Síða 1 af 1

Selja iPad og kaupa i7 mulnings uppfærslu?

Sent: Þri 28. Sep 2010 15:32
af gissur1
Sælir vaktarar

Ég er búinn að vera að pæla í uppfærslu í nokkurn tíma og langar að fá mér i7 920, x58 borð, 6-12gb ddr3, annað 5850 og ssd og allt draslið en ef ég ætla að gera það verð ég eiginlega að selja elsku (litla) ipadinn minn og ég get ekki ákveðið mig svo ég spyr ykkur. Á ég að selja iPadinn minn og bæta 100-120þ. við og kaupa mér mega svala uppfærslu ? Plís segið já eða kannski ekki, eða jú eða æji aaaaah

Re: Selja iPad og kaupa i7 mulnings uppfærslu?

Sent: Þri 28. Sep 2010 15:36
af Glazier
Klárlega já.. iPadinn er ekkert nema stækkaður ipod touch ;)

Re: Selja iPad og kaupa i7 mulnings uppfærslu?

Sent: Þri 28. Sep 2010 15:38
af gissur1
Glazier skrifaði:Klárlega já.. iPadinn er ekkert nema stækkaður ipod touch ;)

Ahhh takk, mig vantaði að heyra þetta.

Endilega skítið yfir ipad og segið eitthvað sniðugt.

Re: Selja iPad og kaupa i7 mulnings uppfærslu?

Sent: Þri 28. Sep 2010 15:43
af gissur1
Hvernig kassa mæla menn svo með uppá hávaða.
S.s. hægt að sofa í sama húsi og tölvan þegar hún er í gangi.

CM Cosmos er ekki alveg að gera sig.

Re: Selja iPad og kaupa i7 mulnings uppfærslu?

Sent: Þri 28. Sep 2010 15:47
af Frost
Að bera saman skemmtuninia sem þú færð úr Ipad og i7 vél er eins og að bera saman i7 vél og spýtu :P Það er ekki mikil fjölbreytni í Ipad en i7 vél er alltof skemmtileg. Fullt af leikjum í boði og gaman að skella sér á lan með félögum.

Re: Selja iPad og kaupa i7 mulnings uppfærslu?

Sent: Þri 28. Sep 2010 15:50
af gissur1
Frost skrifaði:Að bera saman skmmtuninia sem þú færð úr Ipad og i7 vél er eins og að bera saman i7 vél og spýtu :P Það er ekki mikil fjölbreytni í Ipad en i7 vél er alltof skemmtileg. Fullt af leikjum í boði og gaman að skella sér á lan með félögum.

Já akkurat

Ég held að þetta sé þá bara komið á hreint.

<PM> ef einhver vill kaupa 32GB iPad á góðu verði.

Re: Selja iPad og kaupa i7 mulnings uppfærslu?

Sent: Þri 28. Sep 2010 15:51
af BjarkiB
gissur1 skrifaði:Hvernig kassa mæla menn svo með uppá hávaða.
S.s. hægt að sofa í sama húsi og tölvan þegar hún er í gangi.

CM Cosmos er ekki alveg að gera sig.

Antec p182-3 eða p193 fyrir hljóðlátan og flottan kassa.

Re: Selja iPad og kaupa i7 mulnings uppfærslu?

Sent: Þri 28. Sep 2010 15:53
af Lexxinn
Bara svo ég spyr hvað þýðir gott verð á svona tæki sem kostar nýtt 160þúsund hér á landi?

Bara spyr uppá forvitni því miður hef ég ekki efni á þessu þrátt fyrir svaka góðan díl.

Re: Selja iPad og kaupa i7 mulnings uppfærslu?

Sent: Þri 28. Sep 2010 16:00
af gissur1
Lexxinn skrifaði:Bara svo ég spyr hvað þýðir gott verð á svona tæki sem kostar nýtt 160þúsund hér á landi?

Bara spyr uppá forvitni því miður hef ég ekki efni á þessu þrátt fyrir svaka góðan díl.

Keyptur hjá BUY.is á 120þ. í lok júní (kostar núna 130 þar)
Venjulega myndi ég setja 110þ. fyrir pakkann (iPad, docka, hulstur)
EEEN afþví að ég er svo æstur í að fá uppfærslu í tölvuna ætla ég að asnast til að selja hann á 90-100þ.

Hann er betur farinn heldur en Aston Martininn hans Jay Leno og allt stuffið verður afhent hreint og bónað í umbúðum :megasmile

Re: Selja iPad og kaupa i7 mulnings uppfærslu?

Sent: Þri 28. Sep 2010 16:31
af coldcut
gissur1 skrifaði:

ætla að gefa þér eitt ráð...seldu iPadinn á mac.vaktin.is eða maclantic.is ;) færð toppverð fyrir þetta á öðrum hvorum staðnum!

Re: Selja iPad og kaupa i7 mulnings uppfærslu?

Sent: Þri 28. Sep 2010 16:33
af BjarniTS
wifi+3g ?

Re: Selja iPad og kaupa i7 mulnings uppfærslu?

Sent: Þri 28. Sep 2010 16:34
af gissur1
BjarniTS skrifaði:wifi+3g ?

Nei bara WiFi