Síða 1 af 1

Að mála skjá.

Sent: Sun 11. Apr 2004 14:24
af Sveinn
Ég var að spá, því ég er að fara fá mér nýja tölvu og svona, og ég er með hvítann skjá, en turnkassinn er svartur og lyklaborðið líka og mér langar einhvernvegin að hafa þetta í stíl, og í stíl, þá dettur mér fyrst í hug svona litinn, ég var að spá ef ég ætla að mála skjáinn svartann, verð ég þá að fínpússann eitthvað og eitthvað dót og svo mála eða eitthvað?
- Á ég kanski að láta bara einhvern málara eða einhvern vanann gera það fyrir mig?

Sry fyrir stafsetningarvillur :P

Sent: Sun 11. Apr 2004 15:49
af ErectuZ
Keyptu þér bara svartann skjá! Hehe

Sent: Sun 11. Apr 2004 15:50
af ErectuZ
En ef þú ætlar að mála hann, passaðu þig þá bara að nota ekki málningar*rúllu* :P

Svo *held* ég að það sé best að nota bara spreybrúsa

Sent: Sun 11. Apr 2004 15:51
af MJJ
Kauptu bara plastic spray útí næstu málningarbúð í þeim lit sem þú vilt, skrúfaðu skjáinn í sundur, taktu allt gummsið farðu með það inní eitthvað herbergi sem er vel loftræst og þrífðu plastið vel með White Spirit eða einhverju alchoholi, farðu svo nokkuð langt frá með brúsann og sprayaðu þunnt yfir allt, leyfðu þessu svo að þorna 15 mín or some, farðu svo aftur og sprayaðu þunnu yfir og láttu þorna og svo kolla af kolli, aðaltrickið er að sprauta þunnt í einu langt frá því annars vilja myndast hæðir og fellingar, láttu svo þorna vel og skrúfaðu saman