyna að finna jafnvel báðar snúrurnar líka.
Re: medion md30222 slekkur á sér
Sent: Sun 01. Maí 2011 16:57
af biturk
ebay gefur mér svar fyrir hvorugt því miður
en ef þið vitið um ábendingar til að finna annaðhvort inverter eða backlight þá er allt vel þegið, langað dáldið að koma skjánum í lag

Re: medion md30222 slekkur á sér
Sent: Sun 01. Maí 2011 17:01
af einarhr
biturk skrifaði:ebay gefur mér svar fyrir hvorugt því miður
en ef þið vitið um ábendingar til að finna annaðhvort inverter eða backlight þá er allt vel þegið, langað dáldið að koma skjánum í lag

Sennilega vegna þess að Medion er að ég held eingöngu selt í Evrópu og mest í Þýskalandi..
Taktu inverterinn úr og skoðaðu Part number á honum og prófaðu að googla það. Þú hefur sennilega eyðilagt inverterinn þegar þú varst að fikta í bleiku snúrinni

Svona inverterar eru mjög viðkvæmir fyrir stöðurafmangi.
Re: medion md30222 slekkur á sér
Sent: Sun 01. Maí 2011 17:57
af biturk
einarhr skrifaði:biturk skrifaði:ebay gefur mér svar fyrir hvorugt því miður
en ef þið vitið um ábendingar til að finna annaðhvort inverter eða backlight þá er allt vel þegið, langað dáldið að koma skjánum í lag

Sennilega vegna þess að Medion er að ég held eingöngu selt í Evrópu og mest í Þýskalandi..
Taktu inverterinn úr og skoðaðu Part number á honum og prófaðu að googla það. Þú hefur sennilega eyðilagt inverterinn þegar þú varst að fikta í bleiku snúrinni

Svona inverterar eru mjög viðkvæmir fyrir stöðurafmangi.
þess vegna notaði ég anti static armband
en annars ætla ég að prufa að finna part numberið og gá hvort ég geti ekki reint að finna það sem mig vantar
annars væri nú gaman að heira í þeim mönnum sem eru hér sem eru að gera við svona skjái........eða eru þeir of hræddir um að skaða viðskiptin

Re: medion md30222 slekkur á sér
Sent: Sun 01. Maí 2011 18:18
af einarhr
held barasta að að séu ekki margir sem eru í viðgerðum á skjáum á íslandi því það svarar yfirleytt aldrei kostnaði ef skjár er utan ábyrgðar. Held að flestir söluaðilar í dag skipti út skjánum og sendi þá gölluðu/biluðu til framleiðsluaðila ef um ábyrgðarmál sé að ræða.