Síða 1 af 1

Flakkarinn er eitthvað skrýtinn HJALP

Sent: Þri 21. Des 2010 00:36
af Dormaster
ég er ný búinn að kaupa 1TB flakkara frá kísildal og er búinn að eiga hann núna í tvær vikur.
ég ætlaði svo núna að starta honum og það kemur eins og að hann sé að fara að starta sér nema allt í einu kemur eitthvað klikk hljóð svona 3 og hann slekkur á sér þetta gerðist líka við harðadiskinn í hinum flakkaranum mínum en hann er mikið eldri,

en vitiði hvað er að ?
kanntu að laga þetta ?

Re: Flakkarinn er eitthvað skrýtinn HJALP

Sent: Þri 21. Des 2010 00:43
af rapport

Re: Flakkarinn er eitthvað skrýtinn HJALP

Sent: Þri 21. Des 2010 00:48
af Eiiki
hann er bilaður og þú átt rétt á endurgreiðslu

Re: Flakkarinn er eitthvað skrýtinn HJALP

Sent: Þri 21. Des 2010 02:42
af Dormaster
einhver möguleiki að bjarga einhverjum gögnum á disknum eða er hann gjörsamlega ónýtur

Re: Flakkarinn er eitthvað skrýtinn HJALP

Sent: Þri 21. Des 2010 06:09
af Black
misstiru hann ? :evillaugh

Re: Flakkarinn er eitthvað skrýtinn HJALP

Sent: Þri 21. Des 2010 09:09
af Benzmann
Eiiki skrifaði:hann er bilaður og þú átt rétt á endurgreiðslu


tjahh ekki alveg

ef vara reynist gölluð á einhvern hátt, þá á Kísildalur að gera við vöru eða borga viðgerðarþjónustu eða láta þig fá nýjann flakkara


en ef ekkert að þessu ofangreinda er hægt í þessu tilfelli, þá ber þeim skylda að borga vöruna til baka að fullu...


meina maður getur ekki farið með vöru sem maður er búinn að eiga í 22mánuði og hún bilar og farið og heimtað endurgreiðslu bara af því að það er 2 mánuðir eftir af ábyrgðinni.

Edit: og þú sem neytandi, tókst sá ákvörðun að fjárfesta í þessari vöru. svo maður á ekki rétt á endurgreiðslu strax, ekki fyrr en verkstæðið er búið að skoða vöruna og dæma hana ónýta, og þá ræður verslunin því hvort að hún endurgreiði þér, eða lætur þig fá nýjann flakkara, hentar þeim betur að láta þig fá nýjann flakkara því það er ódýrara fyrir þá.

Re: Flakkarinn er eitthvað skrýtinn HJALP

Sent: Fim 30. Des 2010 21:02
af bulldog
það er bannað að skrifa hjálp í topic

Re: Flakkarinn er eitthvað skrýtinn HJALP

Sent: Fim 30. Des 2010 21:39
af BjarkiB
bulldog skrifaði:það er bannað að skrifa hjálp í topic


Nú kem ég af fjöllum, held að þú sért að misskilja.
2. gr.

Það á að nota lýsandi titla á nýjum bréfum
dæmi: Titillinn á ekki að vera "Hjálp!" eða "Hvort?" heldur frekar
"Vantar hjálp með fps drop í CS" eða "P4 3.0 GHz eða AMD64 3000+?".