Síða 1 af 1
256 og 128mb
Sent: Fös 02. Apr 2004 13:07
af ErectuZ
Skiptir það nokkuð miklu að ég sé með 256mb skjákort frekar en 128mb ef ég er með 19" skjá? Ég er nefnilega að fara að kaupa mér skjákort og ég var að pæla í þessu.
Sent: Fös 02. Apr 2004 21:40
af gnarr
nei.. nákvæmlega engu. getur keyrt allt það nákvæmlega sama á þessum 19" skjá og á 13" skjá.. hinsvegar er bara spurning með leiki með stór og þung texture, hvort þú getir keyrt þá í fullum gæðum. ég veit ekki hvað leikir nú til dags eru að nota af minninu.
kanski einhver snillingur (eins og td ICman) um tölvuleiki fræði okkur um það

Sent: Lau 03. Apr 2004 10:51
af wICE_man
Hver er þessi ICman???
Ég hef aldrei séð leikja-benchmark sem fær eitthvað almennilegt stökk í afkastagetu hjá 256MB kortum umfram þau 128MB, kanski mun þetta breytast eitthvað með leikjum í framtíðinni, en enn sem komið er þá er það bara aukakostnaður og ég hef ekki heyrt að Half-life 2 eða Doom 3 noti (eða græði mikið á) meira skjákortsminni.
Hinsvegar nota framleiðendur stundum hægvirkara minni í 256MB kortin svo það gerir valið enn auðveldara.
Sent: Lau 03. Apr 2004 11:12
af Arnar
IceCaveman
Sent: Lau 03. Apr 2004 19:36
af Hlynzi
Ég hef bara heyrt og lesið að 128 mb og 256 mb séu ekki að skila neinu í leikjunum núna, kannski 1-4 fps, sem er ekki þess virði að eltast við. Svo verður nú að segjast að þegar það eru 60 fps þá geta menn ekki séð muninn.
Sent: Lau 03. Apr 2004 20:22
af Nemesis
Það er mjög mikill munur á 80 og 100 fps í leikjum, og munurinn á 100 fps og 120 fps sést líka greinilega, ekki spyrja mig af hverju, en maður finnur bara fyrir því.
Prófaðu t.d. að skipta á milli 60Hz og 120Hz á skjánum, þú finnur greinilegan mun. Ef skjárinn er hins vegar á 60Hz og fps er hærra en 60 finnst ekki munur, þú sérð aldrei fleiri ramma en Hz tíðni skjásins segir til um.
Sent: Sun 04. Apr 2004 04:19
af wICE_man
Það er heldur ekki "average frame rate" sem skiptir máli heldur "min frame rate", þ.e þegar mest reynir á skjákortið. En jafnvel þar er munurinn á 128MB kortum og 256MB harla lítill.