Síða 1 af 2
SLOW að opna
Sent: Fös 11. Feb 2011 18:19
af schaferman
Hvað getur verið að bugga mig,, er eingöngu með ljósmyndir í tölvunni,,, en windowsið XP er óra tíma að opna möppur og myndir,, þarf líka alltaf að gera refres á möppuna svo myndirnar komi réttar,,,,,búinn að prufa gagnadiskinn í 2 öðrum tölvum en allt eins,,,,,,þetta var ekki svona fyrir nokkrum mánuðum.
T.d þá er ég með ljæosmyndir flokkaðar eftir því hvaða mánuði þær eru teknar,, og ef ég klikka t.d. á janúar möppuna kemur bara hvítt í langan tíma , síða ein og ein mynd sem byrtist hægt og rólega í staðin að þetta poppaði allt upp á einni sek áður fyrr.
Nú vantar mig hálp hjá ykkur tölvuséffunum

Re: SLOW að opna
Sent: Fös 11. Feb 2011 18:28
af SteiniP
búinn að prófa að defragga diskinn?
Re: SLOW að opna
Sent: Fös 11. Feb 2011 18:28
af bulldog
búinn að prófa að kaupa nýja tölvu og setja win 7 á hana ?

Re: SLOW að opna
Sent: Fös 11. Feb 2011 18:30
af schaferman
er að nota forrit sem aðeins xp styður,, búinn að vírus scanna defracmenta og alles,,, þarf ekki win 7 var með xp og það virkaði alltaf fínt í þessu
Re: SLOW að opna
Sent: Fös 11. Feb 2011 18:31
af Oak
bulldog það er ekki lausn á þessu
er diskurinn ekki bara fullur ?
Re: SLOW að opna
Sent: Fös 11. Feb 2011 18:32
af schaferman
passa mig alltaf að lágmark 25% sé laust á honum
Re: SLOW að opna
Sent: Fös 11. Feb 2011 18:34
af SteiniP
Prófaðu að keyra surface scan á disknum með einhverjum disk check utility. Seagate Seatools er ágætt í það.
Ef hann kemur villulaust út úr því þá gæti verið að skráarkerfið sé í ólagi. Chkdsk /R ætti að laga það.
Re: SLOW að opna
Sent: Fös 11. Feb 2011 18:36
af schaferman
SteiniP skrifaði:Prófaðu að keyra surface scan á disknum með einhverjum disk check utility. Seagate Seatools er ágætt í það.
Ef hann kemur villulaust út úr því þá gæti verið að skráarkerfið sé í ólagi. Chkdsk /R ætti að laga það.
takk fyrir þetta svar

reyni það
Re: SLOW að opna
Sent: Fös 11. Feb 2011 23:53
af schaferman
virkaði ekkert af þessu,sá sem finnur ráð við þessu fær kíló af harðfisk í verðlaun að vermæti 9000kr
Re: SLOW að opna
Sent: Lau 12. Feb 2011 00:02
af beatmaster
Prufaðu að afrita allar myndirnar á annann disk og að skoða myndirnar af honum (ef að ég skil rétt að þetta sé gagnadiskur sem að aðrar tölvur eiga líka illa með að lesa)
Re: SLOW að opna
Sent: Lau 12. Feb 2011 00:03
af biturk
schaferman skrifaði:Hvað getur verið að bugga mig,, er eingöngu með ljósmyndir í tölvunni,,, en windowsið XP er óra tíma að opna möppur og myndir,, þarf líka alltaf að gera refres á möppuna svo myndirnar komi réttar,,,,,búinn að prufa gagnadiskinn í 2 öðrum tölvum en allt eins,,,,,,þetta var ekki svona fyrir nokkrum mánuðum.
T.d þá er ég með ljæosmyndir flokkaðar eftir því hvaða mánuði þær eru teknar,, og ef ég klikka t.d. á janúar möppuna kemur bara hvítt í langan tíma , síða ein og ein mynd sem byrtist hægt og rólega í staðin að þetta poppaði allt upp á einni sek áður fyrr.
Nú vantar mig hálp hjá ykkur tölvuséffunum

er þetta gamall ide diskur? ég hef orðið oft var við það að þeir virðast hægja á sér með tímanum og þetta lýsir sér eins og minn gamli sem ég hennti á endanum því hann var svo hægur
er diskurinn usb tengdur eða ide? sata?
hvernig diskur er þetta ? hvaða framleiðandi?
Re: SLOW að opna
Sent: Lau 12. Feb 2011 00:14
af beatmaster
Athugaðu hvort að IDE rásin sem að diskurinn er á sé nokkuð stillt á PIO í staðinn fyrir UDMA, breyttu því í UDMA og sendu mér svo harðfiskinn

