Síða 1 af 1

Álit á tölvu.. II

Sent: Mán 29. Mar 2004 23:32
af hubcaps
Sælir Vaktmenn!
Er að fara að henda saman vél, búinn að týna saman þetta helsta..

vill nú taka það fram að ég er ekkert að fara að yfirklukka eða neitt þessháttar, vantar bara trausta og hraða vél í kringum 100.000 kallinn. :)

Móðurborð: Asus P4R800V - Þetta móðurborð er á 14.900 hjá task.is, hef skoðað nokkur review um það og kemur alls ekki illa út.

Örgjörvi: Intel P4 3.00GHz - Er hjá Computer.is á 23.941. Ætti maður að fara eitthvað hærra ? lærra? annað?

Minni: 512MB DDR400, PC3200 - 2stk á 15.300 hjá @tt.is

HD: Samsung ATA-133 160GB 7200rpm 8MB buffer - 12.900 hjá task.is

Svo í sambandi við skjákort er ég eiginlega strand, það er innbyggt Radeon 9200 128MB skjákort á móðurborðinu og ég er svo gott sem aldrei í leikjum þannig ég veit ekki hvort ég hef eitthvað með stærri kort að gera. Er búinn að finna mér geisladrif, skjá, lyklaborð og allt í þeim dúr, vantar bara comment um innvolsið. :wink:

Sent: Þri 30. Mar 2004 00:53
af wICE_man
Þetta lýtur bara vel út, ég myndi samt frekar taka muskhin green line minni hjá Start eða Tölvuvirkni en eitthvað noname minni hjá Att.

Sent: Þri 30. Mar 2004 09:58
af xtr
Ég myndi frekar festa kaup á 2.8 Intel og rétt hjá hinum ágæta dreng hér fyrir ofan, ég myndi frekar taka annað minni en eitthvað noname minni hjá @tt.is. Hugsanleg minni OCZ,Muskhin eða annað :)

Sent: Þri 30. Mar 2004 13:25
af hubcaps
jámm, Mushkin DDR 512MB/3200 Blue Line á 9.815kr hjá Tölvuvirkni. Hljómar betur. :)

En hvað segið þið um skjákort, ég er alveg lost í þeim málum.. :|

Sent: Þri 30. Mar 2004 13:34
af wICE_man
Ef þú ert aldrei í leikjum þá nýtist innbyggða kortið þér ágætlega, það ætti að styðja upp í 1600X1200 upplausn.

Sent: Þri 30. Mar 2004 13:44
af axyne
wICE_man skrifaði:Ef þú ert aldrei í leikjum þá nýtist innbyggða kortið þér ágætlega, það ætti að styðja upp í 1600X1200 upplausn.


ég er með innbyggt skjákort Geforce 4 MX (á að vera svipað og 440)
hefur alltaf dugað mér.
spila Counter í 1024*768 í stable 100 fsp

er þannig sé samt ekkert í þessum þungu grafíkleikjum.
hékk mikið í GTA VC siðasta sumar. gat spilað hann alveg hökt laust.

þannig ég mæli ekkert á móti því að hafa innbyggt skjákort.

Sent: Þri 30. Mar 2004 15:06
af hubcaps
gott gott gott, þá fer maður bara að púsla á næstu dögum.. :wink:

Takk fyrir hjálpina

Sent: Þri 30. Mar 2004 17:51
af xtr
Fer bara eftir hvað þú ert að gera við tölvuna þegar þú velur skjákort