Síða 1 af 1

Mig langar í alvöru skjákort

Sent: Mið 02. Feb 2011 17:06
af 69snaer
Hvort ætti ég að taka GTX580, GTX570eða fara yfir í nýju týpurnar hjá ATI. Einhver sem hefur góða reynslu af nýju kortunum hjá ATI?
Langar mest í GTX580 en verðið er ennþá fáránlega hátt!

Re: Mig langar í alvöru skjákort

Sent: Mið 02. Feb 2011 17:13
af coldcut
FÆRT

Re: Mig langar í alvöru skjákort

Sent: Mið 02. Feb 2011 17:32
af Raidmax
bíða bara eftir Geforce 590GTX :D !

Re: Mig langar í alvöru skjákort

Sent: Fim 03. Feb 2011 09:04
af dodzy
ég er alveg í sömu pælingum og þú.

ATI hafa ekki gott orðspor, sérstaklega þegar kemur að linux en ég hef heyrt að þeir eru að bæta sig. Endilega einhver sem er með reynslu af bæði ATI og nVidia að tjá sig [-o<

Re: Mig langar í alvöru skjákort

Sent: Fim 03. Feb 2011 09:30
af GrimurD
dodzy skrifaði:ég er alveg í sömu pælingum og þú.

ATI hafa ekki gott orðspor, sérstaklega þegar kemur að linux en ég hef heyrt að þeir eru að bæta sig. Endilega einhver sem er með reynslu af bæði ATI og nVidia að tjá sig [-o<

Hef aldrei heyrt að ati hafi eitthvað verra orðspor en nvidia. Eru slappir þegar kemur að linux driverum vissulega en það er mjög algengt hjá vélbúnaðarfyrirtækjum að leggja minni áherslu á linux heldur en windows.

Annars er það bara að skoða benchmarks, bestu kortin frá nvidia núna eru talsvert kraftmeiri en bestu kortin frá amd/ati en það sem þú villt pæla í er price/performance og fídusar. AMD/Ati er t.d. með eyefinity meðan nvidia er með physx og 3d (og surround). Er ekki alveg viss um hvaða kort það er þar sem menn eru að fá mest fyrir peningin eins og er en ég giska á að það sé annaðhvort amd radeon 6850/6870 eða geforce 560(er það komið?)/570. Bara að skoða hvað þessi fjögur kort kosta og hvernig þau eru að performa í benchmarks.

Re: Mig langar í alvöru skjákort

Sent: Fim 03. Feb 2011 09:54
af Frost
Nvidia eru með betri kort eins og er en þau eru dýrari. Nvidia kortin geta allt sem AMD/ATI kortin geta, þannig það eina sem þú ert að skoða er performance miðað við pening og yfirleitt eru AMD/ATI betri í því en sjálfur er ég Nvidia maður og mun örugglega fá mér Nvidia kort þegar ég splæsi í nýja tölvu.

Re: Mig langar í alvöru skjákort

Sent: Fim 03. Feb 2011 10:17
af ZoRzEr
Ég er akkúrat í sömu pælingum. Er að selja HD5870 kortið mitt. Er að fara fá Panasonic 3D sjónvarp og væri gaman að vera með kort með HDMI 1.4 tengi til að geta spilað 3D blu-ray í gegnum tölvuna.

Svo aftur á móti er ég með 2 skjái fyrir og sjónvarpið verður sá þriðji. Nvidia styður ekki 3 skjái á einu korti en AMD gerir það.

Smá pickles :ninjasmiley

Re: Mig langar í alvöru skjákort

Sent: Fös 04. Feb 2011 00:52
af Steini B
ZoRzEr skrifaði:Ég er akkúrat í sömu pælingum. Er að selja HD5870 kortið mitt. Er að fara fá Panasonic 3D sjónvarp og væri gaman að vera með kort með HDMI 1.4 tengi til að geta spilað 3D blu-ray í gegnum tölvuna.

Svo aftur á móti er ég með 2 skjái fyrir og sjónvarpið verður sá þriðji. Nvidia styður ekki 3 skjái á einu korti en AMD gerir það.

Smá pickles
:ninjasmiley

Er einmitt með mitt setup þannig, algjör snilld að geta keyrt 3 skjái af einu korti... :)

Re: Mig langar í alvöru skjákort

Sent: Fös 04. Feb 2011 03:55
af GrimurD
ZoRzEr skrifaði:Ég er akkúrat í sömu pælingum. Er að selja HD5870 kortið mitt. Er að fara fá Panasonic 3D sjónvarp og væri gaman að vera með kort með HDMI 1.4 tengi til að geta spilað 3D blu-ray í gegnum tölvuna.

Svo aftur á móti er ég með 2 skjái fyrir og sjónvarpið verður sá þriðji. Nvidia styður ekki 3 skjái á einu korti en AMD gerir það.

Smá pickles :ninjasmiley

Er með 6870 sem er með hdmi 1.4 og er að keyra 4 skjái á því. Með 3 skjái og svo er tv tengt í gegnum hdmi. Helvíti þægilegt.