Síða 1 af 1
Prescott
Sent: Fim 05. Feb 2004 17:01
af viddi
Tæknival skrifaði:2.2.2004 11:19:12
Intel kynnir nýja kynslóð Pentium 4
Örgjörvarisinn Intel hefur kynnt nýja kynslóð Pentium 4 örgjörvanna sem byggja á svokallaðri 90-nanómetratækni (Prescott). Til fróðleiks má nefna að einn nanómetri er einn milljarðasti úr metra. Nýju örgjörvarnir leysa af hólmi örgjörvana með 130-nanómetra tækninni en þeir kallast Northwood. Í Prescott eru 125 milljónir smára og 1 MB Level-2-cashe og örgjörvarnir eru 2,8 til 3.2 GHz. Enn hraðvirkari Prescott örgjörvi er vætanlegur síðar, 3,4 GHz.
Meira á ZDNet - Mitt álit
þeir skrifuðu cache vitlaust
Sent: Fim 05. Feb 2004 17:32
af gnarr
hverjir eru þeir?? er prescott ekki "pentium5"
Sent: Fim 05. Feb 2004 17:34
af gumol
nei, pentium 4
Sent: Fim 05. Feb 2004 23:44
af Bendill
Intel Pentium 4 "Prescott" er ekki bara venjulegur P4 örri með meira L2 Cache (1024k)

Þeir hafa bætt í þennan 13 nýjum skipanasettum, það sem þeir kalla "SSE3", sem og minnkað stærðina á kjarnanum niður í 0.09 míkron úr 0.13 míkron.
Intel er að reyna að halda P4 línunni ferskri með því að gefa örgjörva út sem eru byggðir á sama "platform" en eru uppfærðir með alls kyns bjöllum og flautum. En þessi mun skera sig úr því hann mun vonandi vera öflugri að mörgu leyti... held ég
Annars er "Prescott" vinnuheitið á kjarnanum eins og "Northwood", "Barton", "Coppermine", "T-bird" og "Thouroughbred"
Umfjöllun má sjá
hér
Sent: Fös 20. Feb 2004 00:40
af wICE_man
Bendill, þú gleymir því að pípunin hefur verið lengd upp í 31 stig frá 20 ef ég man rétt, þetta þýðir að mörg forrit munu keyrast hægar fyrir vikið. Stærra skyndiminni og betri "branch prediction" nægja að svo stöddu ekki til að vega upp á móti þessu og yfir heildina litið er Prescott eilítið hægari en Northwood m.v. sömu klukkutíðni.
Þess vegna hefur Intel ekki gert eins mikið úr þessu eins og menn höfðu ætlað. Þessar breytingar eru ætlaðar til þess að ná upp aukinni klukkutíðni og er Intel þar að halda áfram með "Megahertz"-markaðssettningu sína. Í augnablikinu er Prescott afar slappur, hann er lægra klukkaður 3.2GHz vs. 3.4GHz fyrir nýjasta Northwood kjarnann, hægari miðað við sömu klukkutíðni og miklu, miklu heitari. 3.2GHz prescott dregur 103 watta straum og er það nýtt met. Ég man þá tíð þegar okkur þótti 60 wöttin hjá AMD örgjörvunum mikið.
Ég vill ráðleggja fólki að halda sig í mílu fjarlægð frá þessum örgjörva þangað til að þeir koma á hærri klukkutíðnir, frekar að velja Northwood eða Athlon64.
Svo ég vitni í aðra:
"I'd rather have AMD's cool'n'quiet than hot'n'prescott"
Sent: Fös 20. Feb 2004 00:55
af Arnar
Hehehehe
Hvað segir guðjón um að intel sé orðinn heitari en AMD?
YEAH!!!! Hvað segir Guðjón núna.. hehehehe
Sent: Fös 20. Feb 2004 01:23
af GuðjónR
Sent: Fös 20. Feb 2004 16:05
af wICE_man
Fyrir þá sem ekki vita þá er "Cool'n'Quiet" TM innbyggð hraðastilling sem virkar þannig að örgjörvinn gengur bara eins hratt og hann þarf. Þannig sparar maður rafmagn og örgjörvinn gengur svalar.
Sent: Fös 20. Feb 2004 17:12
af GuðjónR
Virkar sem sagt eins og Pentium Mobile

Sent: Fös 20. Feb 2004 18:45
af mufusus
á maður semsagt ekkert að fara að kaupa prescott núna ???
Sent: Fös 20. Feb 2004 18:48
af ICM
mufusus NEII!
Sent: Fös 20. Feb 2004 19:07
af mufusus
ég sem var bunað finna þennan fína ódýra örgjörva í danmörku ! :/
ætti ég þá bara frekar að kaupa mér ódýrari northwood ?
Sent: Fös 20. Feb 2004 19:16
af ICM
já, eða bíða eða fá þér AMD. SEE3 verður mjög hæplega mikið notað.
Sent: Fös 20. Feb 2004 19:18
af Cras Override
ég er ekki alveg að skilja þetta hjá ykkur ég las um þennan örgjörva hjá hard core og mér leist bara vél á han í samburði við northwood.
Sent: Fös 20. Feb 2004 20:14
af mufusus
þarna hérna í dk fæ ég prescott á eiginlega sama verði og northwood ætti ég þá ekki að fá mér prescott frekar eða ?
Sent: Fös 20. Feb 2004 21:03
af Arnar
Prescott er ekkert að standa sig..
Skoðaðu bara benchmörks á
http://www.tomshardware.com og
http://www.anandtech.com
Sent: Sun 22. Feb 2004 02:31
af wICE_man
Virkar sem sagt eins og Pentium Mobile
Já nema bara á desktop gjörva:)