Síða 1 af 3
Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 13:35
af westernd
Er búinn að kaupa mér nýja og öfluga tölvu, en það er eitt sem kemur fyrir að það kemur bara FEITT lagg þegar maður er að fara inní forrit, browser eða hvað eina, allt verður super slow, hvaða táknar þetta, ruslabíllinn fer alveg að koma og liggur við að mér langi að !"#$%&/()/&%$#%&/ tölvunni
takk
Re: Óska eftir svari
Sent: Fim 28. Apr 2011 13:44
af Daz
Lýsandi titil takk.
Varðandi vandamálið:
Settirðu tölvuna upp sjálf(ur)?
Hvaða stýrkikerfi er á henni?
Er búið að setja upp alla viðeigandi rekla (skjákort, móðurborðs,netkort, annað)?
Ertu viss um að þetta sé ekki 1500 mhz celeron vél?
Er forritið sjálft slow, eða bara það að opna forrit? Ef svo er, hverskonar harðan disk ertu með?
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 14:20
af westernd
OK ég fékk í magan að þú spurðir hvort ég hafi sett hana upp sjálfur :S
en já ég gerði það þetta virtist vera aulahelt
AMD Phenom II X6 1090T Black 3.2 GHz Hex
Corsair 2x4gb 1333mhz XMS minni
Ati Radeon 6870 Windforce blabla
Powersupply 750w
2gb sata3 64mb diskur
trúi ekki að þetta eigi að lagga, en það er ekki bara forritið það er öll vinnslan á henni sem verður bara slow, lengi að loka gluggum og það vesen, heil eilíf að opna task manager
Stýrikerfi: Win 7 Home, (löglegt)
Rekla: hmm "driver?" já allavegna allt það sem var á diskunum sem ég fékk, Skjákort/Móðurborðinu.
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 14:22
af westernd
Gigabyte AM3 GA-870A-USB3 DDR3 móðurborð:
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 14:26
af Moldvarpan
Er ekki örgjörva viftan bara illa fest á og tölvan er að hita sig óeðlilega mikið?
Edit; Settiru kælikrem á örgjörvann?
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 14:27
af Predator
Ertu með stýrikerfið á 2TB hörðum disk? Þeir eru held ég allir 5900rpm sem veldur því að hann er töluvert hægari en venjulegir 7200rpm diskar eða SSD diskar. Það gæti útskýrt afhverju það tekur allt svona langa tíma, fáðu þér SSD eða minni 7200rpm disk undir stýrikerfið og notaðu þennan 2TB disk undir allt annað en stýrikerfi, leiki og forrit.
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 14:29
af moppuskaft
Mér finnst þetta likta af feitum vírus. Ertu með góða vírusavörn ? gæti verið að éta upp allt minni eða cpu.
Eða gallað minni.
Ertu búin að taka hvort cpu er of heitur ? (Cpu vifta laus)
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 14:32
af westernd
Hmm,, ég held að hún sé ekki ílla fest, ætla samt að tjekka, en ég er með AVG vírusvörn
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 14:37
af dori
Ég myndi:
- Sækja speedfan og pósta hitatölum hérna.
- Ath. hvort minnin séu í réttum slottum.
- Fá mér nýjan harðan disk fyrir stýrikerfi og forrit.
Mér finnst þetta síðasta líklegast. En ég myndi byrja á hinu því að það er ókeypis að skoða það...
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 14:41
af westernd
svona? sýnist þetta ekki líta vel út
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 14:42
af westernd
já hef lesið mér til um þessa fljótvirku harðadiska, væri til í einn slíkan
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 14:45
af AntiTrust
westernd skrifaði:svona? sýnist þetta ekki líta vel út
Ef þessar 80° er hitatalan fyrir CPU hjá þér, þá er í raun ótrúlegt að vélin sé í gangi.
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 14:47
af westernd
já ofninn í íbúðinni virkar ekki :S fínt að hafa svona hita, en hvernig i mofo get ég lagað þetta
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 14:49
af Moldvarpan
Slökkva á henni og láta fagmann lýta á þetta. Mjög takmarkað sem við getum aðstoðað, mesta lagi gefið þér ráð.
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 14:50
af westernd
já samt mikil hjálp

