Síða 1 af 1
Ná gögnum af biluðum harða diski.
Sent: Fös 11. Feb 2011 23:44
af zdndz
Núna hef ég fengið verkefni að ná gögnum og af hörðum diski (2.5" og er alveg 7ára gamall). Ég hef aldrei farið á þetta svið, en ég veit sem sagt að nálin er eitthvað brotin. Hafiði einhver ráð fyrir mig eða bent mér á leiðbeiningar til að ná gögnum og hef það er hægt að laga harða diskinn. Eða þarf ég að láta einhverja pro gaura gera það fyrir mig?
Öll hjálp vel þegin

Re: Ná gögnum af biluðum harða diski.
Sent: Lau 12. Feb 2011 00:47
af AntiTrust
Uhm, ef nálin er brotin geturu pretty much gleymt þessu nema senda þetta út og borga hátt í sex stafa tölu fyrir.
Re: Ná gögnum af biluðum harða diski.
Sent: Lau 12. Feb 2011 00:52
af Haxdal
Hvernig veistu að nálin er brotin?.. búinn að opna diskinn?.
Ef þú ert búinn að opna diskinn þá ertu pretty much búinn að eyðileggja platterana og þ.a.l. gögnin sem voru á honum.
Heyrist svona klikk hljóð í disknum ? eitthvað í likindum við
Click of Death?
Ef þetta er click of death þá er annaðhvort PCB borðið ónýtt eða eitthvað inní drifinu. Ef eitthvað inní drifinu er ónýtt þá geturðu alveg gleymt því að ná í gögnin nema senda diskinn til útlanda og borga ágæta summu fyrir að recovera það sem er á platterunum. Ef þú átt alveg eins HD geturðu prófað að skipta um PCB borðið.
Hérna er gaur sem er að skipta um PCB borð í Maxtor disk.
Re: Ná gögnum af biluðum harða diski.
Sent: Lau 12. Feb 2011 00:55
af AntiTrust
Haxdal skrifaði:Hvernig veistu að nálin er brotin?.. búinn að opna diskinn?.
Ef þú ert búinn að opna diskinn þá ertu pretty much búinn að eyðileggja platterana og þ.a.l. gögnin sem voru á honum.
Ekki alveg, ég hef náð oftar en einu sinni að bjarga gögnum af diskum sem hafa verið opnaðir, alveg þvert á það sem maður hefur lesið og verið sagt.
Re: Ná gögnum af biluðum harða diski.
Sent: Lau 12. Feb 2011 01:02
af Haxdal
AntiTrust skrifaði:Haxdal skrifaði:Hvernig veistu að nálin er brotin?.. búinn að opna diskinn?.
Ef þú ert búinn að opna diskinn þá ertu pretty much búinn að eyðileggja platterana og þ.a.l. gögnin sem voru á honum.
Ekki alveg, ég hef náð oftar en einu sinni að bjarga gögnum af diskum sem hafa verið opnaðir, alveg þvert á það sem maður hefur lesið og verið sagt.
Nú, fínt að vita af því

. Samt varla ráðleggjandi að fólk sé að opna diskana að ástæðulausu, prófa fyrst allt annað.
Re: Ná gögnum af biluðum harða diski.
Sent: Lau 12. Feb 2011 01:21
af zdndz
félagi minn lét mig hafa hann, og hann sagði að nálin væri brotin eða allavega eitthvað er brotið inní honum, það heyrist bara, en ég var að spá ef maður sér nálina er þá sagt að maður hafi opnað harða diskinn?
Annars hafiði einhverjar ábendingar eða síður sem gætu hjálpað mér, eða er þetta bara fyrir fólk sem kann eitthvað í þessum efnum
Re: Ná gögnum af biluðum harða diski.
Sent: Lau 12. Feb 2011 13:42
af zdndz
zdndz skrifaði:félagi minn lét mig hafa hann, og hann sagði að nálin væri brotin eða allavega eitthvað er brotið inní honum, það heyrist bara, en ég var að spá ef maður sér nálina er þá sagt að maður hafi opnað harða diskinn?
Annars hafiði einhverjar ábendingar eða síður sem gætu hjálpað mér, eða er þetta bara fyrir fólk sem kann eitthvað í þessum efnum

Re: Ná gögnum af biluðum harða diski.
Sent: Lau 12. Feb 2011 13:49
af AntiTrust
Ef nálin er brotin eða skemmd, þá geturu held ég alveg örugglega gleymt þessu, segir sig sjálft þar sem íhluturinn sem les diskinn er þá ónýtur.
Re: Ná gögnum af biluðum harða diski.
Sent: Lau 12. Feb 2011 14:05
af zdndz
AntiTrust skrifaði:Ef nálin er brotin eða skemmd, þá geturu held ég alveg örugglega gleymt þessu, segir sig sjálft þar sem íhluturinn sem les diskinn er þá ónýtur.
okei og jafnvel aðferðin að henda disknum í frysti og tengja síðan við tölfuna er ólíklegt að virki?
EDIT: hvað meiniði samt með að opna harða diskinn, ef ég sé diskinn og nálina hef ég þá opnað diskinn? og þá á ekki lengur að vera hægt að ná neinum gögnum?
Re: Ná gögnum af biluðum harða diski.
Sent: Lau 12. Feb 2011 14:18
af AntiTrust
zdndz skrifaði:okei og jafnvel aðferðin að henda disknum í frysti og tengja síðan við tölfuna er ólíklegt að virki?
EDIT: hvað meiniði samt með að opna harða diskinn, ef ég sé diskinn og nálina hef ég þá opnað diskinn? og þá á ekki lengur að vera hægt að ná neinum gögnum?
Að henda disk með ónýtri nál í frysti er eins og að skera á dekk og reyna að blása aftur í það með munninum. Ef þú ert búinn að opna diskinn og sjá nálina þá ertu búinn að minnka líkurnar á gagnabjörgun um 95%. Ertu búinn að opna diskinn? Var nálin heil?
Re: Ná gögnum af biluðum harða diski.
Sent: Sun 13. Feb 2011 13:26
af zdndz
AntiTrust skrifaði:zdndz skrifaði:okei og jafnvel aðferðin að henda disknum í frysti og tengja síðan við tölfuna er ólíklegt að virki?
EDIT: hvað meiniði samt með að opna harða diskinn, ef ég sé diskinn og nálina hef ég þá opnað diskinn? og þá á ekki lengur að vera hægt að ná neinum gögnum?
Að henda disk með ónýtri nál í frysti er eins og að skera á dekk og reyna að blása aftur í það með munninum. Ef þú ert búinn að opna diskinn og sjá nálina þá ertu búinn að minnka líkurnar á gagnabjörgun um 95%. Ertu búinn að opna diskinn? Var nálin heil?
Misskildi félaga minn smá, en nei það er ekki búið að opna diskinn og hann veit ekki hvort það sé nálin eða eitthvað annað brotið, en allavega þá heyrist eins og eitthvað sé brotið inní þegar er hrist diskinn smá. Er að reyna að ná að tengja diskinn við einhverja tölvu, þar sem það virkar ekki að tengja diskinn við borðtölvuna mína þar sem það er eitthvað spes tengi á honum :S