Re: SLOW að opna
Sent: Lau 12. Feb 2011 10:36
af schaferman
Þetta er SATA diskur WD,, búinn að prufa að taka möppu af honum og setja á tvo aðra sata diska en alveg sama buggið samt
Re: SLOW að opna
Sent: Lau 12. Feb 2011 11:22
af Dazy crazy
Vá mig langar í harðfisk.
hefurðu prófað að setja forritið upp uppá nýtt?
hefurðu prufað registry cleaner?
Re: SLOW að opna
Sent: Lau 12. Feb 2011 11:30
af topas
Þetta er mjög furðulegt ástand...
Diskurinn er eins í annari tölvu.
Skrárnar eru eins á öðrum diskum eftir að hafa verið afritaðar yfir að nýjan disk.
Út frá þessum upplýsingum gef ég mér það að vandamálið sé ekki diskurinn og vandamálið sé ekki tölvan. Hvað er þá eftir?
Ég myndi setja upp linux vél með EXT4 skáarkeri og afrita allar myndirnar yfir á þessa vél. Ef allt virkar vel þar mundi ég enduruppsetja XP vélina og copera myndirnar til baka.
Ef þú hefur aðgang að macca ætti það að gera sama gagn, getur coperað yfir lan.
Ef þetta er vandamálið gæti afritunin tekið mjög langan tíma.
Ég veðja á að skráarkerfið á þessari vél sé komið í algjöra kæfu.
Re: SLOW að opna
Sent: Lau 12. Feb 2011 11:32
af tdog
schaferman skrifaði:virkaði ekkert af þessu,sá sem finnur ráð við þessu fær kíló af harðfisk í verðlaun að vermæti 9000kr
Get a Mac.
Færð heimilisfangið mitt í PM.
Re: SLOW að opna
Sent: Lau 12. Feb 2011 12:29
af biturk
nádu í sér forrit eins og picture viewer, innbygða forritið í win þolir ekki svona magn af myndum stundum
Re: SLOW að opna
Sent: Lau 12. Feb 2011 13:27
af schaferman
þetta var alltaf í lagiog líka að opna stærri möppur en ég er að reyna núna.
Held innilega að gagna diskurinn sé svona sýktur.
Hjálpar EKKI að segja mér að fá nýja tövu eða eitthvað svoleiðis.
Þyrfti kannski að láta einhvern hreinsa gagna diskinn fyrir mig,
Vinn við ljósmyndir og allar mínar myndir þar sem ég má EKKI tapa.
Ef gagna diskurinn yrði 100% hreinsaður og góður færi hann bara í ný uppsetta formataða tölvu.
Re: SLOW að opna
Sent: Lau 12. Feb 2011 13:40
af topas
Legðu áherlsu á að koma myndunum í öruggt skjól áður en einhver tilraunastarfsemi heldur áfram.
Ég mæli eindregið með því að reyna að komast í Linux eða Mac vél til að copera myndirnar inn á. Ef þær eru í lagi þar þá ertu öruggur með þín gögn og getur gert við xp vélina þína.
Eru ekki einhverjir hérna sem taka að sér gagnabjörgun og geta kannað hvort skrárnar séu í lagi á nýju skráarkerfi? Ég mundi notast við Linux í þetta verkefni þar sem ég tel það vænlegast til árangurs miðað við fyrri tilraunir en það er bara mín skoðun.
Það þarf varla að taka það fram að fólk á að taka afrit af gögnum og eiga á öruggum stað ef vélbúnaður bilar.
Re: SLOW að opna
Sent: Lau 12. Feb 2011 13:54
af schaferman
kann ekkert á linux+enginn hér í bæ með mac, enda búa bara 180 manns í öllum hreppnum hér.
Og ekki til aur til að kaupa neitt.
Sá sem reddar fær harðfiskinn og fría fjölskyldu myndatöku.
Sá sem er til, addi mér bara á msn til að spjalla þar.
kristal-photos@hotmail.com http:kristalmynd.weebly.com
Re: SLOW að opna
Sent: Lau 12. Feb 2011 14:03
af topas
Ok, þá vandast málið.. Hvað er þetta mikið af gögnum í GB-um?
Re: SLOW að opna
Sent: Lau 12. Feb 2011 14:04
af schaferman
ca 200gb
geturðu addað mér á msn?
Re: SLOW að opna
Sent: Lau 12. Feb 2011 14:21
af biturk
profadu annad forrit til ad opna myndirnar med fyrst, fullt af teim frium a netinu
Re: SLOW að opna
Sent: Lau 12. Feb 2011 14:28
af SteiniP
Prófaðu eitt áður en þú hendir disknum.
Eyddu öllum "thumbs.db" skrám á disknum.
Þarft að sýna hidden files, searchaðu svo bara eftir thumbs.db og eyddu öllum.
Re: SLOW að opna
Sent: Lau 12. Feb 2011 14:33
af schaferman
biturk skrifaði:profadu annad forrit til ad opna myndirnar med fyrst, fullt af teim frium a netinu
en er í vandræðum að opna MÖPPUR. hún finnur ekkert thumps.db