Síða 1 af 1

Intel að taka upp nýtt "Labeling system"

Sent: Þri 16. Mar 2004 10:23
af gumol
Var annars búið að gera þráð um þetta?

http://story.news.yahoo.com/news?tmpl=s ... c_nf/23352

Sent: Þri 16. Mar 2004 11:05
af wICE_man
Það finnst mér sniðugt, hinn almenni kaupandi þekki erkki muninn á tveimur örgjörvum ef þeir hafa sömu MHz tölu, hvaða meðaljón þekkir t.d. muninn á:

P4 2.4 (celeron)
P4 2.4 (prescott based celeron)*
P4 2.4
P4 2.4A
P4 2.4C
P4 2.4E*

* Enn ekki til á vegkortum Intel en kunna að koma út fljótlega skv. Theinquirer.net.

Eða:

P4 2.8 (celeron)
P4 2.8 (prescott based celeron)
P4 2.8 (prescott based celeron á s775)
P4 2.8A
P4 2.8C
P4 2.8E
P4 2.8E (á s775)

Það er þó talsverður munur á þessum örgjörvum eins og innherjar vita.

Ég held samt að Intel muni nota svipað kerfi og AMD notar fyrir Opteron örgjörvana sína, frekar en einhverjar PR-ratings, það gæti þó verið krókur á móti bragði að nota PR-rating byggt á 2.0GHz celeron (AMD notar 1.0GHz Duron). Þá myndi P4 3.0C vera eitthvað á borð við PR-4000, nei annars ég held að þeir yrðu flammaðir fyrir það.

Sent: Þri 16. Mar 2004 12:01
af gumol
wICE_man skrifaði:Þá myndi P4 3.0C vera eitthvað á borð við PR-4000, nei annars ég held að þeir yrðu flammaðir fyrir það.

Akkurat sem ég er hræddur um, þeir myndu gera Intel fanboy's útum allan heim lífið leitt með því. :?

Sent: Þri 16. Mar 2004 14:52
af wICE_man
Theinquirer var að fjalla um þetta hérna um daginn og þeir vildu meina að það yrði ekki farið út í PR-ratings heldur yrði notast við einhvers konar kóða líkt og AMD notar fyrir Opteron. Það er runa af tölum sem hver greinir á milli ákveðina eiginleika, husanlega ein fyrir klukkutíðni, ein fyrir FSB, ein fyrir cache osfv.

Það myndi ekki þjóna neinum tilgangi fyrir Intel að taka upp PR-ratings þar sem þeir eru með yfirhöndina í klukkuhraða, þess vegna held ég að þeir muni forðast merkingar sem byggjast á afköstum og nota frekar merkingar sem gefa til kynna ákveðna eiginleika eða hönnunarútfærslur.