Síða 1 af 1

Klukkuhraði hjá radeon

Sent: Lau 21. Feb 2004 17:17
af Nemesis
Ég var að browsa start og rakst á þetta kort:

http://start.is/product_info.php?cPath=80_25&products_id=474

Ég sé að klukkuhraðinn þarna er 500Mhz. Er þetta rétt? Ég hélt að t.d. Radeon 9800XT væri bara með 420Mhz í klukkuhraða, þannig að það passar varla að mun ódýrara kort sé með meiri klukkuhraða.

Sent: Lau 21. Feb 2004 17:37
af Nemesis
Ég sé nú að þetta fær staðist - radeon 9600xt eru t.d. 500Mhz kort.

Hvaða kort af þessum ætti ég helst að fá mér (hugsa fyrst og fremst fyrir leiki, en mun líka nota tv-out):

ATI RADEON™ 9600PRO 128MB DDR - 14.290
Gigabyte ATi Radeon 9600Pro ULTRA 500MHz - 17.990
PowerColor RADEON™ 9600PRO 128MB - 15.390

Sent: Lau 21. Feb 2004 17:56
af OverClocker
Ef þú ætlar að nota TV-out passaðu þig á "Built by ATi" kortunum.. þau eru bara framleidd fyrir ameríkumarkað og því með default NTSC output..

Sent: Lau 21. Feb 2004 18:23
af Arnar
9800xt er samt betra en 9600xt :)

þó klukkuhraðinn sé hærri á 9600xt

Sent: Lau 21. Feb 2004 18:55
af Hlynzit
bjössi, hvað græðiru á yfirklukkun á skjákorti? barea betra benchmark ekkert betra fps í cs sko... :D

Sent: Lau 21. Feb 2004 20:43
af Nemesis
OverClocker: Meinaru að öll ATI Radeon kort séu með ónothæft tv-out? Ætti ég þá frekar að fá mér PowerColor radeon - er það s.s. með öðruvísi

Arnar: Var ekki að segja það - var að spyrja um álit á 3 kortum.

Hlynzit: Skil þig ekki alveg, en ég er ekki að fara að yfirklukka kortið mitt ef þú heldur það, ég var að spyrja um hvaða skjákort ég ætti að fá mér uppá tv-out og performance í leikjum.

Væri einhver með reynslu í þessum málum til í að hjálpa mér? :l

Sent: Lau 21. Feb 2004 23:36
af gnarr
Hlynzit skrifaði:bjössi, hvað græðiru á yfirklukkun á skjákorti? barea betra benchmark ekkert betra fps í cs sko... :D



uhh.. kanski ekki í cs, en það er vegna þess að cs er 8 ára gamall leikur og nýtir skjákortið ekki rassgat. en ef þú ert að fara að spila leiki eins og tildæmis Bf eða HL2, þá græðir maður mikið á að overclocka skjákortið.

Sent: Lau 21. Feb 2004 23:49
af ICM
gnarr skrifaði:
Hlynzit skrifaði:bjössi, hvað græðiru á yfirklukkun á skjákorti? barea betra benchmark ekkert betra fps í cs sko... :D



uhh.. kanski ekki í cs, en það er vegna þess að cs er 8 ára gamall leikur og nýtir skjákortið ekki rassgat. en ef þú ert að fara að spila leiki eins og tildæmis Bf eða HL2, þá græðir maður mikið á að overclocka skjákortið.


úff hann er ekki alveg svona gamall :lol:

Sent: Sun 22. Feb 2004 00:09
af Predator
Jú hann er svona gamall en hann er mjög líklega 5-6 ára en ekki 8 ára. Half-Life kom út 1998 og það eru 6 ár síðan.

Sent: Sun 22. Feb 2004 00:13
af fallen
Cs kom út 1999

Sent: Sun 22. Feb 2004 00:14
af Pandemic
stendur á hl disknum hérna 1997

Sent: Sun 22. Feb 2004 00:14
af Predator
Eins og ég sagði 5-6 ára.

Sent: Sun 22. Feb 2004 00:18
af ICM
Half-Life kom út 1998, ekki ári fyrr!

Sent: Sun 22. Feb 2004 02:57
af Nemesis
Pirrar mig svo við vaktina að fólk virðist alltaf gleyma upprunalega tilgangi póstsins :)

Ég var t.d. að spyrja um skjákort, og það eru komin 5-6 svör um aldur hl/cs! :l

Væri nú ekki einhver sniðugur til í að segja sitt álit á þessum kortum?

Sent: Sun 22. Feb 2004 03:38
af gumol
Það er ekki bara klukkhraðinn sem skiptir máli, það eru fleiri atriði sem koma inní.

Sent: Sun 22. Feb 2004 11:33
af wICE_man
Hvaða kort af þessum ætti ég helst að fá mér (hugsa fyrst og fremst fyrir leiki, en mun líka nota tv-out)


Ég mæli með Powercolor Radeon 9600pro hjá tölvuvirkni á 14.450kr staðgreitt, ódýrt en magnað.

Ég sé að klukkuhraðinn þarna er 500Mhz. Er þetta rétt? Ég hélt að t.d. Radeon 9800XT væri bara með 420Mhz í klukkuhraða, þannig að það passar varla að mun ódýrara kort sé með meiri klukkuhraða.


Ég sé að þú ert búinn að láta Intel menn heilaþvo þig með sínu "megahertz madness", það er fleria sem kemur inn í afköst en klukkuhraði. 9800pro/xt kortin eru með 8 pípum og geta þannig unnið að allt að 8 aðgerðum á klukkupúls á meðan að 9600 kortin eru með 4 pípur og afkasta þannig minnu þó þau séu hærra klukkuð. 9600 kortin hafa þess vegna minni kjarna sem gerir þá ódýrari í framleiðslu en jafnframt er notuð nýrri tækni (0.13nm prósess í stað 0.15nm) við framleiðslu á 9600xt kortunum og eru ATI að prófa sig áfram með þeirri tækni.

Sent: Sun 22. Feb 2004 11:56
af wICE_man
Síðan er stór munur á 9800 og 9800, 9800XT er það hraðasta sem finnst, en 9800SE er lélegra en 9600pro þó það sé dýrara, sama má segja um 9600SE sem er slappara en 9200pro og non-pro kortin!!!!

Síðan ætla ég ekki einu sinni að byrja á Nvidia, það er mikill munur á 5600, 5600pro, 5600(FC), 5600pro(FC) og 5600XT og þau eru sjaldan merkt nógu vel í verslunum. Ath, XT eru ódýru kortin hjá Nvidia en dýru kortin hjá ATI.

Góð kort:

ATI:
9800xt/pro/non-pro
9700pro
9600xt/pro
9500pro
9000pro
8500

Nvidia:
5950Ultra
5900Ultra
5900XT
5700Ultra
5600Ultra(FC)
Ti4600
Ti4200

Slæm kort:

ATI:
9800SE
9600SE
9200 línan eins og hún leggur sig

Nvidia:
5800 Ultra/non-Ultra
5600 old non-pro/XT
5200
G4 460MX (of dýrt)
G4 420MX (of lélegt)