Síða 1 af 1

Viðgerð á PS3

Sent: Mán 21. Mar 2011 22:15
af FriðrikH
Ætlaði að fara að kveikja á PS3 tölvunni áðan þá bara blikkaði ljósið og svo bíðaði hún 3svar. Skilst að þetta sé hið svokallaða YLOD. Vélin er ekki í ábyrgð lengur. Spurningin mín er, borgar það sig að fara með PS3 tölvur í viðgerð, og ef svo er, hvert mæla vaktarar þá með að maður fari?

Re: Viðgerð á PS3

Sent: Mán 21. Mar 2011 23:36
af JohnnyX
Gera þetta bara sjálfur með hitabyssu. Virkaði fyrir mig. Það er samt engin langtíma viðgerð, en hún kostar ekkert!

Edit: Get reynt að grafa upp guide-a sem ég notaði ef þú hefur áhuga

Re: Viðgerð á PS3

Sent: Þri 22. Mar 2011 21:01
af FriðrikH
Þakka svarið Johnny, rakst á þetta á psx.is: http://www.psx.is/forums/topic/37243-ps3-ylod/page__p__174781__hl__ylod__fromsearch__1#entry174781

Er að hugsa um að hafa samband við gaurinn og sjá hvort hann geti reddað málunum,

Re: Viðgerð á PS3

Sent: Þri 22. Mar 2011 22:15
af Hargo
Strippaðu tölvuna í sundur. Skelltu móðurborðinu í forhitaðan ofn við 185°C í 10. mín. Hreinsaðu gamla kælikremið af og settu almennilegt stuff á CPU og GPU (Arctic Silver til dæmis). Mín hefur gengið í ár eftir að ég bakaði hana. Tölvan er í mjög mikilli notkun á þessu heimili þar sem vélin er einnig notuð fyrir áhorf á bíómyndum/þáttum af harða disknum.

Re: Viðgerð á PS3

Sent: Þri 22. Mar 2011 23:04
af JohnnyX
Hargo skrifaði:Strippaðu tölvuna í sundur. Skelltu móðurborðinu í forhitaðan ofn við 185°C í 10. mín. Hreinsaðu gamla kælikremið af og settu almennilegt stuff á CPU og GPU (Arctic Silver til dæmis). Mín hefur gengið í ár eftir að ég bakaði hana. Tölvan er í mjög mikilli notkun á þessu heimili þar sem vélin er einnig notuð fyrir áhorf á bíómyndum/þáttum af harða disknum.


Fer það ekki illa með eitthvað annað á móðurborðinu? Mismundandi málmar = mismunandi bræðslumark.
Bara að pæla

Re: Viðgerð á PS3

Sent: Mið 23. Mar 2011 09:25
af Benzmann
FriðrikH skrifaði:svo bíðaði hún 3svar.


what ?

Re: Viðgerð á PS3

Sent: Mið 23. Mar 2011 10:55
af CraZy
Félagi minn lenti í þessu og hann notaði hitabyssu til að redda þessu, hefur gengið síðan.

Re: Viðgerð á PS3

Sent: Mið 23. Mar 2011 18:23
af Hargo
JohnnyX skrifaði:Fer það ekki illa með eitthvað annað á móðurborðinu? Mismundandi málmar = mismunandi bræðslumark.
Bara að pæla


Á ekki að gera það. Þetta er ekki alltaf hægt með öll móðurborð þar sem sum eru stútfull af þéttum eins og t.d. Xbox móðurborðin. Þar verður maður alltaf að brúka hitabyssuna.

Re: Viðgerð á PS3

Sent: Mið 30. Okt 2013 07:32
af gr00ve
I do reballing for consoles, laptops, and everything else.
let me know if you need help. quality work.

--------------------------------------------------------------
Viðgerðir -- PS3 XBOX WII -- Viðgerðir
http://www.elerepair.net
Viðgerðir -- PS3 XBOX WII -- Viðgerðir
--------------------------------------------------------------