Síða 1 af 1
Hreinsa LCD skjá
Sent: Sun 21. Mar 2004 14:59
af Le Drum
Sælir.
Er mælt með einhverju efni frekar en öðru til þess að hreinsa LCD-skjái.
Eða er það bara gamla góða raka tuskan?
Sent: Sun 21. Mar 2004 15:01
af Voffinn
Ég nota sprey sem heitir Mirachem(r) á lappaskjáinn minn. Þetta er glær og mér myndi _aldrei_ detta í hug að nota raka tusku.
Ég nota bara eldhúspappír og þetta sprey.
Sent: Sun 21. Mar 2004 15:16
af gumol
Hvar færðu þetta spray?
Sent: Sun 21. Mar 2004 21:15
af skipio
Það er ekki gott að nota eldhús- eða klósettpappír til að þurrka LCD-skjái eða gleraugu - allt of grófur. Bómullar- eða gerviefnaklútur er miklu betri.
Sent: Sun 21. Mar 2004 23:24
af Spirou
Ég nota blautklúta eins og maður notar til að hreinsa gleraugu. Þið vitið, þessir einnota.
Sent: Þri 23. Mar 2004 00:32
af Vilezhout
ég nota bara ajax rúðuhreinsi og þurka af með fínni tusku :þ
Sent: Þri 23. Mar 2004 09:42
af wICE_man
Jamm, á CRT skjám er ysta lagið bara einfalt gler en á LCD skjám er yfirleitt plastfilma og þær þola alveg smá þrifnað. Annað væri svívirðileg heimska af hálfu framleiðanda.