Síða 1 af 1

heimabíótölva

Sent: Þri 06. Apr 2004 10:30
af °°gummi°°
ég er að fara að setja saman ódýra heimabíótölvu, einhverjar pælingar?

frá att:
MSI barebone 24þ.
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... cts_id=109
+celeron 2,4 400fsb 7þ
+256MB ddr400 4þ
+svart combo 7þ
+creative hátalarar 5+1 10þ (hvernig er þetta að virka?)
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... cts_id=325
+Kworld TV 878 8þ

frá task:
80GB barracuda 9þ

samanlagt er þetta sirka 70þ
hvað finnst ykkur um þetta, þessi tölva verður ekki í neinu dc dl þannig að það mun aldrei fara stærri diskur í hana.
hefur einhver keypt svona kassa, vitið þið hversu hljóðlátt þetta drasl er?
svo sé ég ekkert um örrakælingu í þessu tilboði, maður þarf sennilega að bæta henni við, spurning hvað af sæmilega hljóðlátum kælingum passar í svona ræfilslegan kassa...

akuru annað hljóðkort

Sent: Þri 06. Apr 2004 10:43
af Sillyman
smá aula spurning afhverju ertu að setja annað hljóðkort í vélinna það fylgir með einhvað dolby 5.1 á móðurborð.

Sent: Þri 06. Apr 2004 11:01
af °°gummi°°
ahhh, sorry, my bad, þetta Creative5+1 er ekki hljóðkort , þetta eru hátalarar:
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... cts_id=325
(best að laga þetta)

Sent: Þri 06. Apr 2004 11:11
af skipio
Flest hljóðkort á móðurborðum eru með mjög slæmum hljómgæðum. Ef þú ætlar aðeins að nota SPDIF-tengið og tengja við heimabíómagnara skiptir það litlu máli en annars skiptir það talsverðu máli. M-Audio Revo er besta heimabíóhljóðkortið en ég myndi samt athuga hvort þú komist af með móðurborðshljóðkortið svona fyrst um sinn þar eð þú vilt eyða litlum penge í þetta.

Og svona litlir hátalarar eru hörmung sem heimabíóhátalarar. Þeir ganga hinsvegar alveg upp í litlu herbergi ef þú ert mjög nálægt hátölurunum (fyrir framan tölvuna) en varla annars.

Ég prófaði mína litlu Microworks og PCWorks hátalara með sjónvarpinu. Gekk alls ekki upp - og það þrátt fyrir það að Microworks eru talsvert stærri og betri en þessir sem þú ert að spá í.

Sent: Þri 06. Apr 2004 11:40
af xpider
http://www.att.is/product_info.php?cPath=93_104&products_id=812 afhverju ekki að fá sér þessa, þá geturðu hent græjunum líka! með þessu er hægt að spila geisladiska án þess að keyra upp stýrikerfið + þá er þettta með litlum skjá sem segir á hvaða tracki þú ert og svoleiðis!?!? (bara hugmynd)
en eitt, hvað er þessi kassi sem þú ert að spá í stór í cm?

Sent: Þri 06. Apr 2004 13:30
af wICE_man
NEEEEIIIIII ekki celeron!!!!

Bara smá djók :wink: hann dugar ágætlega í dvd playback, but that's about it :lol:

Fáðu þér bara ódýrasta minni sem þú getur, mér skilst að Celeron noti ekki meir en 266MHz DDR, svo að það gerir ekkert til þó það sé ekki 333/400MHz, leitaðu frekar að minni með CAS 2, það borgar sig frekar, ég mæli með muskhin hjá Start eða tölvuvirkni.

Annars hef ég ekkert út á þetta að setja.

Sent: Þri 06. Apr 2004 16:14
af °°gummi°°
xpider skrifaði:http://www.att.is/product_info.php?cPath=93_104&products_id=812 afhverju ekki að fá sér þessa, þá geturðu hent græjunum líka! með þessu er hægt að spila geisladiska án þess að keyra upp stýrikerfið + þá er þettta með litlum skjá sem segir á hvaða tracki þú ert og svoleiðis!?!? (bara hugmynd)
en eitt, hvað er þessi kassi sem þú ert að spá í stór í cm?

jú þetta er frekar freystandi, en ég treysti þessu bara ekki alveg, grunar að þetta verði aldrei mjög skemmtilegt - svo er þetta butt ugly ;o)

Sent: Þri 06. Apr 2004 19:05
af Nemesis
Butt ugly hvað? Flottara en þetta sem þú ætlar að kaupa :p

Sent: Mið 07. Apr 2004 18:47
af °°gummi°°
en hvernig er það, eru til einhverjir affordable þráðlausir sendar.
Þannig að maður geti verið með tölvuna inni í svefnherbergi og sent sjónvarpsmerkið (og hljóðmerkið) í sjónvarpið... og þá þyrfti maður væntanlega líka svona 10þ kr RF fjarstýringu...

Sent: Fim 08. Apr 2004 14:43
af andr1g
Kaupa sér Xbox og modda hana! Kostar um 30-40 k
http://www.geocities.com/ahorfandi :8)

Sent: Fim 08. Apr 2004 15:31
af skipio
°°gummi°° skrifaði:en hvernig er það, eru til einhverjir affordable þráðlausir sendar.
Þannig að maður geti verið með tölvuna inni í svefnherbergi og sent sjónvarpsmerkið (og hljóðmerkið) í sjónvarpið... og þá þyrfti maður væntanlega líka svona 10þ kr RF fjarstýringu...


Ég hef prófað svona Philips þráðlausan sendi, sem kostaði um 13.000 kr., og þótt myndgæðin séu ásættanleg myndi ég ekki vilja nota hann ef ég þyrfti þess ekki nauðsynlega. Miklu betra að leggja bara langar S-video og hljóðsnúrur þótt það sé að sjálfsögðu smá vesen, eða þá að hafa bara tölvuna hjá sjónvarpinu (eða bara fá sér venjulegan DVD-spilara).
Ég myndi ekki kaupa þessa rándýru fjarstýringu hjá Task heldur miklu frekar panta að utan, Vendur.no er besti staðurinn til að kaupa tölvufjarstýringar og ódýr í þokkabót (ath. að norskur vsk. dregst frá verðunum á síðunni.) - http://www.vendur.no/catalog/index.php?cPath=1
Þú athugar þó, að ef þú skyldir kaupa svona þráðlausan myndsendi að þá er innifalið í þeim áframsendir fyrir innrautt merki svo þú þarft ekkert RF-fjarstýringu.

Ég myndi alls ekki kaupa mér svona X-box til að nota fyrir video. Held það sé vesen að nota xvid og fleiri codec með því. Svo er þetta ekkert ódýrara. X-box er sniðugt fyrir leiki hinsvegar - þótt þeir kosti reyndar sitt.