Síða 1 af 1

Blue screen eftir NTFS format.

Sent: Sun 07. Mar 2004 20:51
af Snikkari
Ég er að setja upp Abit AN7 með Seagate S-ATA disk ofl.

1. Ég bý til partition með fdisk
2. Formata síðan diskinn með Format c:
3. Starta síðan upp á XP disknum
4. keyri síðan NTFS format

Ég hef alltaf formatað svona bæði PATA og S-ATA, og það hefur alltaf virkað.

Alltaf þegar NTFS formatið er búið fæ ég alltaf Bluescreen.
Það segir eitthvað á þá leið að Windows þurfti að slökkva á sér útaf hardware vandamáli.

Ég er búin að útiloka allt hardware nema diskinn og móðurborðið.

Veit einhver hvað þetta getur verið ?

Sent: Sun 07. Mar 2004 21:01
af so
Prófaðu að keyra upp á FAT 32 og sjáðu hvað gerist.
Kannski er OS diskurinn skemmdur?

Sent: Sun 07. Mar 2004 21:46
af Snikkari
so skrifaði:Prófaðu að keyra upp á FAT 32 og sjáðu hvað gerist.
Kannski er OS diskurinn skemmdur?

Ég er búin að prófa 3 XP diska, 2 Powersupply, 2 skjákort, 2 floppydrif og 2 CD drif
Þá held ég að ég sé búin að útiloka allt nema Harða diskinn og Mobóið.
Ég er líka búin að nota örgjörvan í 2 öðrum vélum, þannig að hann er í lagi.

Sent: Sun 07. Mar 2004 22:55
af GuðjónR
En RAM'ið?

Sent: Sun 07. Mar 2004 22:59
af gnarr
þá væru þetta random villur

Sent: Sun 07. Mar 2004 23:49
af Snikkari
gnarr skrifaði:þá væru þetta random villur

Kannski ég ætti líka að prófa að skipta um minni til að vera viss.

Sent: Mán 08. Mar 2004 11:15
af GuðjónR
Það myndi ég gera...Bluescreen of death er yfirleitt RAM eða Móbós að kenna....

Sent: Mán 08. Mar 2004 11:22
af gnarr
þetta er líklega diskurinn, snúran í diskinn, tengið á móðurborðinu eða controllerinn fyrir diskinn. ertu búinn að prófa annann disk með sömu snúru í sama tengi? eða prófa aðra snúru? eða annað tengi á móðurborðinu?

harðdisks villur eru nánast avleg eins og minnisvillur, fyrir utan að það kemur alltaf sama villan, en random með minnis villur.

Sent: Mán 08. Mar 2004 16:40
af Jakob
Ef þú ert að formatta SATA disk þá myndi ég athuga strax hvort það séu komnir bæði nýjir Windows driverar og firmware upgrade fyrir SATA controllerinn.
Svo er spurning um BIOS uppfærslu.

Þú ættir að finna þetta allt á heimasíðu móðurborðs framleiðanda.

Sent: Þri 09. Mar 2004 19:54
af Snikkari
Jæja, það er komin lausn á vandamálinu.
Það þurfti að hækka voltin á minnið uppí 2.7V.

Bingó.

Sent: Þri 09. Mar 2004 20:50
af GuðjónR
hvað sagði ég ekki ;)