Síða 1 af 1

Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Fös 20. Ágú 2010 15:33
af KermitTheFrog
Var að tapa rúmum 900 gb af efni rétt í þessu. Djöfull er þetta svekkjandi. Fullur diskur af þáttum og forritum gone.

Þetta sýnir manni bara það að sama hver framleiðandinn er, harðir diskar eru harðir diskar.

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Fös 20. Ágú 2010 15:42
af AntiTrust
RAID er klárlega eina vitið þegar maður er kominn í svona gagnamagn :)

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Fös 20. Ágú 2010 16:11
af dadik
Vissulega svekkjandi.

Ég tékkaðu samt á hvort að diskurinn sé í ábyrgð (http://www.seagate.com) upp á að fá replacement hjá þeim. Ég lenti í sambærilegu tilviki núna fyrr í sumar, sendi þeim bilaða diskinn og fékk annan í staðinn. Gögnin töpuðust náttúrulega en það var ágætt að fá annan disk.

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Fös 20. Ágú 2010 16:42
af svanur08
KermitTheFrog skrifaði:Var að tapa rúmum 900 gb af efni rétt í þessu. Djöfull er þetta svekkjandi. Fullur diskur af þáttum og forritum gone.

Þetta sýnir manni bara það að sama hver framleiðandinn er, harðir diskar eru harðir diskar.


ekkert búinn að prufa forrit til að ná gögnunum aftur ?

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Fös 20. Ágú 2010 17:12
af KermitTheFrog
Diskurinn er dauður. Hann var í ábyrgð hjá Tölvuvirkni og Björgvin lét mig glaður fá bara nýjan í staðinn.

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Fös 20. Ágú 2010 17:56
af einarhr
My name is Nobody and nobody is perfect.

Leiðilegt að þú tapaðir þessum gögnum en því miður eru engar tövluvörur í dag fullkomnar en af eigin reynslu þá hafa Seagate diskar hjá mér lifa vel og lengi en ég hef líka lent einusinni í biluðum Seagate en það fær mig samt sem áður ekki til að skipta yfir í eitthvað annað.

En svona bara til að vera smá leiðó þá verð ég að tyggja sömu tugguna sem hefur verið svarað hér síðustu ár....


Taka afrit reglulega af því sem þú mátt ekki missa. [-X

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Fös 20. Ágú 2010 20:54
af KermitTheFrog
Já, bara þar sem ég er fátækur námsmaður í hlutastarfi þá á ég ekki alla peninga í heiminum þá finnst mér það ákveðin peningasóun að vera með allt þetta 2x. Einnig þar sem þetta eru bara sjónvarpsþættir (sem betur fer fann ég forritamöppuna á öðrum disk) og auðveldlega replaced þá finnst mér óþarfi að backa það allt upp.

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Fös 20. Ágú 2010 21:28
af astro
Vá svekkelsi.
Ég hef alltaf átt bara Western Digital HDD þangað til fyrir 2 árum.
Ég keypti mér flottann 500Gb Seagate Barracuda, 3 mánuðum seinna.. ALL GONE..
Fór niðrí Tölvuvirkni, þeir testuðu hann.. ónýtur, fékk nýjan, fylti hann.. búff 4 mánuðum seinna.. ALL GONE
Aftur í Tölvuvirkni, testuðu hann.. ónýtur, átti að fá nýjan, keypti mér í staðinn laptop og hef ekki farið í borðtölvu síðan :)
Lesson learn'd.. DO NOT STORE ALL YOUR PORN AT ONE PLACE! :o haha.. :oops:

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Fös 20. Ágú 2010 21:36
af AntiTrust
Hver var að tala um um að taka afrit af öllu?

RAID5 notar parity, ekki mirrored.

Mynd

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Sun 29. Ágú 2010 22:52
af KermitTheFrog
Var að lesa um þetta á Wiki. Raid 5 virkar semsagt þannig að þú getur misst einn disk úr án þess að allt fari úr böndunum, svo lengi sem maður skipti honum út. Minnkar þetta ekkert plássið?

