Intel misstu nú foristuna um hríð, allt frá því að Athloninn kom fyrst út þar til þeir komu með Northwood kjarnan og skutust fram úr AMD á nýjan leik.
Ég held þó að það sé fátt sem muni velta Intel úr sessi sem örgjörvaframleiðanda #1, þeir eiga feita varasjóði eftir að hafa getað selt örgjörva á yfirverði (ef miðað er við aðra framleiðendur). Þeir eru í smá lægð núna en enginn ætti að efast um að þeir komist aftur inn í leikinn.
En það er þó erfitt að velja top-performer í hvert skipti, þegar Athloninn kom út var hann einfaldlega öflugri en PIII á nær öllum sviðum en núna skiptist foristan á fleiri svið, P4 er ennþá með yfirhöndina í mediavinnslu þó hún hafi snarminnkað með tilkomu FX-53. Intel eru þó að vinna að betri útfærslu á prescott sem ætti að færa þeim 3.6-3.8GHz örgjörva á þessum helming ársins sem ekki veldur heitara loftslagi í heiminum eins og núverandi prescott örgjörvar gera.
Vilezhout, ég spila flest það sem að kjafti kemur, c&c generals, CS & NS, Baldurs Gate leikina, Rise of Nations, UT-2003, osfv. En er þó mest fyrir RTS leiki, hví spyrðu?