Síða 1 af 1
Intel Sandy Bridge?
Sent: Mán 01. Nóv 2010 00:03
af Frost
Góða kvöldið. Ég er nú búinn að lesa mig smá til um Sandy Bridge örgjörvann. Hvað er svona special við hann
Væri alveg frábært að fá eitthvern til að segja hvað er svona sérstakt við hann

Re: Intel Sandy Bridge?
Sent: Mán 01. Nóv 2010 00:08
af Benzmann
tjahh, víst þú varst að lesa þig til um hann, vilt þú þá ekki segja okkur eitthvað um hann ?
Re: Intel Sandy Bridge?
Sent: Mán 01. Nóv 2010 00:12
af Frost
benzmann skrifaði:tjahh, víst þú varst að lesa þig til um hann, vilt þú þá ekki segja okkur eitthvað um hann ?
Tjah þar sem ég var að búa til þennan þráð þá getur bara verið að ég er ekki að fatta hvað er svona hæpið í kringum hann. Og er ekkert að skilja þetta Codename.
Re: Intel Sandy Bridge?
Sent: Mán 01. Nóv 2010 01:36
af vesley
greinin um þetta á wikipedia segir í rauninni allt sem segja þarf
http://en.wikipedia.org/wiki/Sandy_Brid ... chitecture)
í mjög grófum dráttum þá er þetta 32nm örgjörvar sem verða allt frá 2 kjarna yfir í 8 kjarna.
Re: Intel Sandy Bridge?
Sent: Mán 01. Nóv 2010 10:01
af AntiTrust
Allir Sandy Bridge örgjörvar verða 32nm og munu hafa innbyggðan grafískan kjarna á sömu flögu, en geta keyrt á sitthvorri klukkutíðni. Það sem SandyBridge var mikið gagnrýnt fyrir er að þeir eru að koma með nýtt socket með þessu - 1155. Sem þýðir að við sem eyddum hundruðum þúsunda í i7 monster vélar síðustu mánuðina höfum ekki valmöguleikann á því að skipta um/uppfæra um örgjörva í Sandy Bridge kjarna, heldur verðum við að skipta móðurborðinu líka út. Þetta er mjög stuttur markaðslíftími fyrir 1366 socketið ef þú skoðar hversu lengi 478 og 775 héldust/haldast á markaðnum. En fyrir okkur i7 mennina þá er það okkur til huggunar að 1155 er ekki replacement fyrir 1366 og er ekki ætlað að vera öflugri lína, heldur kemur nýr socket 2011-2012 sem mun taka við 1366.
Þessu socketi munu svo fylgja ný kubbasett, í staðinn fyrir X58 verður P67/H65/H67 - þar sem p táknar að borðið styður utanaðkomandi skjákort (þeas ekki bara innbyggt á örgjörvanum).
Svo ef ég man rétt þá verður USB3 ekki "standard" á þessum móðurborðum sem er auðvitað fáránlegt, og svo verða flestir 1155 örgjörvar mikið læstari en fyrri kynslóðir, okkur yfirklukkurum til leiðinda.
Re: Intel Sandy Bridge?
Sent: Mán 01. Nóv 2010 11:09
af Frost
AntiTrust skrifaði:Allir Sandy Bridge örgjörvar verða 32nm og munu hafa innbyggðan grafískan kjarna á sömu flögu, en geta keyrt á sitthvorri klukkutíðni. Það sem SandyBridge var mikið gagnrýnt fyrir er að þeir eru að koma með nýtt socket með þessu - 1155. Sem þýðir að við sem eyddum hundruðum þúsunda í i7 monster vélar síðustu mánuðina höfum ekki valmöguleikann á því að skipta um/uppfæra um örgjörva í Sandy Bridge kjarna, heldur verðum við að skipta móðurborðinu líka út. Þetta er mjög stuttur markaðslíftími fyrir 1366 socketið ef þú skoðar hversu lengi 478 og 775 héldust/haldast á markaðnum. En fyrir okkur i7 mennina þá er það okkur til huggunar að 1155 er ekki replacement fyrir 1366 og er ekki ætlað að vera öflugri lína, heldur kemur nýr socket 2011-2012 sem mun taka við 1366.
Þessu socketi munu svo fylgja ný kubbasett, í staðinn fyrir X58 verður P67/H65/H67 - þar sem p táknar að borðið styður utanaðkomandi skjákort (þeas ekki bara innbyggt á örgjörvanum).
Svo ef ég man rétt þá verður USB3 ekki "standard" á þessum móðurborðum sem er auðvitað fáránlegt, og svo verða flestir 1155 örgjörvar mikið læstari en fyrri kynslóðir, okkur yfirklukkurum til leiðinda.
Er þá ekki i7 bara málið?

Re: Intel Sandy Bridge?
Sent: Mán 01. Nóv 2010 11:14
af ManiO
Frost skrifaði:Er þá ekki i7 bara málið?

Eins og er með svo margt annað þarf bara að vega kosti og galla fyrir hvern og einn. Erfitt, ef ekki bara ómögulegt, að alhæfa hvað sé best fyrir alla.
Re: Intel Sandy Bridge?
Sent: Mán 01. Nóv 2010 11:39
af beatmaster
Skiptir engu fyrir i7 eigendur þótt að Sandy Bridge fari á nýtt Socket, þeir henda hvort eð er 1366 borðunum sínum þegar að Bulldozer mætir á svæðið...

Re: Intel Sandy Bridge?
Sent: Mán 01. Nóv 2010 12:06
af chaplin
Mig minnir að Sandy Bridge eigi að vera alltaf að 20-30% hraðari en i7 á sama klukkuhraða. Þori ekki að fullyrða þetta, minnir bara að ég hafi lesið e-h slíkt, annars hlakkar mig meira til að sjá Bull Dozer.

