Síða 1 af 2
Intel P4 Prescott
Sent: Mið 24. Mar 2004 22:21
af kiddisig
Sælir Vaktarar.
Ég er svo vitlaus í þessu hardwarei svo ég hef eina spurningu. Hvort ráðleggið þið manni að fá sér Intel P4 3.0GHz eða Intel P4 Prescott 3.0GHz?
Hef heyrt að Prescotinn sé ekki að koma nógu vel út í prufum svo ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að gera..
Ætti maður kannski að fá sér AMD64 3000+ frekar?
Kveðja,
Kristinn.
Sent: Mið 24. Mar 2004 23:35
af gumol
Intel P4 3.0GHz,
AMD64 3000+ er frekar á P4 3.2 GHz levelinu
Sent: Fim 25. Mar 2004 00:27
af wICE_man
Ég ráðlegg þér að fá þér annað hvort P4 northwood 3.0GHz (ódýrast hjá att) eða Athlon64 3000+ (ódyrast hjá tölvuvirkni) frekar en Prescott.
Prescott er ekki að bjóða neitt nema aukinn hita.
Ég mæli freka með Athlon64 ef leikir eru málið en P4 Northwood ef þú ætlar að vinna mikið í hljóði og myndvinnslu.
Sent: Fim 25. Mar 2004 16:57
af Nemesis
Eða fá sér 2,8/2,6Ghz örgjörva með ABIT móðurborði og Zalman viftu, og hækka svo upp um þessi 200/400Mhz sem vantar uppá :l
Sent: Fim 25. Mar 2004 22:24
af kiddisig
Þakka ykkur kærlega fyrir svörin.
Ég er byrjaður að hallast mikið að AMD64. Verður sweet þegar fleiri stýrikerfi, forrit og leikir styðja 64 bita tæknina, þá verður maður tilbúinn fyrir það.

Sent: Fim 25. Mar 2004 23:41
af wICE_man
Ég var að heyra að leikjaframleiðendur séu hæst ánægðir með AMD64 örrana og margir þeirra eru farnir að hanna leiki sérstaklega með þá í huga, það verða allavega 64bita útgáfur af Far Cry og UT2004, fleiri eiga eftir að fylgja í kjölfarið. Hvort sem er eru AMD64 örrarnir líka bestu 32bita örrarnir þegar kemur að leikjum.
Sent: Fös 26. Mar 2004 00:47
af ICM
wICE_man þetta getur hljómað dálítið villandi hjá þér : gerðir sérstaklega með AMD64 í huga... meiri hlutin af kóðanum í leikjunum er gerður fyrir 32bit örgjörva þótt það séu örfáar 64bit viðbætur. Eini stóri 64bit leikurinn sem ég hef heyrt um í vinnslu algjörlega 64bit er næsta unreal vél.
Sent: Fös 26. Mar 2004 09:18
af Bendill
IceCaveman skrifaði:wICE_man þetta getur hljómað dálítið villandi hjá þér : gerðir sérstaklega með AMD64 í huga... meiri hlutin af kóðanum í leikjunum er gerður fyrir 32bit örgjörva þótt það séu örfáar 64bit viðbætur. Eini stóri 64bit leikurinn sem ég hef heyrt um í vinnslu algjörlega 64bit er næsta unreal vél.
Ef fyrirtæki eru að hanna leiki sérstaklega fyrir AMD64 þá eru þeir að setja inn í þá 64 bita notkunarmöguleika, ekki að skrifa leiki fyrir 64 bita örgjörva eingöngu. Það yrði aldrei samþykkta af útgefandanum... Það væri eins og að framleiða mynd í Hollywood þar sem aðeins væri töluð sænska og enginn texti fylgdi með

Sent: Fös 26. Mar 2004 10:04
af wICE_man
haha
Sent: Fös 26. Mar 2004 10:07
af wICE_man
Ég tók svona til orða, rétt eins og flest rendering og encoding forrit voru á tímabili gerð sérstaklega með P4 í huga, þ.e. SSE2 viðbætur, þessi forrit keyrast samt á örgjörvum án SSE2 stuðnings, bara hægar.
Sent: Fös 26. Mar 2004 13:41
af ICM
Bendill þú getur sent Tim e-mail og spurt hann að þessu, hann sagði að þeir væru að gera leik eingöngu með 64bit í huga og á vélin að vera tilbúin uppúr 2005. Getur séð öruglega smá video fljótandi á netinu úr vélinni, þar keyrðu þeir á dual opteron.
Þeir gefa það sennilegast út líka fyrir xbox2 þar sem Microsoft samdi við Epic um að gera amk 5 leiki fyrir Windows/Xbox.
Sent: Fös 26. Mar 2004 14:02
af Bendill
Frá viðskiptalegu sjónarhorni finnst mér þetta kjánalegt, að ætlast til þess að allir sem spili leiki séu komnir með 64 bita búnað. Markmið leikjaframleiðanda eru alveg eins og á öðrum sviðum, selja sem flest eintök. Þeir hamla útbreiðslu á leiknum með því að setja hann í fastar skorður.
Ég er ekkert að setja út á að leikurinn keyri einungis á 64 bita búnaði, satt best að segja finnst mér það bara svalt, en ég bjóst aldrei við þessu svona snemma. Að mínu mati er 2005 ekki árið sem allir skipta yfir í 64 bita. En það yrði ekki í fyrsta skipti sem ég hefði rangt fyrir mér, og hreint út sagt yrði ég glaður ef svo færi

Sent: Fös 26. Mar 2004 14:03
af wICE_man
nota bene, Xbox2 verður sennilega með næstu kynslóðar 64bita PowerPC örgjörva.
Sent: Fös 26. Mar 2004 14:05
af Bendill
umm... ég held að við séum búnir að stela þræðinum
semsagt...
HIJACK!
Sent: Fös 26. Mar 2004 14:06
af wICE_man
Það yrði þá hraðasta umbreyting í sögu tölvuiðnaðarins, það tók nú mörg ár frá tilkomu fyrsta 32bita örgjörvans til almennrar notkunar 32bita forrita, alveg frá því að 386 örrinn kom út þar til windows95 leit dagsins ljós.
Sent: Fös 26. Mar 2004 14:07
af wICE_man
Hver er þessi Jack???
Sent: Fös 26. Mar 2004 14:18
af ICM
Epic eru að selja leyfi fyrir unreal vélina á iss nokkrar millj. $USD. Leikir eins og Splinter Cell 1&2, DeusEx2, XIII, Thief3, Americas Army osfv... auk þess væntanlega að fá góða fjárhæð í vasan frá Microsoft ættu að eiga nóg pening til að láta sér nægja að selja Unreal vélina fyrir Xbox2 framleiðendur og nokkra PC framleiðendur. Tim sagði að það yrði að taka áhættur í þessum málum til að haldast áfram á víglínunni... man ekki allt sem hann sagði svo endilega leitið af þessu á
http://www.planetunreal.com
Auk þess gerir maður svona ráð fyrir að Playstation3 og allar þessar leikjatölvur verði með 64bit leiki tilbúnna svo það væri hálf vandræðalegt fyrir PC eigendur að hafa ekki neitt sem nýtir það.
Sent: Fös 26. Mar 2004 14:27
af ICM
Svo má bæta við að Microsoft kynntu XNA fram á sjónarsviðið
http://www.1up.com/article2/0,2053,1553701,00.asp Þar sem Xbox2 verður nú PPC virðist þetta vera ansi öflugt verkfæri sem þeir hafa í höndunum fyrir forritara. Auk þess sem þetta ýtir undir þær hugmyndir um að "next generation" windows verði líka gefið út á PPC samhliða x86.
Sent: Fös 26. Mar 2004 16:54
af ICM
Sent: Fös 26. Mar 2004 18:44
af wICE_man
IceCaveman, þú ert nú meiri atvinnuleysinginn!
Sent: Fös 26. Mar 2004 18:48
af ICM
wICE_man segðu eitthvað nýtt
En gætirðu komið með smá hint og rökstutt mál þitt?
Sent: Fös 26. Mar 2004 22:14
af Rednex
er ekki Playstation 2 þegar með 128 bita örgjörva?
Sent: Lau 27. Mar 2004 00:16
af wICE_man
Rökstutt? Það stendur yfir myndinni þinni

Sent: Lau 27. Mar 2004 00:26
af ICM
sýndist þú skrifa VITLEYSINGURINN
Sent: Lau 27. Mar 2004 06:14
af kiddisig
Ég er eiginlega búinn að ákveða að fá mér AMD64 3200+. Ég þakka ykkur samt fyrir svörin og að stela þráðinum.
