Síða 1 af 2
LCD skjáir - Dauðir pixlar.
Sent: Lau 21. Feb 2004 20:26
af Snikkari
Ég keypti mér Neovo LCD skjá um daginn fyrir vinnuvélina mína og það voru 3 dauðir pixlar í honum. Ég skilaði honum og fékk annan í staðinn, sá er með einum dauðum pixli(blár).
Er þetta eðlilegt, getur maður vænst þess að það séu alltaf dauðir pixlar í LCD skjáum.
Á maður að fara og skila þessum líka ?
Sent: Lau 21. Feb 2004 21:24
af WarriorJoe
Hvernig lýsa þessir dauðir-pixlar sér? Ég er núna með 18,1" Medion LCD skjá, og eftir að hafa lesið þetta fór ég að pæla í þessu

Sent: Lau 21. Feb 2004 21:38
af Snikkari
Þetta er bara einn lítill punktur sem er alltaf blár.
Sent: Lau 21. Feb 2004 22:35
af ICM
það er einn dauður pixel á lófavélinni minni, ekki fór ég að skipta henni útaf því þótt hún sé með mun færri pixels en tölvuskjáir.
Sent: Lau 21. Feb 2004 22:52
af axyne
Snikkari skrifaði:Þetta er bara einn lítill punktur sem er alltaf blár.
ég myndi telja þig heppinn að hafa bara einn dauðan punkt.
tomshardware var með grein um dauða puntka í Lcd skjáum og reglugerðum um hvað meigi hafa marga punkta dauða punkta á skjá.
framleiðendur voru með mjög mismunandi reglur.
1-3 dauða punkta eða 4-6 litapunktar var svona meðaltalið minnir mig.
Sent: Lau 21. Feb 2004 23:01
af GuðjónR
Þannig að ef maður fer að versla svona skjá þá borgar sig að fá að kveikja á honum í búðinni...
Sent: Lau 21. Feb 2004 23:10
af axyne
GuðjónR skrifaði:Þannig að ef maður fer að versla svona skjá þá borgar sig að fá að kveikja á honum í búðinni...
já

Sent: Lau 21. Feb 2004 23:24
af valur
Hvernig líkar þér þessi LCD skjár annars? Myndiru mæla með honum?
Sent: Lau 21. Feb 2004 23:58
af MezzUp
Deyja ekki pixlarnir með tíma? Þ.e. engir orðnir dauðir í búðinni?
Sent: Sun 22. Feb 2004 00:02
af ICM
hjá mér var hann dauður þegar ég kveikti á vélinni
Sent: Sun 22. Feb 2004 00:40
af axyne
MezzUp skrifaði:Deyja ekki pixlarnir með tíma? Þ.e. engir orðnir dauðir í búðinni?
nei pixlarnir "drepast" í framleiðslu.
tæknin til að búa til Lcd skjái er hreinlega ekki orðin það fullkomin að skjáirnir verða dauðpixlafríir.
allir skjáir fara í eftirlit og dauðir pixlar skoðaðir þeir skjáir sem fara yfir mörkin 1-3 dauðir og/eða 3-5 litapixlar (fer eftir framleiðanda) fara ekki á markað.
Sent: Sun 22. Feb 2004 01:21
af MezzUp
aight, þá passar maður sig á því að kveikja á þeim áður en maður kaupir
Sent: Sun 22. Feb 2004 01:56
af Snikkari
valur skrifaði:Hvernig líkar þér þessi LCD skjár annars? Myndiru mæla með honum?
Já, þetta er fyrsti LCD skjárinn minn og mér finnst hann fínn(fyrir utan þennan eina dauða Pixel), ég hef bara svo lítinn samanburð.
Sent: Sun 22. Feb 2004 03:30
af gumol
ég myndi fara beint út í búð og fá nýann

Sent: Sun 22. Feb 2004 12:31
af GuðjónR
Ég myndi hiklaust skila

Sent: Fim 26. Feb 2004 15:47
af viddi
Þú færð kannski annan með 1 dauðum pixel á betri stað þar sem er erfiðara að taka eftir honum

Sent: Fim 26. Feb 2004 15:52
af pyro
ég er með 1 lcd skjá heima (medion 18.1") og 1 í vinnunni (fujitsu siemens 15") og þessi heima er ekki með neinum dauðum pixlum (sem ég hef fundið ennþá) og þessi í vinnunni er með 2-3 dauða, og mér finnst það bara ekki skipta neinu máli.
Sent: Mán 01. Mar 2004 10:06
af ParaNoiD
Dauðir pixlar eru reyndar alveg eðlilegur hlutur í LCD skjám og framleiðandi venjulega gerir ráð fyrir 3-5 dauðum pixlum.
að fá skjá sem er bara með einum verður að teljast í lagi .

Sent: Mán 01. Mar 2004 11:34
af viddi
Snikkari skrifaði:Þetta er bara einn lítill punktur sem er alltaf blár.
hann er ekkert alltaf blár ég hef séð gula dauða pixla
Sent: Mán 01. Mar 2004 15:34
af gnarr
hann er alltaf blár hjá honum.
Sent: Mán 01. Mar 2004 16:39
af gumol
gnarr skrifaði:hann er alltaf blár hjá honum.
Bahh, það tekur ekki langan tíma að gera einhvern að hardcore linux manni.
Sent: Mán 01. Mar 2004 16:54
af gnarr
gumol skrifaði:gnarr skrifaði:hann er alltaf blár hjá honum.
Bahh, það tekur ekki langan tíma að gera einhvern að hardcore linux manni.
wtf?

Sent: Mán 01. Mar 2004 17:33
af gumol
Varstu ekki að tala um Bluescreen?

Sent: Mán 01. Mar 2004 17:36
af ICM
oh gumol nei
Sent: Mán 01. Mar 2004 17:46
af gnarr
gumol skrifaði:Varstu ekki að tala um Bluescreen?

hahaha

ég er nú ekki orðinn svona hardcore enþá

ég hef reydnar ekki séð bluescreen í alveg ár núna..