Síða 1 af 2

Sprunginn kristall!!!!

Sent: Sun 07. Mar 2004 18:47
af wICE_man
Ég hélt að ég hefði séð flest en oh boy!

Núna um helgina dó tölvan hjá mér skyndilega, bara slökkti á sér. Ég hélt fyrst að þetta væri eitthvað microsoft bögg en þegar ég ætlaði að kveikja aftur gerðist ekki neitt.

Ég byrjaði á að útiloka hluti sem gætu verið að, annað power supply, hreinsaði cmos og setti jumpera á "safe mode", loks skrúfaði ég móðurborðið úr kassanum og brá heldur í brún. Ég kom auga á brúna klessu á miðju móðurborðinu, og þegar betur var að gáð þá reyndist þar hafa sprungið einn kristall og gums úr honum lekið út.

Þetta var MSI K7N2-delta, innan við árs gamalt (8 mánaða) og hafði það reynst mér vel og hvergi hikstað fram að þessu.

Hefur einhver lent í einhverju svipuðu? Það væri gaman að heyra hugmyndir um hvað gæti hafa orsakað þetta, nú eða bara aðrar sögur um skríttnar bilanir.

Það myndi létta á mínu dapra hjarta. :cry:

Sent: Sun 07. Mar 2004 18:55
af dabb
ég er líka með svona borð, ekkert að því

Sent: Sun 07. Mar 2004 18:56
af aRnor`
Mitt móður borð MSI 875P Neo Fisr2 dó fyrir nokkrum vikum.
Fór bara með það í verslunina sem ég keypti það í og þeir
skiptu því út.

Sent: Sun 07. Mar 2004 20:42
af dadik
Líklega var þetta þéttir sem fór sbr. þetta:

http://www.theinquirer.net/?article=5878

En það er hægt að gera við þetta og á að kosta lítið. Þú gætir líka gert þetta sjálfur. Eina sem þig vantar er samskonar þéttir og lóðbolti.

- dk

Sent: Sun 07. Mar 2004 23:27
af wICE_man
Nei dadik, þetta var kristall, ég þekki muninn á þétti og kristal og það er ekkert einfalt að lóða nýjan á borðið, móðurborð í dag eru fjöllaga og ómögulegt að lóða suma hluti á eða af, en það myndi sjálfsagt ekki saka að reyna ef móbóið verður úrskurðað ónýtt :)

Þetta er hins vegar þræl fínt borð, þess vegna er ég svona leiður að missa það.

Sent: Sun 07. Mar 2004 23:51
af gumol
En ef það er 8 mánaða afhverju ferðu bara ekki og færð þér nýtt?

Sent: Mán 08. Mar 2004 00:06
af xtr
Arnor, rólegur kallin minn.

Sent: Mán 08. Mar 2004 11:18
af GuðjónR
wICE_man hvar var þetta móðurborð keypt?

Sent: Mán 08. Mar 2004 11:20
af gnarr
xtr skrifaði:Arnor, rólegur kallin minn.


?? er hann eitthvað órólegur ?

Sent: Mán 08. Mar 2004 12:10
af wICE_man
GuðjónR:
wICE_man hvar var þetta móðurborð keypt?


Í tölvulistanum.

Gumol:
En ef það er 8 mánaða afhverju ferðu bara ekki og færð þér nýtt?


Ég er ekki sú týpa sem fær sér nýja tölvu á hálfsársfresti, þetta móðurborð er enn með þeim bestu sem maður fær fyrir XP, Nforce2 með öllum helstu aukaeiginleikum sem manni dettur í hug: USB2, firewire, serial-ATA RAID, ultra ATA-133, innbygðu 10/100 netkorti, innbyggðu 5.1 hljóðkorti, dual DDR, 200MHz DDR FSB osfv.

Maður á ekki að þurfa að skipta um móðurborð jafn oft og örgjörva, en ég var búinn að gleyma því að þú er die-hard Intel maður svo að þú ert kanski vanur að þurfa að uppfæra í hvert skipti sem Intel ákveður að skipta um sökkul eða kemur með nýtt kubbasett :roll:

Sent: Mán 08. Mar 2004 12:14
af gumol
Ég var ekki að tala um það, þetta ætti að vera undir ágyrgðinn

Sent: Mán 08. Mar 2004 12:51
af Bendill
Hentu því bara aftur í hausinn á þeim (Tölvulistanum) og heimtaðu nýtt :D

Sent: Mán 08. Mar 2004 13:47
af GuðjónR
Núna er tækifærið sem allir hafa beðið eftir!!
Tölvulistinn hefur lengi legið undir ámæli vegna lélegrar þjónustu, farðu með þetta móðurborð til þeirra og sjáðu hvað þeir gera fyrir þig.
Ég er búinn að sjá allt of mikið af órökstuddum hryllingssögum um Tölvulistann svo það verður fróðlegt að sjá hvernin þetta fer hjá þér.
Póstaðu svo hingað árangrinum hver svo sem hann verður.

