Síða 1 af 1
Benchmark á GeForce4 MX 440?
Sent: Mán 12. Apr 2004 15:24
af ErectuZ
Getur einhver hjálpað mér að finna benchmark á GeForce4 MX 440. Eða bara betra, segja mér hve gott það er. Helst vs GeForce FX5600XT 256mb. Takk takk.
Sent: Mán 12. Apr 2004 15:31
af axyne
Sent: Mán 12. Apr 2004 17:00
af wICE_man
Á toms hardware er reyndar ekki tekið 5600XT en til að fá réttar tölur fyrir það þá er nokkuð nærri lagi að taka skorið hjá GF FX 5600 og deila í með 1.3, t.d. fyrir UT2003 þá er það: 46.5/1.3 = ca. 36fps.
Þessi formúla passar bæði fyrir venjulegar og AF/AA niðurstöður.
Vonandi er einhver hjálp í þessu.
Sent: Mán 12. Apr 2004 18:36
af ErectuZ
Ok, þetta hjálpaði eitthvað...En hvort myndið þið segja öflugra/betra? GeForce FX5600XT 256mb eða GeForce4 MX 440. Ég er nefnilega að pæla í að selja mitt 5600XT og kaupa mér Radeon 9600XT í staðinn. Eitt af áhugasama fólkinu er með GeForce4 MX 440 og ekki vil ég vera að selja honum lélegra kort. Mig vantar bara að vita þá hvort er betra? Ég tók líka eftir því á toms hardware að MX 440 styðji bara DX7...Er þetta þá "good deal" fyrir hann að kaupa þetta kort í staðinn fyrir hans MX 440?
Sent: Mán 12. Apr 2004 18:45
af axyne
ég er með gf 440 mx og keypti mér geforce 5600 í fyrra en seldi það síðan.
5600XT kortið er betra.
Sent: Mán 12. Apr 2004 18:49
af ErectuZ
Ég er að tala um 5600XT. Það er ekki jafngott og standard 5600...Er jafnvel XT betra en GeForce MX440?
Sent: Mán 12. Apr 2004 19:02
af wICE_man
Það er aðeins betra í öllum leikjum og mun betra með AA/AF stillingar á. Auk þess sem 5600XT styður DX9.0, þ.a. það er sæmileg uppfærsla frá mx440 ef maður fær það ódýrt, málið er að þau eru allt of dýr út í búð. En fyrir 8-9000 kall þá væri 5600XT alveg sæmileg kaup.
Sent: Þri 20. Apr 2004 12:25
af Minuz1
Rainmaker skrifaði:Ég er að tala um 5600XT. Það er ekki jafngott og standard 5600...Er jafnvel XT betra en GeForce MX440?
Geforce MX 440 eru "celeron" kortin frá nvidia.....þetta eru einhver Geforce 2 kort sem er búið að "uppfæra"
Spurningin gæti alveg verið "Hvort er betra Intel 286 SX 2500 eða Intel Pentium 4 Prescott.

Sent: Þri 20. Apr 2004 13:04
af wICE_man
Nei Minuz1, bæði þessi kort eru/voru "Celeron" kort nvidia, þ.e. ódýrari týpur, þetta er eins og munurinn á P3 Celeron og P4 Celeron.
Alveg stórkostlegt að lesa svona vitleysu
