Síða 1 af 2

örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 19:33
af DK404
Ég held að örgjörva kælingin hjá mér er biluð var að spá ef hún er biluð gæti það tengst því að tölva sé að chrasha ? eða þarf það vera eithvað meira.

Tölvan sem ég er með í undirskrift er að lenda í þessu vandamáli að hún chrashar eftir að vera í gangi í nokkra daga og þegar ég starta aftur þá kemur continiue old seasion eða eða delete and start new one.

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 19:36
af biturk
kælingin getur ekki verið biluð

en kælikremið getur verið orðið lélegt eða ónýtt, viftan getur verið lélegt eða ónýt og síðann getur kælingin setið vitlaust á

taktu nú coverið af og tjekkaðu hvort viftann snýst og hvort hún blási eitthvað af viti eða sé hávaðasöm

og skoðaðu líka hitann á örgjörvanum, settu eitthvað monitor forrit upp sem mælir hitastig og skráir svo þú sjáir í hvaða hita hann er þegar hann crashar


síðann getur þetta líka verið eitthvað allt allt annað og það auðveldlega, gæti verið vírus til dæmis,- scannaðu tölvuna

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 19:37
af BjarkiB
Geturu útskýrt vandamálið aðeins betur?
Veistu hvort hún sé að ofhitna? Reyndu eitthvað smá á tölvuna og mældu hitann með forriti eins og HWmonitor.

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 19:41
af DK404
Þegar það slökkar á tölvunni fyrst og ég kveiki aftur virkar viftan ekki og það kemur appelsínugult ljós á móðurborðið.

slekk á tölvunni og kveiki aftur gerist það sama svo í þriðja sinn þá kviknar á henni og það kemur þessi spurning sem ég sagði ofar "delete and star new seasion eða continue old seasion"

Mynd af hita.

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 19:46
af Benzmann
örgjörva hitinn er allavegana á mjög góðum stað

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 19:47
af andribolla
Þarftu ekki bara að taka Hibernation af ?

held að þetta "continiue old seasion eða eða delete and start new one." komi ekki nema þú sért með hana svoleiðis

--- þu hlítur að eiga eithverskonar met í að búa til nýja þræði, hvað ertu búin að gera marga frá því þú byrjaðir her ?

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 19:49
af Klaufi
andribolla skrifaði:Þarftu ekki bara að taka Hibernation af ?

held að þetta "continiue old seasion eða eða delete and start new one." komi ekki nema þú sért með hana svoleiðis

--- þu hlítur að eiga eithverskonar met í að búa til nýja þræði, hvað ertu búin að gera marga frá því þú byrjaðir her ?


Shii.. 335 póstar á tæpum 20 dögum :wtf

Tæpir 17 póstar á dag.

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 19:49
af DK404
hvernig ték ég Hibernation af ?

Veit ekki hve marga þræði, vill bara læra þetta elska tölvur en er svakalegur byrjandi.

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 19:50
af HelgzeN
Fjöldi innleggja: 335

og hann Nýskráði sig á síðuna 2 Febrúar 2011. !!!

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 19:51
af DK404
Heyrðu plss on topic, vill fá tölvunna til að hætta að chrasha !

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 20:04
af Daz
Það er stundum stutt bil milli BjarnaTS og DK404 .

Ef tölvan krassar eftir nokkra daga þá er ekkert áhugavert að kælingunni. Þegar þú ert að kljást við vandamál, þá verður þú að lýsa þeim nánar, jafnvel miklu miklu nánar (s.s. hvert einasta skref og skjár osfrv.) Því fyrr sem þú getur lýst nákvæmlega því sem gerist, því fyrr er hægt að "laga" það sem er að.

Prófaðu að googla það sem þér er bent á ef þú skilur það ekki strax (og eða nota google translate, það þýðir t.d. heilar vefsíður í einu).

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 20:06
af DK404
Veit ekki því miður nákvæmlega hvað gerist, tölvan slekkur bara á sér og vill svo ekki kveikja á sér aftur, en maður nær að kveikja á heni aftur eftir nokkrar tilraunir.

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 20:11
af SolidFeather
Búinn að herpa derp?

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 20:18
af DK404
æi guð minn góður þarft ekki að láta eins og hálfviti, hélt að þessi síða ætti að fjalla um tölvur og allir að hjálpast að en svo eftir að maður verður lengur og lengur verða allir svakalega pirrandi og leiðinlegir.

ég vill bara fá hjálp er að reyna að lýsa þessu með bestu getu.

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 20:21
af Halli13
DK404 skrifaði:æi guð minn góður þarft ekki að láta eins og hálfviti, hélt að þessi síða ætti að fjalla um tölvur og allir að hjálpast að en svo eftir að maður verður lengur og lengur verða allir svakalega pirrandi og leiðinlegir.

ég vill bara fá hjálp er að reyna að lýsa þessu með bestu getu.


Alltaf svartir sauðir inn á milli .

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 20:25
af Daz
http://translate.google.com/#is|en|hvernig%20slekk%20ég%20á%20hibernation Google translate (er ekki alveg nógu sniðugt, en nógu líklega)
Google search

Vera sjálfbjarga, það pirrar fólk ef einhver er sífellt að krefjast þess að fá hjálp án þess að reyna að bjarga sér sjálfur.

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 20:26
af DK404
Fyrsta sinn þegar það slökknaði svona þá var tölvan að ná í windows update.

Hvernig tek ég Hibernation af

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 20:26
af Akumo
Hahaha þetta er best

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 20:40
af Daz
DK404 skrifaði:Fyrsta sinn þegar það slökknaði svona þá var tölvan að ná í windows update.

Hvernig tek ég Hibernation af


Kauptu þér Mac?

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 20:45
af Halli13
http://www.google.is/#hl=is&source=hp&b ... 598d15b68b

Getur ekki ætlast til að allir nenni að hjálpa þér endalaust og svo getur þú ekki googlað nokkur orð sjálfur [-X

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 20:55
af DK404
ok, þetta gerðist aftur þegar ég gerði þetta hibarnate dótið en nú gerði ég myndir.

Hættið að segja mér hvað ég ætti að kaupa mér og hættið með þessa stæla ! guð minn góður !

Mynd

Mynd

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 21:07
af DK404
ups, double post sorry

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 21:20
af andribolla
Er ekki bara hægt að haka eithverstaðar í svona "spam" Reit hjá þessum gæja?
svo maður sjái ekki innlegg frá honum ? :happy

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 21:22
af coldcut
andribolla skrifaði:Er ekki bara hægt að haka eithverstaðar í svona "spam" Reit hjá þessum gæja?
svo maður sjái ekki innlegg frá honum ? :happy


I'm looking into it!
DK404 skrifaði:æi guð minn góður þarft ekki að láta eins og hálfviti, hélt að þessi síða ætti að fjalla um tölvur og allir að hjálpast að en svo eftir að maður verður lengur og lengur verða allir svakalega pirrandi og leiðinlegir.

ég vill bara fá hjálp er að reyna að lýsa þessu með bestu getu.


þetta er ekki IT-hotline. Það er ætlast til að menn leiti sér upplýsinga á netinu en bombardi ekki bara endalausum spurningum og tilgangslausum innleggjum hérna inn!

Re: örgjörva kæling biluð ?!

Sent: Mán 21. Feb 2011 21:23
af DK404
Guð minn góður ég er bara að reyna að fá aðstoð, er búinn að googla en ekkert finnst og það sem fynnst er ég búinn að prófa og ekkert gagnast.