Síða 1 af 1

ATI - góður framleiðandi?

Sent: Þri 16. Mar 2004 15:09
af Nemesis
Ég var að vafra Anandtech.com rétt í þessu, til að lesa mér aðeins til um skjákort, og rakst þar á grein um frammistöðu alls konar skjákorta á mörgum sviðum. Greinin innihélt m.a. þessar töflur:

http://www.anandtech.com/video/showdoc.html?i=1955&p=21 <-- yfirklukkun
http://www.anandtech.com/video/showdoc.html?i=1955&p=24 <-- frammistaða

Í báðum prófunum kemur ATI langverst út. Þar sem ég ætla örugglega að fá mér 9600 kort og ATI kortin eru ódýrust um þessar mundir fór ég að pæla hvort ATI standi sig einnig svona illa í 9600pro línunni, en ég fann ekkert um það. Hvað finnst ykkur? Ætti ég að fá mér ATI radeon 9600pro eða velja heldur einhvern annan framleiðanda, og þá hvern?

Re: ATI - góður framleiðandi?

Sent: Þri 16. Mar 2004 15:54
af xtr
Hættu bara í cs og sparaðu peningin fyrir bíl

Sent: Þri 16. Mar 2004 16:13
af Arnar
Þegar ég var að skoða þetta fyrir nokkrum mán (9800xt) þá var Built By ATi kortið að standa sig best, svo ég valdi það..

Ég get hækkað core í 445mhz án articfacts, venjulega er hann 412.

Sent: Þri 16. Mar 2004 17:33
af Nemesis
Skemmtilegt, ég er samt að tala um 9600 pro Arnar :?

Sent: Þri 16. Mar 2004 18:06
af SkaveN
ávalt ASUS hjá mér :)

Er reyndar með Gigabyte Radeon 9700pro kort og það er alveg að gera ótrulega hluti, er að koma því í ótrulegar tölur í overclocki. 405/345 með Zalman VGA heatsync og viftu. :8)

Sent: Þri 16. Mar 2004 20:19
af Nemesis
Já, hallast mjög að Gigabyte. En hvernig er þetta með TV-out? Er það eins hjá öllum framleiðendum og virkar það alveg í 9600pro?