takk
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 14:50
af AntiTrust
westernd skrifaði:já ofninn í íbúðinni virkar ekki :S fínt að hafa svona hita, en hvernig i mofo get ég lagað þetta
Sett kælikrem og kælingu rétt á. Ef þetta er rétt hitastig þá er klárt mál að þú hafir klúðrað því.
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 14:55
af westernd
jáá þá hneykslist þið á mér að ég setti bara örgjörvaviftuna sem fylgdi sem var með kælikremi á
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 14:58
af westernd
en tölvan gengur en og ég er viss um að það sé hægt að bjarga þessu, er kominn i aðra tölvu, og ætla að hypja mig að kaupa wonder super kælikrem krossa fingrum að þetta muni redda þessu, bið ykkur um að vera jákvæðir um að þetta sé hægt að laga HAHA
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 15:01
af MarsVolta
AntiTrust skrifaði:westernd skrifaði:svona? sýnist þetta ekki líta vel út
Ef þessar 80° er hitatalan fyrir CPU hjá þér, þá er í raun ótrúlegt að vélin sé í gangi.
Ég 99,9% viss að temp3 sé skjákortið hjá honum. Temp3 hjá mér er að "keyra" (Voðalega eru sumir viðkvæmir fyrir enskuslettum) á svipuðum hita. Temp1 held ég að sé örgjörvinn.
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 15:02
af Moldvarpan
Ég er ekki að hneykslast á þér vinur. Þú getur bara hæglega skemmt ákveðna íhluti ef þeir eru að fara í 80°hita, það væri súrt að skemma nýju tölvuna.
Við vitum ekki hver þekking þín er á tölvum/tölvuviðgerðum, þess vegna er öruggasta leiðin að tala við einhvern sem getur kíkt á þetta hjá þér. Það að sjá texta á netinu eða tölvuvandann með berum augum er tvennt ólíkt.
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 15:05
af beggi90
westernd skrifaði:jáá þá hneykslist þið á mér að ég setti bara örgjörvaviftuna sem fylgdi sem var með kælikremi á
Kælingin hlýtur að vera laus ef örrinn er í 80° í lítilli vinnslu...
Ef þetta er skjákortið athugaðu hvort viftan sé ekki að snúast almennilega. Man eftir svipuðu þar sem það var snúra sem var í viftublaði hjá gaurnum

Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 15:06
af dori
Svakalega eru fáar hitatölur þarna hjá þér m.v. að þetta sé hex core (er þetta ekki? ég fylgist ekki með AMD).
Ertu til í að sækja
speecy og pósta mynd úr því líka?
Ég myndi kaupa mér nýjan harðan disk. Ekkert endilega SSD (þú vilt það, en það er kannski ekki innan budget) en allavega taka 7200 rpm disk. Ég mæli annars með ~60GB SF-1200 ssd diskunum. Þeir kosta um 20 þúsund og eru mjög góðir. Eða jafnvel einhvern af nýju Sandforce Sata3 diskunum (það er samt orðinn peningur).
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 15:07
af westernd
samkvæmt google þá er temp3 skjákortið, og meiri segja i leitinni sá ég að margir séu að lenda i þessu veseni, ætla að skoða þetta betur þegar ég kem aftur heim, pósta þessu þá öllu saman
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 15:09
af Moldvarpan

Þetta eru mínar hita tölur á þessari tölvu, þetta er X4 955, yfirklukkaður og með stock viftu, nánast idle.
Re: Ný tölva laggar við ræsingu forrita etc
Sent: Fim 28. Apr 2011 15:25
af MarsVolta
Ég gerði smá leit á netinu og þetta er algengt vandamál með Gigabyte móðurborðin. Sem sagt hitatölurnar sem þú ert að fá út úr svona forritum eins og SpeedFan eru ekki marktækar. Forritin eru að fá allt aðrar tölur en raunhitinn á íhlutum hjá þér er. Ég er með Gigabyte móðurborð(GA-MA770-UD3), og ég er að fá nánast nákvæmlega sömu tölur og þú ert að fá, nánast uppá gráðu

.