Síða 1 af 1

tölvan eyðileggur mýs :l

Sent: Lau 04. Sep 2010 13:31
af ingibje
sælir

ég var að setja upp gamla tölvu um dagin, og þegar ég tengi usb mús í hana þá virkar músin aldrei, blikkar bara kannski leiserinn nokkrum sinnnum.
enn þegar ég ætla síðan að tengja músina sem var í góðu lagi fyrir í aðra tölvu þá kemur bara upp á dagin að hún eyðilaggðist við að tengja hana
við tölvunna. það kemur malfunction eða hún þekkir ekki usb músina sem er tengd. bara við að tengja hana einu sinni við tölvunna.

svo skipti ég um aflgjafa og þá virkaði eins músin í svona smá tíma, svo kveikti ég aftur á tölvunni og þá kom bara það nákvæmlega sama.

ég er búin að fórna þremur músum í þetta.

veit einhver hvað þetta er, eða hvort það sé hægt að laga þetta og hvort mýsnar séu bara ónýtar ?

spec; s939 mb, 9500gt, 3500+ örgjafi, fyrst var 400w afgjafi svo núna 500w jersey aflgjafi.

Re: tölvan eyðileggur mýs :l

Sent: Lau 04. Sep 2010 14:52
af ZoRzEr
Lenti í svipuðu með eina vél hér fyrr á árinu. Komst að því að aflgjafinn leiddi út í USB og VGA/DVI tengið á morðurborðinu. Endaði alltaf í dökkum reyk úr USB tenginu á músinni. Hyrti af mér tvær mýs helvítis vélin og einn DVI kapal.

Reddaðist eftir að ég hafði tekið aflgjafann og úr vélinni og sett aftur í samaband. Hefur virkað vel síðan.