Kaup á tölvum..


Höfundur
Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1825
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Kaup á tölvum..

Pósturaf Snorrmund » Mán 09. Feb 2004 14:24

ég var að skoða annan þráð þá rakst ég á þetta
Hörde, http://spjall.vaktin.is/posting.php?mode=quote&p=30716 skrifaði:Ef ég væri þú myndi ég bíða með að uppfæra móðurborðið amk þar til Athlon64 borðin (og örgjörvar) verða ódýrari, það eru ekki nema nokkrir mánuðir í það (939-pinna borð og örgjörvar eiga að koma á næstu 2 mánuðum, og verða staðallinn sem kemur til með að gilda. Þau verða líka ódýrari en það sem er í boði núna). Sama gildir með P4, nýja Prescott línan heimtar í flestum tilfellum nýtt móðurborð, þannig að ef þú kaupir þér P4 móðurborð í dag eru góðar líkur á að þú getir ekki uppfært örran seinna.

Ef þú vilt endilega uppfæra eitthvað núna, þá er málið bara að henda 10þús kalli í 2400+ (2600 ef þú finnur) örgjörva. Þar færðu auka 500mhz, sem ættu að duga þér þar til nýju amd/intel línurnar verða aðeins ódýrari. Annars ertu bara að eyða peningum í deyjandi tækni.


nú er ég að fara að fermast eftir 2 mánuði og mun þá kaupa mér tölvu.. er að spá í því hvort það væri gáfaðra að bíða með að kaupa sér þangað til að nýja "línan" verður komin á markaðinn :idea: :?: :idea:



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1199
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 257
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kiddi » Mán 09. Feb 2004 15:34

Smá heilræði frá mjög svo gamalreyndum tölvunerði:

Þegar þú loksins ákveður að stökkva út í djúpu laugina þá er það orðið of seint!

...verst bara að maður getur ekki hætt við í miðju lofti.

Nýjustu hlutirnir eru alltaf fáránlega dýrir, svo skynsamlegasta leiðin til að halda sér á lífi í tölvubransanum án þess að vera nagaður af samviskubiti vegna óhóflegs fjárútláts með sára buddu er að halda sér í mid-range búnaði. Keyptu það sem er NÆST best (eða næst-næstbest ef því er að skipta) - Þannig ertu með frábæra tölvu sem er ræður við allt sem er í gangi að hverju sinni án þess að eyða asnalega miklum pening.

Þeir sem eyða öllum sínum krónum í top-of-the-line búnað standa sárir með ekkert annað en benchmörk að monta sig af, því flest annað myndi keyra sambærilega vel á aðeins eldri búnaði... nema þeir borguðu tugi þúsunda fyrir þessi benchmörk skor.

Mínar tvær krónur!




Höfundur
Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1825
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Snorrmund » Mán 09. Feb 2004 16:35

Takk kærlega fyrir svarið kiddi! ! ! Þetta er reyndar næstum það sama og pabbi sagði..: :) ætli maður geri það ekki... Semsagt kaupi sér system fyrir einhvern pening sem að höndlar samt allt..




Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Mán 09. Feb 2004 16:36

Verðið á þessu gamla hlýtur náttúrlega að lækka eitthvað þegar allt þetta nýja stöff kemur.

Getur kannski sparað smá ef þú nennir að bíða.



Skjámynd

kemiztry
Gúrú
Póstar: 592
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:15
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Pósturaf kemiztry » Mán 09. Feb 2004 16:37

til hvers að bíða? það er alltaf að koma hvort'eð nýtt og nýtt drasl á hverjum degi :)


kemiztry


Höfundur
Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1825
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Snorrmund » Mán 09. Feb 2004 16:38

En sko ég er ekkert að fara nota þessu tölvu undir einhverja Heavy-Duty vinnu... Bara til að leika mér eitthvað í og auðvitað nota hana á dc/irc og svo kannski notar maður hana fyrir skólann hver veit ;)




Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Mán 09. Feb 2004 16:51

Hehehe, satt. Samt ekki á hverjum degi sem það kemur ný örgjörva lína frá AMD/intel með tilsvarandi móbó-um.

Hann var nú að tala um að bíða eftir þessu :)



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1199
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 257
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kiddi » Mán 09. Feb 2004 18:49

Já... en þegar eitthvað splunkunýtt kemur er það sjaldnast mikið hraðara en það sem er í gangi að hverju sinni, að auki sem það eru allskyns compatibility mál sem spretta upp á yfirborðið, reynslan hefur sýnt að fyrir eðlilegt fólk er best að bíða þar til hlutirnir eru orðnir "sjóaðir"... fáanlegir,viðurkenndir, á réttum verðum, og tilbúnir í slaginn með öllum þeim aukahlutum sem maður hyggst nota.

Tökum sem dæmi:

P4+RAMBUS = Þetta leit út fyrir að vera framtíðin, rándýr framtíð en framtíðin samtsem áður... endaði með að RAMBUS var hent í ruslið, ógrynni af sáru fólki með RAMBUS móðurborð og þurfti að selja hægri handlegginn til að hafa efni á minnisuppfærslum

Serial ATA = 2x dýrara en IDE, sami hraði... verðið er að vísu næstum því orðið það sama og á IDE í dag (hvað, ári, 18mán seinna?) en hraðaágóðinn er enginn (nema maður taki auðvitað 10k RPM diskana)

Það er ekkert stress :)

Allar vélar sem eru yfir 2Ghz...AMD & Intel, með 512MB+ DDR333 og góðu DX9 skjákorti (Radeon9600Pro+) eru SAFE út næstu 18 mánuðina a.m.k, .. og þessi búnaður fæst á 1/3 af því verði sem fæst fyrir "topnotch" vél í dag.

Uppfærið ódýrt, uppfærið oft en lítið í einu. Margborgar sig :)
(Líka svo skemmtilegt að vera stöðugt að bæta eitthvað smá og keyra upp öll benchmörk aftur!)

Til gamans má geta! - Yours Truly hérna, viskuboltinn eða þó hitt og heldur, asnaðist til að fjárfesta í Radeon9800XT í nóvember, ekki það að kortið sé slæmt, heldur hef ég ekki ENN getað fundið eitthvað sem fullnýtir þessa elsku... og þegar LOKSINS kemur að því að Half-Life2 eða DoomIII eða eitthvað af hinum fullhlöðnu DX9 asnast til að koma út þá verður kortið mitt orðið úrelt !!! (Þ.e. ekki lengur best! ;) - Hefði betur mátt sparað peninginn og farið í 9600Pro! :evil:




so
Ofur-Nörd
Póstar: 234
Skráði sig: Mið 07. Jan 2004 20:07
Reputation: 0
Staðsetning: Hornafjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf so » Mið 11. Feb 2004 09:26

Skynsmlegt hjá kidda ! Ekki láta þér detta til hugar að kaupa það allra nýjasta ef þú ert eitthvað aðþrengdur með seðla. :roll: