Tölvan með vesen

Skjámynd

Höfundur
Krissinn
1+1=10
Póstar: 1123
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
Reputation: 1
Staðsetning: RNB
Staða: Ótengdur

Tölvan með vesen

Pósturaf Krissinn » Fim 09. Des 2010 00:44

Þegar ég horfi á hreyfimynd af auka diskinum í tölvunni og er að hlusta á tónlist í leiðinni í itunes eða á youtube og líka þegar ég er að búa til deiliskrá í utorrent og hlusta á tónlist í leiðinni þá verður lagið allt breglað eða hökktir, svo er torrentskráin rosa lengi að vistast eða búast til. Getur þetta verið auka diskurinn sem er að gefa sig? Hann er sirka 1 árs 650 GB Western Digital diskur, Samt finnst það ólíklegt vegna þess að þetta gerist líka þegar ég hlusta á tónlist á youtube og horfi á kvikmynd í leiðinni. Músabendillinn hökktir líka. Þetta byrjaði fyrir svona 3 dögum. Ég hélt að þetta væri eitthvað video codec sem væri að klikka en ég er búinn að sækja fullt af svoleiðis og installa auk þess að installa driverinum fyrir skjákortið aftur og fara yfir tengingarnar fyrir harða diskana í tölvunni en þetta virðist ekki ætla að lagast :( Svo er ég búinn að keyra spybot og Trend Micro og eyða drasli af auka disknum. Hvað gæti verið að?




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4245
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1422
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan með vesen

Pósturaf Klemmi » Fim 09. Des 2010 00:57

Allavega er enter takkinn bilaður, en annars myndi ég einnig keyra test á diskinn til að byrja með :)


Starfsmaður Tölvutækni.is

Skjámynd

Höfundur
Krissinn
1+1=10
Póstar: 1123
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
Reputation: 1
Staðsetning: RNB
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan með vesen

Pósturaf Krissinn » Fim 09. Des 2010 02:45

Klemmi skrifaði:Allavega er enter takkinn bilaður, en annars myndi ég einnig keyra test á diskinn til að byrja með :)


Enter takkinn? Þetta er borðtölva, allt í lagi með lyklaborðið. Tók það einmitt úr sambandi í dag ásamt músinni og pluggaði því svo aftur inn. Var að greiða úr snúruflækjunni bakvið tölvuna.



Skjámynd

Frantic
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Mið 04. Mar 2009 17:43
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan með vesen

Pósturaf Frantic » Fim 09. Des 2010 03:44

krissi24 skrifaði:
Klemmi skrifaði:Allavega er enter takkinn bilaður, en annars myndi ég einnig keyra test á diskinn til að byrja með :)


Enter takkinn? Þetta er borðtölva, allt í lagi með lyklaborðið. Tók það einmitt úr sambandi í dag ásamt músinni og pluggaði því svo aftur inn. Var að greiða úr snúruflækjunni bakvið tölvuna.


Einn ekki alveg að ná kaldhæðninni. #-o

Segðu meira frá vélinni. Vinnsluminni og örgjörvi?
Gerist þetta bara þegar þú spilar eitthvað af öðrum diski?



Skjámynd

Höfundur
Krissinn
1+1=10
Póstar: 1123
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
Reputation: 1
Staðsetning: RNB
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan með vesen

Pósturaf Krissinn » Fim 09. Des 2010 03:51

JoiKulp skrifaði:
krissi24 skrifaði:
Klemmi skrifaði:Allavega er enter takkinn bilaður, en annars myndi ég einnig keyra test á diskinn til að byrja með :)


Enter takkinn? Þetta er borðtölva, allt í lagi með lyklaborðið. Tók það einmitt úr sambandi í dag ásamt músinni og pluggaði því svo aftur inn. Var að greiða úr snúruflækjunni bakvið tölvuna.


Einn ekki alveg að ná kaldhæðninni. #-o

Segðu okkur meira frá vélinni. Vinnsluminni og örgjörvi?
Gerist þetta bara þegar þú spilar eitthvað öðrum hörðum diski?


:P Veit bara um youtube það gerist það sama þar og Firefox-ið er sett upp á C diskinum. Það er 3.25 GB vinnsluminni og 3.20 GHz Intel Pentium 4 CPU örgjörvi