Sælir,
Ég hef ekki haft borðtölvu sjálfur í mörg ár, en nú er ég að hugsa um að setja aðeins öflugri örgjörva í tölvu móður minnar. Móðurborðið er
MSI KM3M-V, AMD Socket A. Örgjörvinn er AMD Duron 1800. Ég ætla ekki að kaupa nýtt móðurborð, það tæki því ekki, tölvan er lítið notuð. Ég ætla bara að sjá hvort ég rekist á gamlann Athlon XP örgjörva til að stinga í í staðinn.
En Duron örgjörvinn keyrir með FSB upp á 266 MHz og þarf 1.5 volta spennu. Athlon XP örgjörvarnir keyra hins vegar margir með FSB 333 MHz og allir hærri spennu. Ef ég tæki Duron örgjörvann úr og setti in Athlon XP örgjörva, myndi móðurborðið þá breyta FSB og Vcore af sjálfu sér strax og það skynjar hvernig örgjörvi er tengdur?
Ef þetta er vitlaus flokkur til að spyrja svona spurningu þá færa stjórnendur bara þræðinum.
Takk fyrir hjálpina,
Kristinn
Breytir móðurborð helstu stillingum sjálft við uppfærslu?
-
KristinnK
Höfundur - Gúrú
- Póstar: 590
- Skráði sig: Sun 03. Apr 2011 00:28
- Reputation: 116
- Staða: Ótengdur
Breytir móðurborð helstu stillingum sjálft við uppfærslu?
AMD Ryzen 5 5600X | 2x16GB DDR4 | 1TB Sata SSD | AMD Radeon RX 580
Re: Breytir móðurborð helstu stillingum sjálft við uppfærslu?
Tekur því nú ekki að uppfæra örgjörvan í þessari vél.. en til að svara spurningunni, já ef að þetta móðurborð styður Athlon örgjörva þá á þetta bara að vera plug n play.
Ryzen 2600x - 24GB 2400MHz DDR4 - Phoenix GTX 1080 GLH 8GB - Gigabyte B450M DS3H