Síða 1 af 1

Geisladrif í tölvu í ruglinu.

Sent: Mán 20. Des 2010 22:04
af johannig88
Góða kvöldið, jæja þá vantar mig hjálp.

Málið er að ég er með Windows XP og tölvan mín finnur ekki geisladrifin í tölvunni og svo er ég með Daemon Tools líka og hún finnur það ekki heldur, þannig ég get ekki spilað leiki í gegnum Daemon Tools, ég er búinn að prófa að fara í Device Manager og gera updates á driverana en það er svona gult upphrópunarmerki á ÖLLUM drifunum, meira að segja líka ISO "drifinu" mínu. Hefur einhver lent í þessu og veit hvað er að? Ég er búinn að opna tölvuna og tjekka á drifinu og það er fullkomlega rétt tengt og allt.

Kær kveðja, Jóhann Ingi.

Re: Geisladrif í tölvu í ruglinu.

Sent: Mán 20. Des 2010 22:07
af Klemmi
Ef vandamálið er "Device cannot start" í Device manager, þá geturðu prófað þetta:

Farðu í start-takkann og skrifaðu þar regedit og ýttu á enter

Farðu undir eftirfarandi lykla:
HKEY_LOCAL_MACHINE.
SYSTEM
CurrentControlSet.
Control
Class.
{4D36E965-E325-11CE-BFC1-08002BE10318}.
Ef eftirfarandi lyklar eru til staðar, hægri smelltu á þá og veldu delete:
UpperFilters & Lowerfilters

Endurræstu vélina og vonandi er vandamálið úr sögunni.

Re: Geisladrif í tölvu í ruglinu.

Sent: Mán 20. Des 2010 22:17
af johannig88
Ahhh þetta virkaði! Þúsund þakkir! Kem til þín næst og knúsa þig þegar ég versla mér tölvu :)

Re: Geisladrif í tölvu í ruglinu.

Sent: Mán 20. Des 2010 23:19
af Klemmi
Minnsta málið kappi :)