Síða 1 af 1

Hátalarar til að byggja inn í veggi ..

Sent: Sun 13. Feb 2011 00:18
af hagur
Sælir,

Er að spá í svona "in-wall" hátölurum ... helst hvítum. Vitið þið hvar svona fæst hérlendis?

Eitthvað á þessa leið ...

Mynd

Re: Hátalarar til að byggja inn í veggi ..

Sent: Sun 13. Feb 2011 00:22
af AntiTrust

Re: Hátalarar til að byggja inn í veggi ..

Sent: Sun 13. Feb 2011 00:39
af hagur
Takk!

Kannski full flottir og dýrir samt fyrir það sem ég ætla að nota þetta í.

Re: Hátalarar til að byggja inn í veggi ..

Sent: Sun 13. Feb 2011 00:45
af dori
Bose er með eitthvað svona. Ég sé reyndar ekkert nema Bose 791 á heimasíðu Nýherja og þeir kosta 120 þúsund parið. Hins vegar með því að lítast um á Google sér maður að það eru til Bose 191 sem kosta þriðjung af því sem 791 kosta svo það er eitthvað sem þú gætir spurt þá hjá Nýherja um (ef það er í þínum verðflokki).

Gætirðu annars ekki notað einhverja bílahátalara í þetta?

Re: Hátalarar til að byggja inn í veggi ..

Sent: Sun 13. Feb 2011 00:51
af Gúrú
hagur skrifaði:Takk!
Kannski full flottir og dýrir samt fyrir það sem ég ætla að nota þetta í.


Sturtuproject? :)

Re: Hátalarar til að byggja inn í veggi ..

Sent: Sun 13. Feb 2011 00:56
af kubbur
hmm, það gæti verið sniðugt að fella þá inn í hliðina á sjónvarpsskáp

í hvað ætlarðu annars að nota þetta ?

Re: Hátalarar til að byggja inn í veggi ..

Sent: Sun 13. Feb 2011 09:52
af hagur
Hehe ... nei, ekki sturtuproject.

Er að taka eldhúsið hjá mér í gegn frá A-Ö og er með tölvu þar sem er alveg falin og skjá uppá vegg. Þetta er tréveggur þannig að ég get auðveldlega falið allar snúrur inn í honum. Svo er ég með lítið 2.1 hátalarasett frá Logitech við þessa tölvu, en hátalararnir tveir sem fylgja því eru gerðir til að standa á borði og passa ekki alveg inn í pælingarnar hjá mér. Var að spá í að skipta þeim út fyrir svona litla innbyggða hátalara sem ég myndi bara fella inn í vegginn.

Ég er með þetta hér: http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=23945 þannig að ég þarf voðalega ómerkilega hátalara held ég til að matcha þá sem fylgja þessu.

Re: Hátalarar til að byggja inn í veggi ..

Sent: Sun 13. Feb 2011 10:08
af gardar

Re: Hátalarar til að byggja inn í veggi ..

Sent: Sun 13. Feb 2011 10:17
af axyne
Ég er að reyna að losna við Pioneer 13 cm bílhátalara.

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=67&t=33294&p=290050#p290050

Re: Hátalarar til að byggja inn í veggi ..

Sent: Sun 13. Feb 2011 10:23
af einarhr
Þarft þú þá ekki magnara fyrir svona hátalara? Ss úr tölvu í magnara og svo magnara til hátalara?

Re: Hátalarar til að byggja inn í veggi ..

Sent: Sun 13. Feb 2011 11:42
af topas
Getur þú ekki bara skrúfað þessa hátalara í sundur, tekið driverana úr, skrúfað þá í vegginn og keypt svo einhverjar smekklegar ristar/hlífar yfir. Færð líklega hlífar í íhlutum eða miðbæjarradío.

Re: Hátalarar til að byggja inn í veggi ..

Sent: Sun 13. Feb 2011 11:50
af Hauksi
JBL Spyro. Hugmynd að skemmtilegri lausn!

Hafa þessa hátalara hálf-innfelda, gæti lúkkað flott en gæti líka farið á hinn veginn.

Fást í nokkrum litum.

http://tl.is/vara/20662

Ódýrara í svörtu.

http://www.computer.is/vorur/1749/

Betri myndir.

http://www.ilounge.com/index.php/review ... er-system/

Gangi þér vel með eldhúsið.

Re: Hátalarar til að byggja inn í veggi ..

Sent: Sun 13. Feb 2011 12:14
af kubbur
gætir alveg rifið hátalarana innanúr þessu og notað þá

Re: Hátalarar til að byggja inn í veggi ..

Sent: Sun 13. Feb 2011 12:48
af axyne
Getur líka prufað að fara uppí rafport í kópavogi og skoðað lausnir frá WHD

WHD eru með pínkulitla innfelda hátalara sem passa eflaust vel við kerfið sem þú notar núna.
t.d þessir

Getur reyndar kostað eitthvað en ég held þú endir alltaf með að eyða eh af pening í þetta ef þú vilt kaupa nýja hátalara.

Re: Hátalarar til að byggja inn í veggi ..

Sent: Sun 13. Feb 2011 18:33
af hagur
Takk fyrir hugmyndirnar strákar ;-)