Síða 1 af 1

Flasha bios 6850 problemó(FIX´d)

Sent: Þri 22. Mar 2011 22:58
af mundivalur
Jæja reynslu boltar,ég var að fikta flashaði bios á gigabyte 6850oc átti auðvitað að fara í 6870 en nei focking no signal,vifturnar byrja að snúast og stoppa svo .......
Hvaða ráð eru til við því, er hægt að setja annað skjákort í hina raufina og flasha til baka??
Hjaalp :megasmile

Re: Flasha bios 6850 problemó

Sent: Þri 22. Mar 2011 23:01
af Predator
er hægt að flasha 6850 í 6870?!?! aldrei heyrt um það

Re: Flasha bios 6850 problemó

Sent: Þri 22. Mar 2011 23:14
af mercury
http://hardforum.com/showthread.php?t=1562148
er hægt á sumum kortum en ekki öllum.

Re: Flasha bios 6850 problemó

Sent: Þri 22. Mar 2011 23:59
af donzo
Ekki hægt að flasha 1GB versionið af 6950 yfir í 6970, bara 2GB

Re: Flasha bios 6850 problemó

Sent: Mið 23. Mar 2011 00:34
af Bioeight
Er ekki einhver backup bios í nýjum kortum? Ég þekki það ekki nógu vel. Eina sem mér dettur í hug að gera er að prófa að nota ATi Radeon Bios Editor. Ég gat í það minnst flashað BIOSinn á kortum í báðum PCI-E raufunum. RBE notar síðan annað forrit til að flasha, en mér fannst þægilegast að gera þetta í gegnum RBE. Það voru einhver vandræði með það en ... þetta ætti að vera mögulegt, verður þá að vera með upprunalega BIOSinn samt eða réttan BIOS fyrir þetta kort. Endilega láta vita hvort þetta virkar. Annars hlýtur að vera hægt að leysa þetta einhvern veginn.

Re: Flasha bios 6850 problemó

Sent: Mið 23. Mar 2011 19:42
af mundivalur
Geta tölvuverkstæði flashað kortið aftur til baka ??
Það er ekkert signal frá kortinu,en vifturnar snúast til að byrja með og stoppa svo... :face


Ég sem þið hefðuð prufað allt :dissed

Re: Flasha bios 6850 problemó

Sent: Mið 23. Mar 2011 21:46
af Bioeight
Það sem ég myndi gera: Setja annað skjákort í hina raufina, ná í ATi Radeon BIOS Editor, ná í WinFlash(takki fyrir það inní ATi Radeon BIOS Editor), síðan þarf að setja Path to Winflash inn(directory á drifi), finna kortið sem virkar ekki í RBE, flasha það með upprunalega BIOSnum(ef það er ekkert backup þá gæti þetta: http://www.techpowerup.com/vgabios/88435/Gigabyte.HD6850.1024.101110.html virkað). Radeon BIOS Editor er ágætlega þægilegt forrit og auðvelt að nota, til að velja á milli korta ferðu í Acquire/flash og þá áttu að geta valið á milli Adapter 0 eða Adapter 1, þú verður að vita hvor það er. Ef þetta virkar ekki þá þarf bara að skoða eitthvað annað. Tölvuverkstæði hljóta að geta flashað BIOS á svona kortum en þau hljóta að rukka eitthvað fyrir það.

Re: Flasha bios 6850 problemó

Sent: Lau 26. Mar 2011 14:15
af mundivalur
Takk fyrir svörin Bioeight :happy
Þetta er komið í lag,með þrjósku hafðist þetta :megasmile
Dl bios frá techp. og renndi honum í gegnum RBE fyrst
Notaði Atiflash og gerði usbboot til að fara í gamla Dos.

Og hvað má læra af þessu EKKI vera svona helvíti fljótfær ](*,)
+Gigabyte 6850OC er með harð læst fyrir volt breytingar en Gib.6850 not OC er með opið fyrir það :thumbsd