Síða 1 af 1

Ekki gott mál!

Sent: Mán 01. Mar 2004 13:32
af wICE_man
Það á ekki af blessuðum Prescottnum að ganga, eftir að hafa dregist lengi vegna vandamála í verksmiðjuvinnslu fékk hann mjög misjafna dóma, aðalega sökum mikillar orkunotkunnar og tilheyrandi hita. Nú er Intel búið að fresta útkomu 3GHz prescott örrans fram í Apríl og mun hann þá eingöngu vera 775 pinna, þetta er slæmt af því að:

1. Hætt er við að frekari verðlækkanir á P4 línunni dragist á langinn.

2. Uppfærslumöguleikar á socket 478 móbóum minnka og enda sennilega með 3.4GHz Northwood.

3. Gefur til kynna að vandræðin með Prescott séu meiri en í fyrstu var gert ráð fyrir, það gæti tafið fyrir hraðaaukningu á þeim.

4. Fyrir AMD fan-boys þá gæti AMD séð sér leik á borði og haldið verðunum háum á 64-bita örrunum sínum enn lengur.

Krækjan er hér:

http://www.digitimes.com/NewsShow/Article.asp?datePublish=2004/03/01&pages=A7&seq=44

Hvað segja innherjar um þetta?

Sent: Mán 01. Mar 2004 14:00
af Bendill
Öll vandræði hjá fyrirtækjum sem deila markaði með einu öðru fyritæki eru af hinu illa. Það þýðir að markaðsþróun stöðvast í einhvern tíma. Sérstaklega ef það er á þessum markaði, þá sér hitt fyrirtækið sér leik á borði og lætur verð standa í stað...

En annars eru þetta skrýtnar fréttir, ég hefði ekki búist við því að Intel færi út í aðra sökkla línu eftir þessa glimrandi sókn á 478 pinna sökklinum. Ég tel að þeir hafi vaðið út með Prescott'inn allt of snemma vegna sóknar AMD inn á þeirra svæði, þeir voru orðnir vel settir með "high-performance" helminginn af markaðnum fyrir Athlon64 tíðina. Það hefur komið fram í þessum vandamálum með Prescott, léleg orkunotkun, hitavandamál og slappur yfirklukkari (má rekja til hitavandamálsins). Þeir hefðu frekar átt að leyfa Prescott að slíta barnskónum inni á tilraunastofu heldur en á markaðnum. :P

Sent: Mán 01. Mar 2004 20:23
af gumol
Er ekki það nákvæmlega sama að gerast með AMD?
Eða ætla þeir að fara mikið ofar með XP línuna sína?

Sent: Mán 01. Mar 2004 22:37
af dadik
Nei, AMD lendir líklegast ekki í þessum málum strax þar sem þeirra gjörvar eyra á lægri klukkuhraða. Það er bara að koma betur og betur í ljós að sú stefna sem Intel tók að auka afköstin með því að setja mesta áherslu á klukkuhraðann er ekki að borga sig. Til að ná háum klukkuhraða þarftu að vera með smáar rásir og flutningurinn yfir í 90nm prócess hefur reynst bæði dýr og erfiður.

Enda sjá þetta flestir sem nenna að kynna sér þessi mál. T.d. er nokkuð ljóst að Intel kemur til með að færa áhersluna yfir á tækni á borð við þá sem er notuð í Pentium-M, sem er einn best hannaði kubbur sem Intel hefur sent frá sér í langan tíma. Þetta sést ma. á því að yfirmaður hönnunardeildarinnar í Ísrael (þar sem Pentium-M var hannaður) fékk ansi góða stöðuhækkun á dögunum. Sú ákvörðun að selja Pentium-M í desktop vélar skýtur líka stoðum undir þessa kennginu.

þannig að nei, AMD lendir ekki í sömu vandræðum í bráð. Og sú ákvörðun að skipta úr XP línunni í núverandi mynd er einfaldlega byggð á því að arkitektúrinn er kominn til ára sinna og kominn tími til að endurnýja.

- dk

Sent: Mán 01. Mar 2004 23:27
af gumol
Akkurat það sem þið voruð að gagnrína við Intel er að gerast á AMD :D

Sent: Mán 01. Mar 2004 23:29
af ICM
gumol skrifaði:Akkurat það sem þið voruð að gagnrína við Intel er að gerast á AMD :D

wtf

Re: Ekki gott mál!

Sent: Mán 01. Mar 2004 23:35
af gumol
wICE_man skrifaði:Nú er Intel búið að fresta útkomu 3GHz prescott örrans fram í Apríl og mun hann þá eingöngu vera 775 pinna, þetta er slæmt af því að...

Ég var að Svara þessu (aftur)

Ég var ekki að svara dadik enda vara það bara eitthvað út í bláin :roll: .