Re: Intel Sandy Bridge?
Sent: Mán 01. Nóv 2010 12:07
af AntiTrust
beatmaster skrifaði:Skiptir engu fyrir i7 eigendur þótt að Sandy Bridge fari á nýtt Socket, þeir henda hvort eð er 1366 borðunum sínum þegar að Bulldozer mætir á svæðið...

Tjah, eða förum yfir í LGA2011 frá Intel. Það eru kostir og gallar við Bulldozer vs SandyBridge eins og með allt annað.
Re: Intel Sandy Bridge?
Sent: Mán 01. Nóv 2010 13:38
af donzo
daanielin skrifaði:Mig minnir að Sandy Bridge eigi að vera alltaf að 20-30% hraðari en i7 á sama klukkuhraða. Þori ekki að fullyrða þetta, minnir bara að ég hafi lesið e-h slíkt, annars hlakkar mig meira til að sjá Bull Dozer.

20-30% hraðari miðað við "clock to clock" við Wolfdale og enhv :/ aka socket 775 og nýrri tækni auðvitað ef mig minnir það rétt,
svo sá ég video að þeir náðu 4,6ghz overclock á sandy bridge með air cooling :/
Re: Intel Sandy Bridge?
Sent: Mán 01. Nóv 2010 13:39
af audiophile
Vill bara minna á að með Sandy Bridge deyr FSB yfirklukkun, eða yfirklukkun eins og við þekkjum í dag. Einungis verður hægt að yfirklukka með því að kaupa sérstaka (aðeins dýrari) útgáfu af örgjörvunum, með K í nafninu. Það verður einungis hægt að yfirklukka þá með því að breyta multiplier.
Semsagt, no more free overclocking.
Re: Intel Sandy Bridge?
Sent: Mán 01. Nóv 2010 14:59
af Hvati
audiophile skrifaði:Vill bara minna á að með Sandy Bridge deyr FSB yfirklukkun, eða yfirklukkun eins og við þekkjum í dag. Einungis verður hægt að yfirklukka með því að kaupa sérstaka (aðeins dýrari) útgáfu af örgjörvunum, með K í nafninu. Það verður einungis hægt að yfirklukka þá með því að breyta multiplier.
Semsagt, no more free overclocking.
Ehemm, þetta á bara að gilda fyrir 1155 socket en ekki 2011.
Re: Intel Sandy Bridge?
Sent: Mán 01. Nóv 2010 16:21
af audiophile
Hvati skrifaði:audiophile skrifaði:Vill bara minna á að með Sandy Bridge deyr FSB yfirklukkun, eða yfirklukkun eins og við þekkjum í dag. Einungis verður hægt að yfirklukka með því að kaupa sérstaka (aðeins dýrari) útgáfu af örgjörvunum, með K í nafninu. Það verður einungis hægt að yfirklukka þá með því að breyta multiplier.
Semsagt, no more free overclocking.
Ehemm, þetta á bara að gilda fyrir 1155 socket en ekki 2011.
Já ég veit, en meirihlutinn af fólki mun kaupa 1155 og þá hverfur möguleikinn á að fá meira fyrir minna, sem er er það sem upprunalega gerði yfirklukkun svo freistandi. Nú verður eina leiðin til að yfirklukka eitthvað af ráði, að kaupa dýra örgjörva og móðurborð........tja eða skipta yfir í AMD.
Re: Intel Sandy Bridge?
Sent: Mán 01. Nóv 2010 16:23
af AntiTrust
audiophile skrifaði:Já ég veit, en meirihlutinn af fólki mun kaupa 1155 og þá hverfur möguleikinn á að fá meira fyrir minna, sem er er það sem upprunalega gerði yfirklukkun svo freistandi. Nú verður eina leiðin til að yfirklukka eitthvað af ráði, að kaupa dýra örgjörva og móðurborð........tja eða skipta yfir í AMD.
Tjah, er það?
Mér hefur nú fundist hérna að menn séu frekar að stökkva á 1366 en 1156.
Re: Intel Sandy Bridge?
Sent: Mán 01. Nóv 2010 16:51
af Olafst
Fer eftir því hvernig þið skilgreinið "fólk" og "menn"
flestir notendur hérna fara eflaust í 2011 á meðan hinn "almenni" notandi fer líklega í 1155
Re: Intel Sandy Bridge?
Sent: Þri 02. Nóv 2010 09:58
af corflame
audiophile skrifaði:Vill bara minna á að með Sandy Bridge deyr FSB yfirklukkun, eða yfirklukkun eins og við þekkjum í dag. Einungis verður hægt að yfirklukka með því að kaupa sérstaka (aðeins dýrari) útgáfu af örgjörvunum, með K í nafninu. Það verður einungis hægt að yfirklukka þá með því að breyta multiplier.
Semsagt, no more free overclocking.
S.s. verður eins og í gamla daga, þegar eina leiðin til að yfirklukka var að fikta í margfaldaranum

Annars hef ég fulla trú á móðurborðsframleiðendum til að finna nýjar leiðir til að kreista aðeins meiri afköst út úr örgjörvanum.
Re: Intel Sandy Bridge?
Sent: Þri 02. Nóv 2010 10:05
af AntiTrust
Olafst skrifaði:Fer eftir því hvernig þið skilgreinið "fólk" og "menn"
flestir notendur hérna fara eflaust í 2011 á meðan hinn "almenni" notandi fer líklega í 1155
Og þá skiptir læst SKU líklega litlu þar sem hinn "almenni" notandi er lítið að sækjast eftir OC.