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Þri 31. Ágú 2010 09:40
af k0fuz
Gerðist það sama við mig ekki fyrir löngu síðan, var með 1TB segate og var að færa allt yfir á hann og fara formatta, svo deyr hann akkurat á meðan og ég missi 800-900 gb af drasli :evil:

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Þri 31. Ágú 2010 09:48
af beatmaster
Þetta er ansi áhugaverð pæling í þessa umræðu, Hitachi 4TW!

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Þri 31. Ágú 2010 09:52
af AntiTrust
KermitTheFrog skrifaði:Var að lesa um þetta á Wiki. Raid 5 virkar semsagt þannig að þú getur misst einn disk úr án þess að allt fari úr böndunum, svo lengi sem maður skipti honum út. Minnkar þetta ekkert plássið?


Jú. Formúlan til að reikna út stærð RAID5 stæðu er (N-1)*diskapláss, þar sem N er fjöldi diska. Minnsti diskurinn ræður svo stærð hvers units.

Þeas, þú þarft að lágmark 3diska til að keyra RAID5. Bara sem dæmi þá er ég með RAID5 á servernum hérna heima, það eru 8x1.5TB diskar sem þýðir að ég fæ total diskapláss upp á 10.5TB og 1.5TB total fer í parity.

Það eru kostir og gallar, þeas write hraði verður verri og getur undir mjög spes kringumstæðum orðið mjög hægur, en hinsvegar færðu margfaldan leshraða.

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Þri 31. Ágú 2010 09:56
af ZoRzEr
Lenti í sama hlut með 1.5tb Seagate Barracude disk. Pjúra leiðindi. Náði samt að redda flestu. Diskurinn var alveg að fara drepast, tók eftir skrítnu tikk hljóði og hann var stanslaust að detta út. Eftir nokkra tíma af trial and error komst ég að því að ég gat flutt 42gb í einu án þess að diskurinn datt út. Þannig þá hófst ein lengsta nótt minnar ævi. Tók u.þ.b. klukkutíma að færa þessi litlu 42gb, í hvert einasta skipti. Náði rúmlega 900gb samtals. Næstu sólahringur.

Færa 42gb - diskurinn dettur út - reboot til að fá diskinn aftur. Rinse and repeat.

Diskurinn var keyptur hjá Tölvutækni. Fékk nýjann auðvitað strax. Keypti mér svo 2 Samsung 1tb diska og nota þá sem backup í raid 1.

Tók ekki aftur þá áhættu að nota diskinn í eitthvað mikilvægt.

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Þri 31. Ágú 2010 10:10
af GuðjónR
beatmaster skrifaði:Þetta er ansi áhugaverð pæling í þessa umræðu, Hitachi 4TW!

hahahahahahaha er einhver hérna svo VITLAUS að taka mark á Rússneskri könnun?
Hitachi keypti IBM HDD framleiðsluna, Deskstar aka DEATHSTAR, og á það nú að vera best?
hahahahahahaha....

Mjöööög áræðanleg könnun. :^o

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Þri 31. Ágú 2010 10:18
af chaplin
Mikilvæg gögn = Raid

Annars ef ég ætti að kaupa diska í dag myndi ég ekki eltast við Hitachi þótt þeir séu ágætir, myndi fara beint í Samsung F3 Spinpoint, er með 5 þannig diska eins og er, ofur hljóðlátir, mikið les/skrifhraði og af því sem ég best veit eru þeir með lægstu bilunartíðni sem maður finnur.

Bewarned, til 3 týpur af Samsung 1tb - ég er að tala um HD103SJ.

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Þri 31. Ágú 2010 12:31
af rapport
Mín reynsla í hnotkurn:

Hitachi = Verða lélegir en drepast ekki, hef náð gögnum af diski sem hljómaði eins og traktor á meðan ég var að kópera af honum, aldrei tapað gögnum.

Seagate = Hafa virkað 100% nema einn sem bara dó einn daginn, ef hann náði að keyra sig upp kom hann alltaf inn sem RAW en ég gat formattað haan og sett gögn inn á hann = notað hann þar til ég bootaði aftur, þá var hann aftur bara RAW. (mjög skrítið).

WD = Hafa reynst ágætlega hjá mér, aldrei tapað gögnum.

Samsung = Var til einhverra undarlega vandræða, virkaði ekki með hvaða hardware sem er.

Fujitsu = Drasl.. og þar sem þeir sameinuðust Toshiba = kaupi það aldrei aftur = algjört no no í mínum augum...

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Þri 31. Ágú 2010 12:47
af Pandemic
GuðjónR skrifaði:
beatmaster skrifaði:Þetta er ansi áhugaverð pæling í þessa umræðu, Hitachi 4TW!

hahahahahahaha er einhver hérna svo VITLAUS að taka mark á Rússneskri könnun?
Hitachi keypti IBM HDD framleiðsluna, Deskstar aka DEATHSTAR, og á það nú að vera best?
hahahahahahaha....

Mjöööög áræðanleg könnun. :^o


Hélt að það væri almennt vitað að Hitachi framleiddi bestu diskana. Eftir Deathstar skandalinn hefur svona diskur ekki klikkað.

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Þri 31. Ágú 2010 12:51
af GuðjónR
Pandemic skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
beatmaster skrifaði:Þetta er ansi áhugaverð pæling í þessa umræðu, Hitachi 4TW!

hahahahahahaha er einhver hérna svo VITLAUS að taka mark á Rússneskri könnun?
Hitachi keypti IBM HDD framleiðsluna, Deskstar aka DEATHSTAR, og á það nú að vera best?
hahahahahahaha....

Mjöööög áræðanleg könnun. :^o


Hélt að það væri almennt vitað að Hitachi framleiddi bestu diskana. Eftir Deathstar skandalinn hefur svona diskur ekki klikkað.

Well...ég myndi ekki þora að taka sénsinn...

Reyndar bila allir HDD fyrr eða síðar. Eina slæma reynslan sem ég hef af HDD er af gömlu IBM, núna Hitachi.

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Þri 31. Ágú 2010 15:01
af g0tlife
vá minn elsti er 6 ára 200 GB enþá í fullu fjöri kveikt á honum allann daginn. Þessi þráður er að láta mig vilja taka allt af honum. Hann var keiptur í Task þegar þeir voru enþá á fyrsta staðnum sínum :8)

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Þri 31. Ágú 2010 15:34
af bixer
ég hef alltaf verið heppinn með hdd, á t.d. einn sata 80 gb úr dell tölvu sem var keypt fyrir 5 árum, nokkra 60 gb+ ide diska sem eru líklegast 10 ára+ sem ég nota í server... hef líka alldrei lent í að hdd deyji hjá mér og nenni ekki að backupa, ég ætti samt eiginelga að byrja á því miðað við þennann þráð...

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Þri 31. Ágú 2010 17:32
af Leviathan
Fyrst þú hefur verið heppinn svona lengi hlýtur að fara að styttast í feil hjá þér. Svo já, ég myndi taka backup á meðan þú getur. :lol:

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Þri 31. Ágú 2010 17:45
af biturk
sama hjá mér, aldrei krassað svo illa að ég tapi gögnum


er búnað nota sama stýriskerfisdiskinn síðann 2001 og aldrei slegið feilpúst eða komið óvelkomið hljóð :lol:

Re: Mín fyrsta slæma reynsla af Seagate

Sent: Þri 31. Ágú 2010 19:56
af rapport
Leviathan skrifaði:Fyrst þú hefur verið heppinn svona lengi hlýtur að fara að styttast í feil hjá þér. Svo já, ég myndi taka backup á meðan þú getur. :lol:


Ég ætlaði að kommenta og vitna í common belief um bilanir og veldisdreifingu en þar sem maður finnur fyrir smá auknu pressure að fact check-a það sem maður setur inn þá hætti ég við, sérstaklega eftir að hafa lesið þetta...

http://labs.google.com/papers/disk_failures.html

Fróðlegt að sjá hvernig SMART gerir lítið sem ekkert gagn til að sjá fyrir að HDD sé að skemmast...