Síða 1 af 1

vangaveltur um socket

Sent: Sun 01. Ágú 2010 00:09
af littli-Jake
ég fékk það skemtilega verkefni í hendurnar að púsla saman vél fyrir tengdabróðir minn. Í dag á hann handónítann lappa sem getur nákvæmlega EKKI NEITT.
Það er ekki alveg komið á hreint hvað verður mikið $$$ sett í þetta en það verður sjálfsagt um eða yfir 150K.

Vesenið hjá mér er að velja platform. Ég er Intelmaður en er alveg tilbúinn að skoða AMD.

Svo hvort er betri framtíðar fjárfesting 1156 eða 1366? eða er kanski óþarfi að vera að spá eithvað fram í tíman þegar þú ert að fara að fá þér "i" stuff?

Allavega. Á hverju á ég að byrja þegar ég biggi þessa vél?

Re: vangaveltur um socket

Sent: Sun 01. Ágú 2010 00:44
af mercury
held að þú gerir enga svaka i7 vél með 150þús. ef budget er 150k færi ég í amd. eru að gera mjög fína hluti í dag og eru talsvert ódýrari.
Væri samt fínt að taka fram í hvað hann er að fara að nota þetta ?

Re: vangaveltur um socket

Sent: Sun 01. Ágú 2010 16:53
af littli-Jake
ahh gelimdi því. Þetta verður bara leikjavél

Re: vangaveltur um socket

Sent: Sun 01. Ágú 2010 21:10
af darkppl
hérna er ein tölva en þá vantar stýrikerfi http://www.kisildalur.is/?p=2&id=620

Re: vangaveltur um socket

Sent: Sun 01. Ágú 2010 23:22
af TestType
Það eru líka líkur á að nýji örgjörvinn frá AMD, "Bulldozer" (sem verður hugsanlega byltingakenndur), sem kemur á næsta ári styðji nýjasta socketið frá þeim (AM3). Svo það er hugsanlega langsniðugast upp á framtíðar upgrade að gera, en AMD hafa ekki staðfest neitt enn. Þeir eru samt ekki nærri því jafn graðir og Intel að vera sífellt að skipta um sockets og gera gömul móðurborð úrelt.

Hef ekki skoðað intel sérstaklega nýlega en ef mér skilst rétt þá ertu með dautt socket upp á framtíðina að gera nema þú fáir þér i7 örgjörva. Ef ég fer með rangt mál þá einhver endilega að leiðrétta mig.

Re: vangaveltur um socket

Sent: Sun 01. Ágú 2010 23:27
af division
Ef þú ert að leita af notaðari tölvu þá er ég að selja mun betri tölvu en þessi á kisildali. http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=31558 Hæsta boð í hana so far er 105þús

Re: vangaveltur um socket

Sent: Mán 02. Ágú 2010 01:20
af littli-Jake
ég veit vel að ég er eginlega að bera upp vonlausa spurningu. Bæði er ómögulegt að segja hvað Intel og AMD gera næst og það er ekkert til sem er "future proved"
En maður er samt alltaf að rembast við að velja gáfulega. Verð víst að reyna að fá fram nækvæma tölu um hvað það fara miklir peningar í þetta.

Re: vangaveltur um socket

Sent: Mán 02. Ágú 2010 01:58
af division
Maður á ekkert að sóa mjög mikklum pening i tölvu, það fer bara i bakið á manni :)

Re: vangaveltur um socket

Sent: Mán 02. Ágú 2010 13:28
af littli-Jake
division skrifaði:Maður á ekkert að sóa mjög mikklum pening i tölvu, það fer bara i bakið á manni :)


Ertu svona ákafur í að selja mér vélina þína? :wink:

Re: vangaveltur um socket

Sent: Mán 02. Ágú 2010 16:16
af division
Ég er líka ákáfur í að selja hana en málið er bara að tölva endist kanski 3 ár ef að þú ætlar að vera spila bestu leikina og allt þannig :)