Síða 1 af 2
Uppfærsla 2011
Sent: Fös 21. Jan 2011 14:41
af ÓmarSmith
Loxins komin tími á alvöru uppfærslu eftir 4 ára bið.
Pakkinn verður líklegast svona :
Asus Sabertooth P67 Sli móðurborð
i7 Sandy Bridge 2600k Örri
Nvidia 460GTX 1GB eða 560GTX
8GB Corsair DDR3
Ætti þetta ekki að vera fín uppfærsla frá Core 2 Duo og 8800GTX, fyrir leiki og Myndvinnslu.. ?
Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fös 21. Jan 2011 15:11
af ZoRzEr
Pure sex. Þú neyðist samt til að fá þér GTX 570 vinur, þetta gengur ekki.
Asus P67 Sabertooth borðið er ekki ljótt.
Unboxing þráður plz. Og er ekki HAF X, 4 bleikar viftur og hello kitty límmiðar málið ?
Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fös 21. Jan 2011 15:19
af halldorjonz
Þér vantar SSD til að finna alvööru mun

Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fös 21. Jan 2011 16:55
af ÓmarSmith
Ok, fyrsta lagi eru þessir HAF kassar ógéð nema þú sért 15 ára og fílir Hondu Civic með ljósum undir bílnum og neon overclokkað bassabox

Ég mun jú fá mér SSD disk fyrir stýrikerfi og Lightroom / Photoshop .
Og það er aldrei að vita nema ég bíði með skjákortið þar til 560 kortin koma, 570 kortið þykir mér alltof dýrt.
Ég er ennþá að nota 8800GTX og það merkilegt nokk, er að ráða við alla þessa leiki ennþá í dag. eini leikurinn sem ég ræð ekki við í botni er Metro 2033 sem reyndar er sjúklega flottur hvar lýsingu varðar..
460 ætti að vera töluvert öflugra en 8800GTX og 560 mikið öflugra en 8800 þannig að ..
Þetta ætti að vera góð uppfærsla fyrir næstu 3 árin amk.
Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fös 21. Jan 2011 16:56
af AntiTrust
Ruglandi titill, ég hélt þú værir að tala um LGA2011

Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fös 21. Jan 2011 21:14
af Tiger
ÓmarSmith skrifaði:Ok, fyrsta lagi eru þessir HAF kassar ógéð nema þú sért 15 ára og fílir Hondu Civic með ljósum undir bílnum og neon overclokkað bassabox

Mikið hlýt ég að vera ungur í anda, flottustu turnanir þótt ég sé kominn langt á fertugsaldurinn

Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fös 21. Jan 2011 22:01
af GrimurD
ÓmarSmith skrifaði:Ok, fyrsta lagi eru þessir HAF kassar ógéð nema þú sért 15 ára og fílir Hondu Civic með ljósum undir bílnum og neon overclokkað bassabox

x2 !!
Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fim 27. Jan 2011 15:53
af ÓmarSmith
Satt... Algjerlega hræðilegt útlit.
antec P19X og 18X eru bara þúsund sinnum stíhreinni og fallegri.
I have spoken
Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fim 27. Jan 2011 16:49
af HelgzeN
gaur samt óþarfi að dissa 15 ára fólk meina cmon..
Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fim 27. Jan 2011 16:52
af ÓmarSmith
hehe, nei nei.
þeir geta bara dissað til baka þegar þeir eldast

Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fim 27. Jan 2011 16:55
af Daz
Ég er með Antec Sonata III . Stílhreint >>>> ljósakassabassar
Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fim 27. Jan 2011 17:11
af DabbiGj
Ég er með Haf912, hann er frekar smekklegur að mínu mati. Er mattsvartur og dregur litla athygli að sér auk þess að vera vel byggður.
Annars hef ég alltaf verslað silverstone kassa sem að eru jú toppurinn í naumhyggju.
Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fim 27. Jan 2011 18:12
af Tiger
HelgzeN skrifaði:gaur samt óþarfi að dissa 15 ára fólk meina cmon..
Þeir virðast samt hafa betri smekk en margir eldri fyrst þeim finnst HAF flottir, þannig að þetta er í góðu lagi

Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fös 28. Jan 2011 11:32
af ÓmarSmith
Já smekkur manna er sem betur fer misjafn, en því miður fyrir okkur smekklega fólkið þurfum við a horfa upp á neonljós og spoilera hjá þeim sem ekki vita betur

Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fös 28. Jan 2011 11:40
af SolidFeather

u mad?
Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fös 28. Jan 2011 11:44
af ÓmarSmith
BWAHAHAHAHAHAHAHA...
Ég myndi ekki einu sinni hafa þetta ferlíki út á svölum hjá mér

Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fös 28. Jan 2011 12:29
af Meso
ÓmarSmith skrifaði:Satt... Algjerlega hræðilegt útlit.
antec P19X og 18X eru bara þúsund sinnum stíhreinni og fallegri.
I have spoken
Alveg sammála, er sjálfur með P182 og er hæst ánægður, stílhreinn og solid.
Er einnig hrifinn af Lian-Li ál kössunum, átti slíkan á undan Antec og var hann einnig frábær,
hann var bara of stuttur fyrir skjákortið svo ég neyddist til að uppfæra hann.
Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fös 28. Jan 2011 12:59
af Plushy
Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fös 28. Jan 2011 13:04
af ÓmarSmith
Holy moly !!!!
Þetta er rosalegt.... haha
Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fös 28. Jan 2011 13:09
af Halli25
náði ekki að selja konunni það að hafa viftukassan í stofunni...

Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fös 28. Jan 2011 13:13
af ÓmarSmith
úú...Giggedy
Asus borðið var að detta inn
Örrinn var að detta inn
Minnið var að detta inn
Það verður púsl kvöld í kvöld !!
Verst að fá ekki skjákortið fyrr en eftir helgi, URRR
Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fös 28. Jan 2011 17:18
af ÓmarSmith
Sko ...
núna er gamli aðeins að hugsa..
Á ég að bíða alveg með þetta púsluspil og kaupa í leiðinni SSD disk til að hafa Stýrikerfið á ? Eða er það " nettur " óþarfi ?
Er teljanlegur munur á að keyra Win ( Lightroom - Photoshop CS5 ) á SSD disk eða hvað ?
Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fös 28. Jan 2011 17:22
af oskar9
ÓmarSmith skrifaði:Sko ...
núna er gamli aðeins að hugsa..
Á ég að bíða alveg með þetta púsluspil og kaupa í leiðinni SSD disk til að hafa Stýrikerfið á ? Eða er það " nettur " óþarfi ?
Er teljanlegur munur á að keyra Win ( Lightroom - Photoshop CS5 ) á SSD disk eða hvað ?
ójá !!!, ég var ekkert of hress með að kaupa SSD þegar ég setti mitt saman enda voru þeir mjög dýrir þá, en keypti fyrir stuttu Crucial 128gb disk og þvílíkur munur, er með stýrikerfið inná þessu ásamt þungum forritum, blender 3d, photoshop og fleira og hraðin á vinnslunni er mjög mikill, mjög gáfuleg uppfærsla, sértstaklega fyrir öflugar tölvur sem vilja smá "edge"
Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fös 28. Jan 2011 17:28
af dori
Bíddu með þetta, fáðu þér SSD og gerðu þetta svo í góðu tómi með myndavél svo að við getum fengið að sjá öll skrefin! Það eru alltof fáir sem gera unboxing þræði þegar þeir kaupa sér eitthvað sniðugt (reyndar einn frábær um yum yum núðlur um daginn), þessi uppfærsla á það skilið að fólk fái að dást af þessu... ekki satt?
Re: Uppfærsla 2011
Sent: Fös 28. Jan 2011 17:34
af ÓmarSmith
Ég reyndar er að gera þetta fyrir sjálfan mig en ekki sveitta slefandi vaktara

Þannig að unboxing skiptir mig akkúrat engu

En ég er samt að detta inn á að byrja ekkert á púslinu fyrr en eftir helgi þegar ALLT er komið sem vantar, ( vantar líka V8 kæliviftuna )
En sökum mikillar pressu þá ætla ég að reyna að gera fallegt Unboxing show..
stei tjúnd