Síða 1 af 1
Er óhætt að versla hér á vaktinni skjákort?
Sent: Fös 07. Jan 2011 15:29
af frikki1974
Þetta er kannski vitlaus spurning en er alveg óhætt að kaupa hér á vaktinni notuð eða nýleg skjákort?
Kv
Frikki
Re: Er óhætt að versla hér á vaktinni skjákort?
Sent: Fös 07. Jan 2011 15:34
af Jimmy
Þetta er sennilega ein af öruggari íslenskum síðum til að versla notaða íhluti af.
Re: Er óhætt að versla hér á vaktinni skjákort?
Sent: Fös 07. Jan 2011 15:40
af Bengal
Held að það sé hægt að fullyrða það að vaktin sé með þeim öruggari stöðum hér á landi til að kaupa notaða tölvuhluti
Hinsvegar eru alltaf svartir sauðir inná milli og eru þeir taldir upp
hér
Re: Er óhætt að versla hér á vaktinni skjákort?
Sent: Fös 07. Jan 2011 15:44
af frikki1974
Takk fyrir svarið
Mig langar vita en tölvan hefur verið soltið skrítin þegar ég starta henni og stundum vill hún ekki keyra sig upp og þá restarta ég henni og þá keyrir hún sig upp, þetta hefur gerst núna undafarið en eru þetta merki um að skjákortið sé að gefa sig? eða er þetta kannski harði diskurinn?
Ég hef ekki mikinn pening þannig að það væri gott að vita hvað veldur þessu þannig að ég þurfi ekki að kaupa eitthvað sem ekki er bilað..skiljið.
Hvað getur valdið þessu?
Re: Er óhætt að versla hér á vaktinni skjákort?
Sent: Fös 07. Jan 2011 15:55
af Gúrú
Meðal annars skjákortið, sérstaklega 8800GT.
Re: Er óhætt að versla hér á vaktinni skjákort?
Sent: Fös 07. Jan 2011 16:00
af frikki1974
Gúrú skrifaði:Meðal annars skjákortið, sérstaklega 8800GT.
Ertu að segja að þetta getur kannski verið skjákortið? en ég hef NVIDIA GeForce 8800 GTS 512
Re: Er óhætt að versla hér á vaktinni skjákort?
Sent: Fös 07. Jan 2011 16:08
af Gúrú
frikki1974 skrifaði:Gúrú skrifaði:Meðal annars skjákortið, sérstaklega 8800GT.
Ertu að segja að þetta getur kannski verið skjákortið? en ég hef NVIDIA GeForce 8800 GTS 512
Já, ef að tölvan startar sér stundum án þess að starta sér getur það verið skjákortið.
Það sem ég mæli með því að þú gerir er að finna annað skjákort og prófa að hafa það í tölvunni, gáðu hvort að hún startar sér ekki í hvert einasta skipti eftir það með skjámyndinni uppi.
Re: Er óhætt að versla hér á vaktinni skjákort?
Sent: Fös 07. Jan 2011 16:11
af frikki1974
Ok en málið er að ég hef ekkert annað skjákort

þannig að ég veit ekki hvar ég stend í þessu.
Re: Er óhætt að versla hér á vaktinni skjákort?
Sent: Fös 07. Jan 2011 16:51
af Gúrú
Færð lánað skjákort hjá einhverjum góðhjörtuðum, allt annað en að kaupa annað skjákort í blindni.
Re: Er óhætt að versla hér á vaktinni skjákort?
Sent: Fös 07. Jan 2011 16:54
af frikki1974
Gúrú skrifaði:Færð lánað skjákort hjá einhverjum góðhjörtuðum, allt annað en að kaupa annað skjákort í blindni.
Ég tékka á þessu
Takk samt
Re: Er óhætt að versla hér á vaktinni skjákort?
Sent: Fös 07. Jan 2011 18:46
af JohnnyX
Ég gæti lánað þér kort. Það er ekkert Speedy Gonsalez en það virkar
Re: Er óhætt að versla hér á vaktinni skjákort?
Sent: Fös 07. Jan 2011 18:54
af frikki1974
JohnnyX skrifaði:Ég gæti lánað þér kort. Það er ekkert Speedy Gonsalez en það virkar
Ég þekki einn góðan vin en ég þakka þér góðsvildina

Re: Er óhætt að versla hér á vaktinni skjákort?
Sent: Fim 13. Jan 2011 10:18
af Benzmann
Gúrú skrifaði:frikki1974 skrifaði:Gúrú skrifaði:Meðal annars skjákortið, sérstaklega 8800GT.
Ertu að segja að þetta getur kannski verið skjákortið? en ég hef NVIDIA GeForce 8800 GTS 512
Já, ef að
tölvan startar sér stundum án þess að starta sér getur það verið skjákortið.
Það sem ég mæli með því að þú gerir er að finna annað skjákort og prófa að hafa það í tölvunni, gáðu hvort að hún startar sér ekki í hvert einasta skipti eftir það með skjámyndinni uppi.

Re: Er óhætt að versla hér á vaktinni skjákort?
Sent: Fim 13. Jan 2011 11:51
af Gúrú
benzmann skrifaði:Gúrú skrifaði:frikki1974 skrifaði:Gúrú skrifaði:Meðal annars skjákortið, sérstaklega 8800GT.
Ertu að segja að þetta getur kannski verið skjákortið? en ég hef NVIDIA GeForce 8800 GTS 512
Já, ef að
tölvan startar sér stundum án þess að starta sér getur það verið skjákortið.
*mynd*
Hvað?
Það fer rafmagn á tölvuna og búnaðurinn ræsir sig en búnaðurinn í heild sinni (sem við köllum tölvu) ræsir sig ekki sem heild og því er engin skjámynd.
Þetta er meðan ég man orðtak frá ónafngreindum starfsmanni Kísildals sem að sagði þetta til staðfestingar eftir að ég útskýrði svona vandamál fyrir honum, svo að þú mátt spamma þessari mynd fyrir mér.
Re: Er óhætt að versla hér á vaktinni skjákort?
Sent: Fim 13. Jan 2011 11:54
af Benzmann
Gúrú skrifaði:benzmann skrifaði:Gúrú skrifaði:frikki1974 skrifaði:Gúrú skrifaði:Meðal annars skjákortið, sérstaklega 8800GT.
Ertu að segja að þetta getur kannski verið skjákortið? en ég hef NVIDIA GeForce 8800 GTS 512
Já, ef að
tölvan startar sér stundum án þess að starta sér getur það verið skjákortið.
*mynd*
Hvað?
Það fer rafmagn á tölvuna og búnaðurinn ræsir sig en búnaðurinn í heild sinni (sem við köllum tölvu) ræsir sig ekki sem heild og því er engin skjámynd.
Þetta er meðan ég man orðtak frá ónafngreindum starfsmanni Kísildals sem að sagði þetta til staðfestingar eftir að ég útskýrði svona vandamál fyrir honum, svo að þú mátt spamma þessari mynd fyrir mér.
exacly,. það er það sem þú hefðir átt að skrifa þarna að ofan hehe, hitt kom bara eitthvað svo asnalega út. þess vegna var ég að benda á þetta hehe
Re: Er óhætt að versla hér á vaktinni skjákort?
Sent: Fim 13. Jan 2011 11:57
af Gúrú
A'ight.