Síða 1 af 1
Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 00:23
af Hauxon
Er eitthvað til í því sem mig minnir að ég hafi heyrt einhvernsstaðar, að tölvuskjáir sem ekki eru einungis nothæfir fyrir tölvur beri aðflutningsgjöld eins og sjónvörp?
Ef svo er, hvernig er úrskurðað um það? Er það eftir því hvort að HDMI tengi er á skjánum? Myndi slíkt ekki setja alla nútíma tölvuskjái í sjónvarpsflokkinn??
Hrannar
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 00:56
af Hj0llz
minnir að það sé bara ef skjárinn er með tuner...þori samt ekki að fullyrða það
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 01:36
af rapport
Heyrði að skjáir með S-video tengi eða gulu RCA væru í dag tollaðir sem sjónvörp...
Sel það ekki dýrara en ég keypti það...
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 14:23
af Hauxon
Sendi fyrirspurn á tollur.is og fékk svar:
starfsmaður tollsins skrifaði:Já í dag eru þessu háttað með tvennu móti,
Venjulegir tölvuskjáir, , þar er eingöngu vskur 25,5% sem gjöld
Svo
„aðrir skjáir“ sem er hægt að tengja við alls konar margmiðlunaræki, HDMI og fleiri möguleikar
Slíkir skjáir eru í öðru tollskrárnúmeri en hefðbundnu tölvskjáir og
Þar eru gjöldin þessi
Tollur = 7,5% + vörugjald = 25% og ´+ vsk ur = 25,5%
Ég bað svo um nánari skýringar á hvað "aðrir möguleikar eru".
Svo virðist sem skjáir með HDMI tengi séu sjónvörp í augum tollsins. Athyglisvert með það í huga að meirihluti nýrra skjáa á markaðnum eru komnir með HDMI tengi.
Kv. Hrannar
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 15:38
af CendenZ
Ég hef nú þurft að díla við tollinn í dágóðan tíma núna þar sem ég var að gera tollaskýrslur og meirihlutinn af þessum tollareglum eru svo úreltar að það nær engri átt.
Og svo vilja starfsmenn tollstjórans ekkert gera, þeir eru allir á eldri árum og fara bara eftir sínum tollareglum sem þeir kunna.... því miður.
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 15:57
af andribolla
erum við þá að tala um að ef þú kaupir tölvu skjá með hdmi tengi sem kostar 50.000 þá er hann komin hingað eftir álagningu hjá tollinum á 84.320kr ? samtals 68% gjöld ?
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 16:49
af Minuz1
Ég keypti 24" Benq skjá á 52 þús í tölvutek,
Alveg eins skjár án HDMi tengi kostaði 44 þús minnir mig...
8 þús fyrir HDMI tengi er ekkert ódýrt en það er heldur ekki einhver 68% álagningarstuðull..
Held að þeir flokki bara venjulega skjái sem venjulega skjái....
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 16:53
af everdark
Sælir,
Skjáir með tuner og/eða RCA/Scart tengjum eru tollaðir sem sjónvörp. Skjáir með HDMI eru ekki tollaðir sem sjónvörp ... ennþá.
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 17:00
af Halli25
everdark skrifaði:Sælir,
Skjáir með tuner og/eða RCA/Scart tengjum eru tollaðir sem sjónvörp. Skjáir með HDMI eru ekki tollaðir sem sjónvörp ... ennþá.
rangt, Tollurinn flokkar líka HDMI skjái sem sjónvörp. Erum búnir að berja hausnum við stein þar láttu mig vita það

Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 17:32
af Minuz1
faraldur skrifaði:everdark skrifaði:Sælir,
Skjáir með tuner og/eða RCA/Scart tengjum eru tollaðir sem sjónvörp. Skjáir með HDMI eru ekki tollaðir sem sjónvörp ... ennþá.
rangt, Tollurinn flokkar líka HDMI skjái sem sjónvörp. Erum búnir að berja hausnum við stein þar láttu mig vita það

http://www.tollur.is/upload/files/calc_ ... 820%29.htm2 flokkar sem "skjáir" geta farið í
"skjáir sem eingöngu er hægt að nota við tölvur"
"Aðrir skjáir og sjónvörp"
HDMI tengi er ekki hægt að nota nema tengja við tölvur, punktur.
Málið er samt að síðan sjónvarpsútsendingar eru orðnar digital, þá eru tölvur notaðar til þess að dreifa sjónvarpsefni.
Þetta er dálítil flækja, en má nota þau rök að HDMI = bara nothæft fyrir tölvur.
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 19:10
af Hauxon
Það var alveg skýrt í svörunum í tölvupóstinum til mín að HDMI tengi þýðir að hægt er að tengja afruglara/videospilara við skjáinn og því flokkað sem sjónvarp. ....og jafnvel önnur tengi (rgb??)
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 19:32
af andribolla
er þá ekki bara hægt að flokka vga tengi undir RBG tengi ? og að þar af leiðandi sjónvarp !

Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 19:41
af FriðrikH
Það væri nú fróðlegt að krefja þá í tollinum um heimild fyrir þessari skilgreiningu í lögum eða reglugerð.
Þeir eru náttúrlega bara komnir í mesta basl með að gera greinamun á tölvuskjám og sjónvörpum, enda mjög strembið.
Um að gera að krefjast bara formlegra svara og að vísað sé á heimildir til flokkunnar, þeim er skylt að veita þau svör.
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 20:17
af rapport
fridrih skrifaði:Það væri nú fróðlegt að krefja þá í tollinum um heimild fyrir þessari skilgreiningu í lögum eða reglugerð.
Þeir eru náttúrlega bara komnir í mesta basl með að gera greinamun á tölvuskjám og sjónvörpum, enda mjög strembið.
Um að gera að krefjast bara formlegra svara og að vísað sé á heimildir til flokkunnar, þeim er skylt að veita þau svör.
Mér finnst persónulega þetta komment álitlegast...
En ef það er einhver greinamunur á sjónvarpi og skjá, þá eru það hátalararnir, svona oftast.
Tollurinn hefur heimild skv. lögum að búa til tollflokkana og skilgreiningarnar á þeim, nánast eftir hentisemi...
Þetta kerfi er 110% stupid og þjónar þeim eina tilgangi að vera samkeppnishamlandi.
Það væri hreinlegast að fækka tollflokkum, hækka tolla og hafa þá almennari.
Á móti kemur að það ætti að lækka VSK til að verslun og viðskipti með vörur innanlands væru ódýrari og þægilegri.
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 20:42
af Halli25
Minuz1 skrifaði:faraldur skrifaði:everdark skrifaði:Sælir,
Skjáir með tuner og/eða RCA/Scart tengjum eru tollaðir sem sjónvörp. Skjáir með HDMI eru ekki tollaðir sem sjónvörp ... ennþá.
rangt, Tollurinn flokkar líka HDMI skjái sem sjónvörp. Erum búnir að berja hausnum við stein þar láttu mig vita það

http://www.tollur.is/upload/files/calc_ ... 820%29.htm2 flokkar sem "skjáir" geta farið í
"skjáir sem eingöngu er hægt að nota við tölvur"
"Aðrir skjáir og sjónvörp"
HDMI tengi er ekki hægt að nota nema tengja við tölvur, punktur.
Málið er samt að síðan sjónvarpsútsendingar eru orðnar digital, þá eru tölvur notaðar til þess að dreifa sjónvarpsefni.
Þetta er dálítil flækja, en má nota þau rök að HDMI = bara nothæft fyrir tölvur.
HDMI er eins og hefur komið fram er hægt að nota með svo miklu meira en sjónvörpum.. vonandi hætta skjáframleiðendur með HDMI sem fyrst og fara í Displayport!
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 21:23
af urban
andribolla skrifaði:erum við þá að tala um að ef þú kaupir tölvu skjá með hdmi tengi sem kostar 50.000 þá er hann komin hingað eftir álagningu hjá tollinum á 84.320kr ? samtals 68% gjöld ?
hvernig í ósköpunum færðu út að 34320 séu 68% af 84320 ?
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 21:29
af hagur
Í mínum huga er þetta alveg 100% kristaltært og ætti ekki að þurfa að flækja þetta eitt né neitt.
Tengin á skjánum eiga ekki að skipta neinu einasta máli.
Ef skjár/tæki er með innbyggðan "tuner", hvort heldur sem er old-skúl analog eða DVB-T/C/S þá mætti flokka hann sem sjónvarp.
Ef skjár er bara monitor, þ.e ekki með tuner heldur bara VGA/DVI/HDMI,S-Video/SCART/Whatever þá ætti hann bara að flokkast sem skjár. Punktur basta. Þannig geta tölvuskjáir haldið áfram að vera tölvuskjáir alveg burtséð frá hvaða tækni er notuð til að koma signalinu frá tölvunni/source-búnaðinum og á skjáinn.
Tölvuskjáir sem innihalda fínerí eins og tuner verða þá bara að kallast sjónvörp og tollast sem slík.
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 21:31
af zedro
urban skrifaði:andribolla skrifaði:erum við þá að tala um að ef þú kaupir tölvu skjá með hdmi tengi sem kostar 50.000 þá er hann komin hingað eftir álagningu hjá tollinum á 84.320kr ? samtals 68% gjöld ?
hvernig í ósköpunum færðu út að 34320 séu 68% af 84320 ?
34.320 / 50.000 = 0,6864

Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 21:45
af andribolla
Zedro skrifaði:urban skrifaði:andribolla skrifaði:erum við þá að tala um að ef þú kaupir tölvu skjá með hdmi tengi sem kostar 50.000 þá er hann komin hingað eftir álagningu hjá tollinum á 84.320kr ? samtals 68% gjöld ?
hvernig í ósköpunum færðu út að 34320 séu 68% af 84320 ?
34.320 / 50.000 = 0,6864

Tollur = 7,5% + vörugjald = 25% og ´+ vsk ur = 25,5%
þetta reyknast þá líklega svona
kaupverð x tollur = a
a x vörugjöld = b
b x Vaskur = c
mismunur á milli kaupverðs og C = d
d deilt með kaupverði = 0,6864 sem gera
68,6%
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fim 08. Júl 2010 23:52
af Olafst
hagur skrifaði:Í mínum huga er þetta alveg 100% kristaltært og ætti ekki að þurfa að flækja þetta eitt né neitt.
Tengin á skjánum eiga ekki að skipta neinu einasta máli.
Ef skjár/tæki er með innbyggðan "tuner", hvort heldur sem er old-skúl analog eða DVB-T/C/S þá mætti flokka hann sem sjónvarp.
Ef skjár er bara monitor, þ.e ekki með tuner heldur bara VGA/DVI/HDMI,S-Video/SCART/Whatever þá ætti hann bara að flokkast sem skjár. Punktur basta. Þannig geta tölvuskjáir haldið áfram að vera tölvuskjáir alveg burtséð frá hvaða tækni er notuð til að koma signalinu frá tölvunni/source-búnaðinum og á skjáinn.
Tölvuskjáir sem innihalda fínerí eins og tuner verða þá bara að kallast sjónvörp og tollast sem slík.
En svona er þetta nú samt og ég veit dæmi þess að fyrirtæki í innflutningi hafi reynt að tjónka við þessu rykfallna og krumpaða batterýi sem Tollurinn er, án árangurs. Þetta er alveg fáránlegt. Tek algjörlega undir það.
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fös 09. Júl 2010 00:20
af Daz
Ég ætla bara að leyfa mér að taka undir að tollurinn (allar deildir, ekki bara "viðskiptaþjónusta") sé álíka anal og male-only klámmynd.
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Fös 09. Júl 2010 00:25
af gardar
Flutti inn 3 stykki 24" Dell ultrasharp skjái fyrir c.a. ári sem eru með eftirfarandi tengi: dvi, vga, composite, s-video, comonent, usb.
Allt flokkað sem tölvuhlutir og einungis borgaður virðisaukaskattur.
Málið er að gera tollskýrslu sjálfur eða fá einhvern annan en tollinn til að gera það.
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Sun 11. Júl 2010 12:45
af everdark
faraldur skrifaði:everdark skrifaði:Sælir,
Skjáir með tuner og/eða RCA/Scart tengjum eru tollaðir sem sjónvörp. Skjáir með HDMI eru ekki tollaðir sem sjónvörp ... ennþá.
rangt, Tollurinn flokkar líka HDMI skjái sem sjónvörp. Erum búnir að berja hausnum við stein þar láttu mig vita það

Skrítið .. ég minnist þess ekki að hafa lent í vandræðum með þetta.
Re: Innflutningur á tölvuskjám
Sent: Sun 11. Júl 2010 23:08
af Halli25
everdark skrifaði:faraldur skrifaði:everdark skrifaði:Sælir,
Skjáir með tuner og/eða RCA/Scart tengjum eru tollaðir sem sjónvörp. Skjáir með HDMI eru ekki tollaðir sem sjónvörp ... ennþá.
rangt, Tollurinn flokkar líka HDMI skjái sem sjónvörp. Erum búnir að berja hausnum við stein þar láttu mig vita það

Skrítið .. ég minnist þess ekki að hafa lent í vandræðum með þetta.
ert þá heppinn bara, en ef þú reynir að flytja inn skjá sem "Tölvuskjá" og tollurinn böstar þig með skjá með HDMI eða álíka tengjum(RCA o.fl.) boom 68,6% tollar og gjöld i stað einfalds vsk. uppá 25,5%
