Síða 1 af 1
HDMI hljóðvandamál
Sent: Sun 01. Ágú 2010 15:36
af Turiel
Sælir, ég var að setja nýtt skjákort í vélina 260GTX og fæ bara surg úr hljóðinu í sjónvarpinu.
Ég er að nota innbyggða hljópkortið á móðurborðinu.
Þetta virkaði fínt með n9600gt kortinu sem ég var með, núna virðist þetta vera eitthvað smá vesen.
Er einhver með hugmyndir fyrir mig?
Re: HDMI hljóðvandamál
Sent: Sun 01. Ágú 2010 20:56
af Matti21
Sennilega passthrough vandamál. 260GTX kortið er að senda hljóðið sem bitstream sem sjónvarpið getur ekki afkóðað. Þarft að finna "HDMI Audio" einhverstaðar í stillingum og breyta því í analog í staðinn fyrir digital.
Re: HDMI hljóðvandamál
Sent: Sun 01. Ágú 2010 23:36
af division
Þarft að tengja litla snúru frá móðurborðinu i skjákortið hun er 2ja víra, með hvítum endum. (SPDIF ef ég man rétt)
Re: HDMI hljóðvandamál
Sent: Mán 02. Ágú 2010 04:41
af Turiel
division skrifaði:Þarft að tengja litla snúru frá móðurborðinu i skjákortið hun er 2ja víra, með hvítum endum. (SPDIF ef ég man rétt)
Þau eru í sambandi við móðurborð og skjákort, ég fæ bara skruðninga úr sjónvarpshátölurum.
Matti21 skrifaði:Sennilega passthrough vandamál. 260GTX kortið er að senda hljóðið sem bitstream sem sjónvarpið getur ekki afkóðað. Þarft að finna "HDMI Audio" einhverstaðar í stillingum og breyta því í analog í staðinn fyrir digital.
Hefuru einhverja hugmynd um hvar þessa stillingu er að finna?
Re: HDMI hljóðvandamál
Sent: Þri 03. Ágú 2010 10:17
af division
Prófaðu að setja gamla aftur í, gæti verið að SPDIF kapallinn sé bilaður eða eh alíka..
Re: HDMI hljóðvandamál
Sent: Þri 03. Ágú 2010 15:57
af Matti21
Turiel skrifaði:Matti21 skrifaði:Sennilega passthrough vandamál. 260GTX kortið er að senda hljóðið sem bitstream sem sjónvarpið getur ekki afkóðað. Þarft að finna "HDMI Audio" einhverstaðar í stillingum og breyta því í analog í staðinn fyrir digital.
Hefuru einhverja hugmynd um hvar þessa stillingu er að finna?
Nopes. Aldrei prófað að tengja hljóðið gegnum HDMI, hef alltaf notast við toslink. En þetta (skruðningarnir) hljómar eins og sjónvarpið sé að fá inná sig digital hljóðrás og reyna að spila hana sem analog.
Hvort þetta sé stilling í Nvidia control panel eða bara spilaranum sem þú ert að nota veit ég ekki. Hvaða spilara ertu að nota?