Síða 1 af 1

Mjög Furðulegt tölvuvandamál..

Sent: Þri 22. Feb 2011 22:46
af Black
ég er að lenda í mjög furðulegu vandamáli með eina tölvu hérna, hún startar bara með svörtum skjá, ég náði að starta henni fyrir klukkutíma og þá komst ég ekki lengra en í windows startið, og það fraus þar, ég setti annan harðadisk í hana sem er alveg clean, og reyndi að starta, en þá gerist annað núna kemst ég ekki einusinni í bios hún startar hún er bara í gangi en blackscreen gengur á hröðum snúning en ekkert gerist, ég er búinn að taka vinnsluminnin og setja í aðrar raufar þetta eru ný minni, ég er búinn að taka skjákortið úr og hreinsa það og setja það í aftur ég er búinn að restarta cmos ef ég slekk síðan á tölvuni þá kveikir hún á sér aftur sjálf :I ég næ ekki að formata eða neitt hvað gæti mögulegae verið að! :-$

specs intel pentium D,Geforce 6800 eða einhvað svoleiðis, 4gb corsair vinnsluminni ég er búinn að prufa bæði tenginn dvi og vga á skjákortinu

Re: Mjög Furðulegt tölvuvandamál..

Sent: Þri 22. Feb 2011 22:48
af toybonzi
Prufaðu að hafa bara eitt minni í vélinni í einu. Þetta lýsir sér alveg eins og slíkt vandamál eða jafnvel að örrinn hafi farið í rugl.

Re: Mjög Furðulegt tölvuvandamál..

Sent: Þri 22. Feb 2011 22:57
af Klemmi
MSI móðurborð? Ef svo er skýt ég á það ;)

Neinei, líklegast eitthvað funky móðurborð eða aflgjafi út frá bilanalýsingunni.

Re: Mjög Furðulegt tölvuvandamál..

Sent: Þri 22. Feb 2011 23:00
af Black
toybonzi skrifaði:Prufaðu að hafa bara eitt minni í vélinni í einu. Þetta lýsir sér alveg eins og slíkt vandamál eða jafnvel að örgjörvinn hafi farið í rugl.



jæa ég prufaði annað skjákort núna bootar vélinn upp og ég fékk upp einhvað raid dæmi,, sýnist hún virka þá ætla ég bara henda inn ubuntu 10.10 :evillaugh