Síða 1 af 1

Er að fara að kaupa borðtölvu

Sent: Mið 07. Júl 2010 12:32
af lmint
Er svona eiginlega kominn niður á tvær, verðhugmyndin fyrir tölvuna plús skjá er í kringum 200 þús.

Tölvurnar sem ég er að meta eru þessi: http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=1735

eða þessi: http://www.kisildalur.is/?p=2&id=620

Var svo að spá í að taka annan hvorn af þessum skjám hér: http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=26&products_id=1741 (þyrfti þá að bíða til 15. júlí) http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1436

einhver ráð varðandi þetta? (alveg vel opinn fyrir öðrum vélum á svipuðu verði, sem og skjám)

Re: Er að fara að kaupa borðtölvu

Sent: Mið 07. Júl 2010 12:54
af hsm
Svipaðar tölvur en ég tæki Samsung skjáin, á bæði Samsung sjónvörp og t0lvuskjái og er mjööööög sáttur.

Re: Er að fara að kaupa borðtölvu

Sent: Mið 07. Júl 2010 13:10
af ZoRzEr
Vélin frá kísildal er með stærri kassa, væri fleiri uppfærslu möguleikar í framtíðinni, ef það er þinn tebolli.

Samsung skjáir klikka seint. Spurning samt að splæsa 5000kr í viðbót og fá sér þennan : http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1192

1920x1200 upplausn, ekki LED samt en aðeins meira Brightness cd/m². Á einn svona og hann er flawless, mæli eindregið með honum.

Annars á ég líka gamlan BenQ skjá sem er 1920x1200 og er 2 ára, bestu kaup sem ég hef gert, reyndar sökum þess að hann er með HDMI, DVI og VGA tengi. Myndi samt í dag taka Samsung skjáinn sem ég benti á yfir alla aðra skjái (fyrir utan Dell U2410).

Tölvutækni og Kísildalur eru líka topp verslanir sem standa við sitt.

Re: Er að fara að kaupa borðtölvu

Sent: Mið 07. Júl 2010 13:28
af lmint
Þakka skjót svör. Er semsagt ekki það mikill munur að vera með 1600Mhz vinnsluminni frekar en 1333?

Ég var að spá í að versla þetta á sama stað bara svo það er eiginlega spurning um hvort comboið ég myndi velja... annars kann ég að meta innleggið með Samsung skjáinn, veit bara ekki hvort ég geti setið á mér með að eignast nýja vél í dag/morgun - eða eftir c.a. viku :) Það er nokkurnvegið búið að stýra mér í átt að því að vilja eignast LED skjá... en ég viðurkenni að ég hef ekki kynnt mér þetta nægilega svo það má vel vera að það sé engin ástæða til þess að fara í svoleiðis skjá.

(svo er BenQ skjárinn líka ódýrari svo það bíður upp á að ég geti keypt mér einhverja hátalara fyrir 15-20 þúsund)

Re: Er að fara að kaupa borðtölvu

Sent: Mið 07. Júl 2010 14:01
af FriðrikH
fyrir minn part mundi ég fara á combóið hjá tölvutækni, ef þú þarft stærri kassa þá efast ég um að það sé mál að skipta honum út í tilboðinu hjá þeim.

Re: Er að fara að kaupa borðtölvu

Sent: Mið 07. Júl 2010 14:57
af mic