Síða 1 af 1

þá er komið að uppfæra mína!

Sent: Mið 17. Mar 2004 23:30
af pjesi
Ég er að fara að versla helstu íhluti í tölvuna mína því hún er vægast sagt orðin slöpp. Ég verð að halda mig við eina verslun og eftir að hafa skoðað úrvalið þá sýnist mér að computer.is séu með allt sem ég þarfnast.

Svona lýtur þetta út í dag:

MB ASUS P4 P4C800 DL R/A/L1394 : 23.655
ÖRGJ P4 2.8 GHZ S478 800M R : 18.512
SKJÁK ATI RADEON9800XT 256M R : 44.856
HD 160G SAMSUNG 7200/SATA : 13.261
MINNI 512M DDR PC3500 HYPERX K 2 stk : 33.088

Samtals : 133.372

Spurning um hvort ég þurfi þetta PC3500 og láti 3200 duga en einhverstaðar heyrði ég að betra væri að hafa hærri tíðni ef maður ætlar að overclocka. Veit samt ekki hvort timeranir á hraðara minninu séu lélegri.

Svo var ég líka að spá í muninum á þessum XT kortum sem þeir eru með (eru með 3 stykki).

Endilega commentið.

Sent: Mið 17. Mar 2004 23:39
af gumol
Ég mæli með því að þú fáir þér OEM örrann á 16.714 og einhverja hljóðlátari viftu.

Svo er maður dáldið hrædur við ASUS móðurborðin.

Sent: Mið 17. Mar 2004 23:44
af WarriorJoe
talaðu við task til að fá Abit IC7-Max3 móðurborðið þeir eru að panta þau inn fyrir þá sem vilja.. Það er þess virði að panta þaðan þetta mobo ( uppselt hjá hugver )

Sent: Mið 17. Mar 2004 23:44
af pjesi
gumol skrifaði:Ég mæli með því að þú fáir þér OEM örrann á 16.714 og einhverja hljóðlátari viftu.

Svo er maður dáldið hrædur við ASUS móðurborðin.


Ég ætlaði að fá mér IC7 max3 í Hugveri en frétti að þau væru ekki til.

Það er annaðhvort þetta eða 8KNXP frá Gigabyte, megið alveg koma með rök fyrir hvort ég ætti að fá mér því ég er óttalegur nýgræðingur í þessu.

Já þetta með OEM örran.. ég var að spá í að fá bara retail svo ég þurfi ekki að kaupa viftu alveg strax. Langar bara að fá þetta í hendunar sem fyrst :D

Sent: Mið 17. Mar 2004 23:47
af pjesi
Valdi ég sagði að ég gæti bara verslað við eina verslun svo ég get ekki verið að panta einn hlut hjá Task :)

Sent: Mið 17. Mar 2004 23:51
af WarriorJoe
Og ég sagði að það væri þess virði :D En mæli með gigabyte moboinu, gigabyte borðin eru læk totally crazí

Sent: Mið 17. Mar 2004 23:56
af pjesi
Ég frétti að mamma þín væri totally hot Valdi :8)

Sent: Mið 17. Mar 2004 23:56
af WarriorJoe
mamma ÞÍN er hot

Sent: Fim 18. Mar 2004 00:59
af pjesi
Svo ef einhver getur bent mér á mjög góða og hljóðláta viftu frá computer.is fyrir þetta sett þá væri það vel þegið :>

Sent: Fim 18. Mar 2004 01:57
af WarriorJoe

Sent: Fim 18. Mar 2004 11:50
af pjesi
Var að skoða gamla pósta hérna og rakst á einghverjar umræður um að "built by ATI" væri mun slakari kort. Er eitthvað til í því?

Sent: Fim 18. Mar 2004 17:42
af WarriorJoe
built by ati er nú yfirleitt betra hef ég lesið / heyrt

Sent: Fim 18. Mar 2004 17:56
af Demon
Eina sem ég sé er 9800XT 256mb kortið...
Not worth it miðað við verðmuninn á því og 9800 Pro 128mb

Sent: Fim 18. Mar 2004 18:22
af halanegri
gumol skrifaði:Svo er maður dáldið hrædur við ASUS móðurborðin.


HA?! Þau eru snilld!


pjesi: Ég er með þessa hérna:

http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=529

Það er hægt að stilla snúninginn á henni, í lægsta er hún ótrúlega hjóðlát(heyrist eiginlega ekkert) og kælir bara eins og venjuleg vifta, kælir síðan enn betur á hærri snúningi, en þá heyrist aðeins í henni(ekki mikið samt). Þú getur líka fengið týpuna sem er bara úr kopar(ekkert ál með) og hún kælir þá ennþá betur, en er aðeins þyngri(og dýrari). ;)

http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=359

Sent: Fim 18. Mar 2004 19:29
af SkaveN
ASUS uber alles!!


Er með P4C800-deluxe móbóið og get ekki kvartað, allt að virka 100% :D

Sent: Fim 18. Mar 2004 21:25
af pjesi
SkaveN skrifaði:ASUS uber alles!!


Tek þig á orðinu! ÆD