Síða 1 af 1

Boot mgr missing í BIOS

Sent: Þri 18. Jan 2011 17:03
af Viktor
Sælir.
Er með leiðinda vandamál með móðurborð sem ég hélt að væri í fínu lagi.
Hvert skipti sem ég reyni að boota kemur error BOOT MGR MISSING (Type ctrl+alt+delete to restart).
Er að reyna að setja upp Win7 og búinn að prufa að boota með USB og DVD drifi, en fæ alltaf þennan error.
Er með MSI 648 móðurborð.

Takk

Re: Boot mgr missing í BIOS

Sent: Þri 18. Jan 2011 17:21
af KermitTheFrog
Hef lent í þessu margoft. Oftast eru það harðdiskasnúrurnar sem hafa ruglast eða eitthvað. Biosinn er s.s. að reyna að boota upp af disk sem hreinlega er ekki settur upp til þess. Athugaðu boot sequence hjá þér.

Re: Boot mgr missing í BIOS

Sent: Þri 18. Jan 2011 17:30
af Hvati
prufa kannski að uppfæra Bios?

Re: Boot mgr missing í BIOS

Sent: Þri 18. Jan 2011 17:33
af Black
Lenti í þessu í gær.. sjálfur Aldrei komið áður á þessa vél sem ég er með núna, síðan bara alltíeinu kom þetta og ég gat ekkert gert aftengdi harðadiskana og allt til að reyna setja alveg nýtt boot sequence

síðan setti ég bara windows 7 diskinn í tók og setti DVD í nr.1 í bootsequnece og gerði bara boot from cd-dvd og gerði repair þá virkaði vélinn fullkomlega ;P

en ertu buinn að fikta einhvað í boot sequence og eins með hvort það sé nokkuð floppy drive enabled og svona =P~

Re: Boot mgr missing í BIOS

Sent: Þri 18. Jan 2011 17:36
af Sveppz
Ég hef lent í þessu áður með MSI borð. Ég þurfti að taka út allt í boot options nema þetta eina sem ég ætlaði að boota af (USB, DVD).
Ef það virkar ekki þá geturu athugað með að taka allt úr sambandi og tengja USB við og sjá hvort móðurborðið vilji boota upp af því.

Re: Boot mgr missing í BIOS

Sent: Þri 18. Jan 2011 18:01
af beatmaster
Ekki velja CD-ROM sem fyrsta boot í BIOS heldur verðurðu að velja akkúrat drifið, það ætti að vera valmöguleiki fyrir það ef að þú skrollar niður boot listann í BIOS

Þá er ég að tala um að sem fyrst boot geturðu valið CD-ROM (sem að er væntanlega það sem að þú hefur gert) en þú getur einnig valið drifið sem að er uppsett í tölvunni hjá þér (t.d NEC_SR1015_DVD-RW eða eitthvað álíka) þú verður að velja það


Ég var að vinna með svona borð fyrir nokkrum dögum og þetta var að gera mig geðveikann, ég kjánaðist einhvern veginn til að fatta þetta á endanum :sleezyjoe

Re: Boot mgr missing í BIOS

Sent: Þri 18. Jan 2011 18:12
af Viktor
Þegar ég næ að boota af DVD kemur alltaf error "Cannot boot from DVD drive, code: 5" og móðurborðið fer beint í að reyna boota af HDD og það kemur Boot mgr missing.
DVD drifið er gamalt og lúið, gæti verið það.

Ef ég hinsvegar reyni að boota USB þá kemur "Disk read failure".
Ástæðan fyrir því held ég að sé að móðurborðið sé að reyna að boota þessu sem USB-FDD en ekki USB-HDD, prufaði bæði FDD og HDD á minni tölvu og USB-HDD virkaði bara, ef ég reyndi FDD þá bootaði tölvan harða diskinum.

Er ekki hægt að boota sem USB-HDD á svona gömlum borðum?

Re: Boot mgr missing í BIOS

Sent: Þri 18. Jan 2011 18:16
af beatmaster
Ef að þú tekur allt úr sambandi (HDD og DVD) nema usb lykilinn og það er örugglega stillt á "try boot from other devices" í BIOS og hann bootar af usb lyklinum þá ættirðu að geta stillt á hann með allt tengt, annars ekki

Re: Boot mgr missing í BIOS

Sent: Þri 18. Jan 2011 18:32
af Viktor
Jæja, ég held ég sé kominn að niðurstöðu.
DVD drifið er eitthvað shaky og móðurborðið styður ekki USB-HDD boot.

Óska hér með eftir DVD drifi :)

viewtopic.php?t=34798

Re: Boot mgr missing í BIOS

Sent: Lau 22. Jan 2011 20:15
af Viktor
Prufaði splunkunýtt DVD drif, kemur alltaf þessi error "Cannot boot from CDROM: Code 5" :mad Any thoughts?

Re: Boot mgr missing í BIOS

Sent: Lau 22. Jan 2011 20:15
af Viktor
Prufaði splunkunýtt DVD drif, kemur alltaf þessi error "Cannot boot from CDROM: Code 5" :mad Any thoughts?


edit: ætla að prufa þetta "I was getting the same error. Workaround: start the install from a running Windows system (i.e. use the in-place upgrade feature) and take it from there."