Síða 1 af 1
Nýja skjákortið mitt
Sent: Fim 17. Mar 2011 23:35
af bulldog
Þá er ég búinn að komast að lendingu með nýtt skjákort á skynsamlegu verði og það var PNY NVIDIA GeForce GTX460 XLR8 1024MB, 2xDVI-I & Mini-HDMI sem varð fyrir valinu og kostar það 33.900 krónur hjá Tölvutækni. Ætti þetta kort ekki að geta keyrt alla nýjustu leikina hnökralaust ? Endilega kommentið á þetta en ég fæ kortið á mánudag-þriðjudag. Mig langaði til þess að fara í gtx570 en það var of mikið fyrir minn fjárhag í einum bita.
Endilega kommentið á þetta.
Re: Nýja skjákortið mitt
Sent: Fös 18. Mar 2011 02:23
af Klaufi
Ég átti svona kort í minni tölvu og var alls ekki óánægður..
Fannst það alveg frábært þangað til ég fékk mér 6870, vatnskæliblokk og yfirklukkaði það í döðlur

Re: Nýja skjákortið mitt
Sent: Fös 18. Mar 2011 08:23
af bulldog
á þetta ekki alveg að duga í nýjustu leikina ?
Re: Nýja skjákortið mitt
Sent: Fös 18. Mar 2011 08:30
af Benzmann
hví ekki fá sér 560 kort í staðinn ?

eða 2 x 550 í SLI þegar þau koma til landsins, ef móbóið þitt styður það ?
Re: Nýja skjákortið mitt
Sent: Fös 18. Mar 2011 09:39
af Frost
GTX 460 er fínt kort í leikina. Getur einnig seinna uppfært í SLI og það er mjööööög gott performance sem kemur út úr því. Til hamingju með nýja kortið

Re: Nýja skjákortið mitt
Sent: Fös 18. Mar 2011 10:48
af bulldog
takk fyrir það..... helvítis kreppan leyfir mér ekki að fara í dýrara kort. Tölvan komin í 300 þús með öllu núna.... auðvitað langar manni alltaf í meira en fæ mér kannski svo bara annað alveg eins kort seinna.