Sent: Mán 08. Mar 2004 15:08
af wICE_man
Ég fór með þetta til þeirra á laugardaginn og þeir ætluðu að kíkja á þetta við fyrsta tækifæri, ég hef svo sem ekkert slæma reynslu af þeim enn sem komið er og held að það sé oft dálítið erfitt fyrir þá að athafna sig þegar ekki er hægt að fullvissa sig um hvort skaðinn sé vegna misnotkunar eða framleiðslugalla.

Annars er þetta tilfellið með öll hátækni fyrirtæki, það er alltaf erfiðara að þjónusta slíka hluti vel.

Sent: Mán 08. Mar 2004 15:10
af wICE_man
Já síðan keypti ég þetta sem sjálfstæðan hlut svo ég veit ekki hversu skotheld ábyrgðin er, þar sem ég sá sjálfur um uppsettninguna.

Sent: Mán 08. Mar 2004 16:19
af gumol
2ja ára skotheld ábyrgð, breytir ekki neinu uppá "skotheldnina" hvort varan er keypt sér eða í kassa.

Sent: Mán 08. Mar 2004 20:55
af Hörde
Ég hef bæði heyrt og lesið frá tæknimönnum hjá tölvubúðum, bæði hér á landi og annars staðar, að MSI borðin séu með mjög háa bilanatíðni. Ég hef átt tvö MSI borð, og hvorugt entist í 1 og 1/2 ár. Bæði létust þau við vafasamar kringumstæður, - algjörlega upp úr þurru líkt og umrætt borð.

Það gæti vel hafa verið tilviljun hjá mér, og "mass-hysteria" hjá þessum tæknimönnum, en ég á erfitt með að treysta MSI borðum lengur.

Já, og ég fékk hvorugt borðið bætt.

Sent: Mán 08. Mar 2004 22:19
af wICE_man
Ljótt að heyra Hörde, ég hef sjálfur ekkert slæmt heyrt um MSI borðin sem slík, þetta er virtur framleiðandi og ég efast um að svo væri ef borðin þeirra væru almennt séð gölluð.

Það er samt óhjákvæmilegt að einhver borð séu gölluð, þau eru smíðuð af mönnum.

Sent: Þri 09. Mar 2004 23:16
af Zaphod
ég hef átt 2 stk msi móðurborð . annað virðist bara vera elífft (msi k7 pro)



En lenti í veseni með hitt (MSi K7N2G) bara dó þegar kveikti á vélinni , allavega var móbóið dæmt gallað .... fékk nýtt .

Ábyrgðin á alveg að taka yfir greinilega galla í móðurborðinu einsog í þínu tilfelli .

Sent: Mið 10. Mar 2004 10:29
af GuðjónR
Jæja þá er kominn miðvikudagur er eitthvað að frétta af móbóinu?

Sent: Mið 10. Mar 2004 12:00
af wICE_man
Fæ vonandi nýtt í dag, ég læt ykkur vita hvernig fer.

Sent: Mið 10. Mar 2004 12:24
af wICE_man
Þetta er póstur nr. 33333

bara svona upp á spaugið :)

Sent: Mið 10. Mar 2004 12:28
af GuðjónR
Til hamingju með það...

Sent: Mið 10. Mar 2004 13:26
af wICE_man
Jæja, þá liggja niðurstöður fyrir.

Ég fór með móðurborðið á laugardegi, sá sem tók við því vildi engu lofa en sagði að það yrði tekið fyrir á þriðjudaginn, þ.e í gær. Ég hringdi í gær og þá fékk ég að vita að þeir væru með borðið í skoðun og það eina sem þeir þyrftu væri nótan fyrir því. Ég er soddan skussi og hafði ekki nennt að halda uppá nótuna sem var sennilega undir haug af drasli í einhverjum skápnum. Þeir gátu ekki fundið neina færslu undir mínu nafni enda hafði borðið verið staðgreitt, en ég gat gefið þeim dagsettninguna og þeir létu leita að þessu í bókhaldinu, ég hefði fengið nýtt borð samdægurs en vegna misskilnings tókst ekki að finna færsluna áður en skrifstofan sem sér um bókhaldið lokaði.

En allavega, ég fór svo aftur niður eftir í dag og fékk nýja móðurborðið, engin vandamál, ekkert vesen og ekkert nema almennilegheitin.

Ég get ekki annað en gefið þeim hæðstu einkunn. Þeir lofuðu aldrei neinu sem þeir stóðu ekki við, hlupu undir bagga þegar ég gat ekki fundið nótuna og rukkuðu ekkert fyrir þó að það hafi hlotist óþarfa vesen út af nótunni.

Ef einhvern tímann hefur verið léleg þjónusta í tölvulistanum þá hafa þeir stórbætt hana. Ég hef reyndar aldrei haft neitt upp á þá að klaga.

Þessi viðskipti voru allavega fjöður í hatt tölvulistans.

Sent: Mið 10. Mar 2004 13:41
af elv
Gaman að heyra svona