Síða 1 af 1

Skjárinn startar ekki ?

Sent: Þri 10. Feb 2004 14:10
af so
Sælt veri fólkið. Er í smá vandræðum með skjáinn hjá mér. Málið er að fyrir 2-3 mán setti ég saman vél úr gömlum "afgöngum" en með nýlegan LCD skjá. Þegar ég startaði svo vélinni þá var eins og skjárinn fengi ekki signal til að kveikja á sér, þegar ég svo ýtti á reset hnappinn þá þá kom hann venjulega upp í ræsingunni og ekkert mál. Ég hélt að þetta væri bara innbyggða skjákortið í móðurborðinu eða eitthvað svoleiðis sem væri með vesen.
Svo áskotnaðist mér nýrra móðurborð, skipti sem sagt um móðurborð, örgjörfa, minni og skjákort. En hvað gerist, allt við það sama, ég þarf að kveikja á vélinni og restarta henni svo eftir 2-3 sek til þess að skjárinn fái merki og kveiki en eftir það er allt í lagi. Er búinn að ná í nýjan driver fyrir skjákortið, setja inn driver fyrir skjáinn og uppfæra BIOS-inn en allt kemur fyrir ekki, skjárinn neitar að taka við merki fyrr en eftir restartið :(
Hafiði tillögur sem gætu nýst mér.

Neovo s-15v skjár
Aopen AK73 pro A móðurborð Award BIOS
Asus AGP-v3800 skjákort
1,6 gig Duron
512 sdr minni

Re: Skjárinn startar ekki ?

Sent: Þri 10. Feb 2004 14:40
af xtr
Mikið að hjá þér :/

Eina hjá mér er úber tölva sem laggar í cs :I

Sent: Þri 10. Feb 2004 16:33
af so
Þetta er ekki stórmál nei og plagar mig ekkert óskaplega að þurfa að ýta á tvo takka til að ræsa vélina en það væri nú samt gaman að finna út hvað veldur :roll:

Sent: Fim 11. Mar 2004 13:39
af so
Vandin leystur :D
Þar sem skjárinn er VESA DPMS capable þá þurfti ég að breyta "video off method" inn í BIOS í DPMS (Display Power Management Signaling)

Ég vona að úber "tölvan" hans xtr laggi ekki lengur í cs.