Sent: Þri 02. Mar 2004 00:24
af wICE_man
AMD er ekki að henda XP örranum fyrir fullt og allt, þeir eru að kasta Socket A fyrir róða, enda með elstu sökklum á sjónarsviðinu í dag XP mun hins vegar koma út á socket 754 með innbyggðri minnisstýringu svona Athlon64 nema bara 32 bita :P

Ástæðan fyrir þessum fluttning er innbyggða minnisstýringin sem notar þessa extra pinna, ástæðan fyrir 775 pinnum nýja sökkulsins hjá Intel er hins vegar öllum hulin, skildu þeir vera að feta sömu braut og AMD eða eru þeir að galdra fram eitthvað nýtt? Hver er ástæðan fyrir öllum fjöldanum af transistorum í Prescott? Þó að skyndiminnið hafi verið tvöfaldað þá er stór hluti aukningarinnar óútskýranleg út frá þeim breytingum sem hafa verið opinberaðar. Hvað skyldi leynast þarna?

Við munum kannski sjá það með tilkomu socket 775, verðum bara að bíða þolinmóð, Intel eru ekkert að kjafta frá núna.

Ég er með þá theoríu að Intel hafi í skyndi skellt saman einhvers konar innbyggðri minnisstýringu fyrir Prescottin í flýti og skellt henni inn og hún sé það sem sé að valda straumlekanum, auka smárafjölda og 775 pinna sökkulumskiptunum hjá Hr. P. Þetta eru algjörar getgátur hjá mér en væri það ekki cool!?!?

Eða eru þetta falinn 64-bita stuðningur, aðeins tíminn mun leiða það í ljós.

Sent: Þri 02. Mar 2004 00:52
af gumol
Bara nokkuð sammála þessu seinasta bréfi.

Okkur tókst að verða nokkurnvegin sammála. Þetta verður að halda uppá. :D

Sent: Þri 02. Mar 2004 00:56
af gnarr
dadik skrifaði:Nei, AMD lendir líklegast ekki í þessum málum strax þar sem þeirra gjörvar eyra á lægri klukkuhraða. Það er bara að koma betur og betur í ljós að sú stefna sem Intel tók að auka afköstin með því að setja mesta áherslu á klukkuhraðann er ekki að borga sig. Til að ná háum klukkuhraða þarftu að vera með smáar rásir og flutningurinn yfir í 90nm prócess hefur reynst bæði dýr og erfiður.


en þegar amd neyðist til að skipta yfir í 90nm, þá verður intel kominn með miklu meiri reynslu. ég held að þeir séu bara að fikta í þessum 90nm til að komast í gegnum það stig og geta farið að nýta nýjar tæknir betur. en það er alltaf erfitt að þróa svona stóra hluti, og þetta er ekkert gert með 2$ og vaxlitum.

Sent: Þri 02. Mar 2004 01:01
af gnarr
wICE_man skrifaði:
Ég er með þá theoríu að Intel hafi í skyndi skellt saman einhvers konar innbyggðri minnisstýringu fyrir Prescottin í flýti og skellt henni inn og hún sé það sem sé að valda straumlekanum, auka smárafjölda og 775 pinna sökkulumskiptunum hjá Hr. P. Þetta eru algjörar getgátur hjá mér en væri það ekki cool!?!?

Eða eru þetta falinn 64-bita stuðningur, aðeins tíminn mun leiða það í ljós.


NÁKVÆMLEGA það sama og ég hef verið að spá. ég er búinn að lesa svo mikið up þennann örgjörfa og allstaðar hefur komið fram þetta ótrúlega magn af smárum, en samt bara svona lítill performance munur á 462socketinu sem ég hef veri ðað brjóta heilann yfir. ég held að þetta sé eitthvað sem intel hafi sett í örgjörfana og er í rauninni ekki í notkun því að núverandi socket og móðurborð styðji það ekki.

Sent: Þri 02. Mar 2004 12:33
af wICE_man
Digitimes hafa nú breytt fréttinni, þarna er talað um "general availability" þ.e. hægt að fá örgjörvan hjá útvöldum aðilum í OEM formi. Þannig að við munum ekki geta keypt retail prescott fyrir socket 478.

Sent: Þri 02. Mar 2004 12:54
af wICE_man
Og nú var ég að sjá á att.is að þeir eru með P43.0E í retail pakkningum!

Digitimes hafa nú verið að hlaupa dálítið á sig þarna, þeir standa samt fastir á sínu, ég veit bara ekki lengur hvað þeir eiga við með "general availability", kanski við Íslendingar séum einhver forréttindahópur, en líklegra er þó að digitimes hafi eitthvað ruglast.

Ég mun halda áfram að fylgjast með þessu.