Síða 1 af 1

Fína Fartölvu fyrir ekki of mikinn pening.

Sent: Fös 15. Apr 2011 22:57
af Ingi90
Sælir drengir

Er að leita að flottri fartölvu fyrir ekkert of mikinn pening

Þarf ekkert að vera nein geimskutla , Ekki yfir 115-120 Þúsund

Enga risa skjái

Þarf að virka vel bara í þessa Normal vinnslu

Facebook - Msn - Itunes - Photoshop kannski smá - og fl.

Þetta er fyrir 13/14 ára stelpu , Þyrfti alveg að vera flott tölva en ekkert algjört möst

Þekki svo lítið til svona véla að þið gætuð kannski aðstoðað & komið með nokkrar sem hægt er að velja úr

Afsakið Stafsetningarvillur

Með Bestu Kveðju

Ingi Hrafn.

Re: Fína Fartölvu fyrir ekki of mikinn pening.

Sent: Fös 15. Apr 2011 23:23
af Glazier
Mundu bara að hafa þetta í huga: http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett ... =70&page=2

Re: Fína Fartölvu fyrir ekki of mikinn pening.

Sent: Lau 16. Apr 2011 01:16
af pattzi

Re: Fína Fartölvu fyrir ekki of mikinn pening.

Sent: Lau 16. Apr 2011 02:46
af Hargo
Myndi þó ekki taka þessa könnun of bókstaflega þó hún sýni kannski einhverja heildarsýn. Allar týpur og línur eru þarna settar í sama flokkinn undir framleiðanda. Ef ein vörulína er með háa bilanatíðni þá skekkir það niðurstöðurnar fyrir allt vörumerkið. Til dæmis ef að Lenovo Ideapad vélarnar eru með háa bilanatíðni, þá þýðir það ekki að Lenovo business vélarnar falli í sama flokk.

Sama hvaða merki þú færð þér þá geta öll raftæki bilað. Um að gera að vera safe og taka 3 ára ábyrgð ef hún býðst sama hvað varan heitir.