Radeon 9800XT & Zalman ZM80C-HP
Sent: Þri 17. Feb 2004 15:16
af emmi
Er að hugsa um að skipta original kælingunni út fyrir þessa Zalman kælingu. Er einhver sem hefur gert þetta með sitt 9800 Pro/XT kort? Var einnig að spá hvort það væri svo í lagi að nota AS5 í stað kremsins sem kemur með Zalman unitinu.
Kveðja.
Sent: Þri 17. Feb 2004 15:56
af axyne
ég sá einhvernstaðar review um akkúrat þetta sem þú ert að tala um. man bara ekkert hvar það var.
allavega þá var kortið að keyra mjög heitt bara með heatsinkinu og gátu ekki yfirklukkan neitt. síðan ef þeir bættu við viftu þá voru þeir ekkert betur settur en bara með orginal kælinguna sem er á 9800XT kortinu.
kæliunitið er mjög vel hannað og hljóðlátt. allavega á XT útgáfunni. ég myndi ekki segja að það væri hagnaður í því að skipta yfir í zalman ef þú ert með XT útgáfu. hugsanlega ef þú ert með pro.
Re: Radeon 9800XT & Zalman ZM80C-HP
Sent: Þri 17. Feb 2004 16:45
af Snikkari
Ég er með svona zalman heatsink og viftu á FX5700 Ultra korti.
EKKI fá þér svona ef þú ert að yfirklukka kortið.
Það fer engin kæliplata á minnið.
Kortið er original 475/906.
Ég náði kortinu mínu uppí 550/1000 með original kælingunni, en bara 510/940 með zalman heatsinkinu, samt lappaði ég og nota AS5.
Þetta er nánast hljóðlaust en samt sem áður jókst hitinn töluvert.
Skoðaðu þetta vel áður þú gerir nokkuð, það hljóta einhverjir aðrir en ég að hafa gert þetta.